Fréttablaðið - 08.10.2002, Qupperneq 8
8 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
LESENDABREF
INNLENT
Vitur maður var eitt sinn spurð-ur um það hvað væri kurteisi.
Hógværð og lítillæti var svarið.
Lítið fer fyrir því í samfélagi
framapotara og eiginhagsmuna-
liðs á Íslandi.
Það er sérkennilegt að á samatíma og ábyrgð fólks gagnvart
náunga sínum hefur minnkað í
samfélaginu skuli
fólki gefið úr-
skurðarvald um
húsakynni ná-
granna sinna.
Það þarf ekki
mikla mannþekk-
ingu til að viður-
kenna að almennt á
fólk auðvelt með
að axla ábyrgð á
velferð náunga
síns. Ríkisvaldið hefur hins vegar
kerfisbundið tekið þessa ábyrgð
yfir. Ef barnið í næsta húsi er van-
nært gefum við því ekki að borða
heldur hringjum við í barnavernd-
arnefnd. Ef við heyrum neyðaróp í
næsta stigagangi hringjum við í
neyðarlínuna og hlustum á ópin
þær tuttugu, þrjátíu mínútur sem
það tekur lögregluna að mæta á
staðinn. Í báðum tilfellum reynum
við að þagga niður í löngun okkar
til að bregðast sjálf við neyðinni.
Við minnum okkur á að í raun
komi þetta okkur ekki við. Þetta
séu mál náunga okkar og ríkis-
valdsins. Þannig kennir samfélag-
ið okkur að bregðast við gegn sam-
visku okkar.
En eins og við vitum að mann-
skepnunni er treystandi til að axla
ábyrgð á náunga sínum þá vitum
við að henni er alls ekki treystandi
til að ráðskast með líf hennar.
Framkvæmd tiltölulega ný-
settra skipulagslaga sýnir þetta
vel. Út um allan bæ þarf fólk sem
vill setja kvist á húsið sitt eða
svalir fyrir framan svefnherberg-
isgluggann að fá skriflegt sam-
þykki nágranna sinna. Og heilu
göturnar leggjast í deilur um rétt-
mæti framkvæmdanna. Eru sval-
irnar ekki óþarflega stórar? Færi
ekki betur á því að kvisturinn
væri örlítið lægri?
Ef fólk efast um hversu vitlaust
þetta fyrirkomulag er, ætti það að
gera sér ferð að húsinu að Lauga-
vegi 53. Það var reist á grunni ára-
langra deilna nágrannanna um
byggingalag, stærð, hæð, magn,
skugga. Húsið er einskonar múl-
asni; afkvæmi bárujárns- og versl-
unarhúss – en hvorugt þó. Það er
minnismerki um að niðurstaða
deilna er ekki alltaf sátt – heldur
oft einskonar uppgjöf; taugaáfall.
Skipulagslögin eru farvegur
fyrir fleiri svona mistök og munu
án efa skemma fyrir uppbyggingu
borgarinnar á næstu árum og ára-
tugum. Þau munu hægja á upp-
byggingunni, skila af sér verri
húsum og leika taugakerfi borgar-
anna illa – því fátt leikur mann-
skepnuna verr en deilur við ná-
granna sína. Einkum ef deiluefnið
er einskisvert.
„Húsið er
minnismerki
um að niður-
staða deilna er
ekki alltaf sátt
– heldur oft
einskonar upp-
gjöf; taugaá-
fall.“
Fólki er sigað á nágranna sína
skrifar um skipulagslögin sem gefa fólki
úrskurðarvald yfir lífi nágranna sinna.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
STJÓRNMÁL Mikið ber á milli al-
mennings og valdamanna þegar
kemur að því að meta áhrif Evr-
ópusambandsaðildar á sjávarút-
veg segir Svanfríður Jónasdóttir,
sem stýrir Evrópukynningu Sam-
fylkingar. „Ég hef fylgst með
þessari þróun í gegnum tíðina og
heyri mikið í fólki. Mér finnst ég
kenna bæði nýjan og miklu stríð-
ari tón heldur en áður. Ótrúlega
mikið bil er orðið milli fólksins í
landinu annars vegar og stjórn-
málamannanna og þeirra sem
véla um þessi mál hins vegar.“
Svanfríður kveðst hafa orðið
vör við það á kynningarfundum
Samfylkingar um Evrópusam-
bandið að fólk finni ekki til sam-
kenndar með útgerðarmönnum.
Þetta komi í ljós þegar ræddir
eru þættir sjávarútvegsstefnu
Evrópusambandsins sem athuga-
semdir hafa verið gerðar við,
ákvörðun heildarkvóta í Brussel
og erlenda fjárfestingu í sjávar-
útvegi.
„Viðbrögð fólks eru ótrúlega
oft: Kemur þetta okkur eitthvað
við? Er ekki löngu búið að ráð-
stafa þessum fiskimiðum? Eða að
fólk spyr: Á okkur ekki að vera
sama hvort það sé Samherji, Eim-
skip eða einhverjir útlendingar
sem eru að berja hér á miðun-
um?“
Bil á milli almennings og valdamanna í viðhorfum til áhrifa ESB á sjávarútveg:
Engin samkennd
með útgerðarmönnum
SVANFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR
Stjórnar Evrópukynningu Samfylkingar.
Hefur setið meira en 30 kynningarfundi
víða um landið.
KAN JÚNIS, GAZASTRÖND, AP Að
minnsta kosti tíu manns fórust í
fyrrinótt þegar ísraelskt flug-
skeyti hafnaði í hópi fólks í bæn-
um Kan Júnis á Gazaströnd.
Palestínumenn segja fjöldamorð
hafa verið framið og krefjast al-
þjóðlegrar verndar.
Árás ísraelska hersins á bæ-
inn hófst skömmu eftir miðnætti
og stóð í fjórar klukkustundir.
Um það bil fjörutíu skriðdrekum
var ekið inn í bæinn og skotið úr
þeim á hús sem standa við aðal-
götuna. Að minnsta kosti 110
manns eru særðir, þar af eru 25 í
lífshættu.
Pelestínumenn halda því fram
að hinir látnu hafi allir verið
óbreyttir borgarar. Ísraelski her-
inn segir hins vegar að þeir hafi
flestir verið vopnaðir og verði að
teljast hafa fallið í bardaga.
Weizman Shiri, aðstoðarland-
varnaráðherra Ísraels, sagði að
sér þætti leitt ef óbreyttir borg-
arar hafi orðið fyrir skaða. „En
hvað getum við gert?“ spurði
hann. „Það er stríð.“
Flugskeytinu var skotið þegar
árásinni á bæinn var í þann veg-
inn að ljúka. Hershöfðinginn Isr-
ael Ziff stjórnaði aðgerðum ísra-
elska hersins. Hann segir að her-
inn hafi mætt mikilli andspyrnu
vopnaðra manna í bænum. Þegar
Ísraelsher var farinn söfnuðust
vopnaðir menn saman úti á götu.
„Þeir skutu mikið og hentu hand-
sprengjum. Það var bardagi
þarna,“ sagði Ziff. „Þyrlan mið-
aði á þennan vopnaða hóp og
hæfði hann.“
Wissam Abdeen varð fyrir
sprengjubroti úr flugskeytinu.
Hann segir að þegar hermennirn-
ir voru farnir úr bænum hafi fólk
komið út á götur til þess að kanna
skemmdir og huga að vinum og
ættingjum. Þá hafi það heyrt í
þyrlum.
„Tveimur mínútum síðar
heyrði ég hljóð frá einhverju sem
kom úr loftinu og ég sá logana.
Síðan lyfti gríðarmikil sprenging
mér og þeytti mér tíu metra.“
Í yfirlýsingu frá Ísraelsher
segir að í bænum séu bækistöðv-
ar íslömsku skæruliðasamtak-
anna Hamas.
Árásin var gerð á meðan
Javier Solana, utanríkismálafull-
trúi Evrópusambandsins, var í
heimsókn á þessum slóðum. Ísra-
elskir embættismenn reyndu að
fá Solana ofan af því að heim-
sækja Jasser Arafat í rústum
höfuðstöðva hans í Ramallah.
Flugskeyti skotið
á hóp manna
Árás Ísraelshers á Kan Júnis stóð í fjórar stundir. Palestínumenn segja
fjöldamorð hafa verið framið þegar flugskeyti var skotið á hóp manna.
Ísraelsmenn segja mennina hafa verið vopnaða.
BEÐIÐ FRÉTTA Á SJÚKRAHÚSINU
Palestínumenn bíða frétta af særðum vin-
um og ættingjum á göngum Nasersjúkra-
hússins á Gazaströnd.
AP
/C
H
AR
LE
S
D
H
AR
AP
AK
LÉLEGUR BÚNAÐUR Staðan hjá
Slökkviliði Ísafjarðarbæjar
varðandi bifreiðar og búnað er
fremur bágborin, eftir því sem
fram kemur í nýrri skýrslu.
Meðalaldur lausabúnaðar og bif-
reiða er áætlaður tæplega 32 ár.
Í skýrslunni kemur meðal ann-
ars fram að dælubíllinn á Þing-
eyri sé af gerðinni GAZ, árgerð
1956. bb.is
BYGGT VIÐ SKÓLA Fyrir nokkru
hófust framkvæmdir á nýrri við-
bót við Grunnskóla Tálknafjarð-
ar. Áformað er að reisa fjórar
nýjar skólastofur og gerir verk-
samningur ráð fyrir að bygging-
in verði afhent fullbúin í febrúar
2003. bb.is
UPPTÖKUR Á HÖFN Tökulið frá
Pegasus var í fyrradag að taka
upp sjónvarpsmyndina Virus au
Paradis á Höfn í Hornafirði. Með-
al leikara í myndinni er hin
sænska Helena af Sandeberg.
horn.is
SKARST Á HÖFÐI Níu ára dreng-
ur skarst á höfði eftir að hafa
lent með höfuðið í framrúðu bif-
reiðar. Drengurinn var farþegi í
bíl sem lenti í árekstri á við ann-
an á mótum Arnarhrauns og
Álfaskeiðs í Hafnarfirði á sunnu-
dag. Drengurinn var ekki í ör-
yggisbelti. Sjö umferðaróhöpp
voru tilkynnt til lögreglunnar í
Hafnarfirði um helgina.
Samfélag
framapotara
Guðmundur Halldórsson
Skúlagötu 72 skrifar
Gylfi Þór Þorsteinsson
Auglýsingastjóri DV
Þórmundur Bergsson
Auglýsingastjóri Fréttablaðsins
Gestur Einarsson
Auglýsingastjóri Morgunblaðsins
Á www.sau.is
Verð:
Með framsögu verða:
Skráning:
www.sau.is
Með léttum veitingum og kaffi
2500 - fyrir félagsmenn
3500 - fyrir aðra
Hádegisverðarfundur SAU
Í hvaða dagblaði á ég að auglýsa?
Samtök auglýsenda standa fyrir hádegisverðarfundi
fimmtudaginn 10. okt. kl. 12:00 - 13:30
á Hótel Loftleiðum Þingsölum 1-3.
Fjallað verður um auglýsingar í dagblöðum frá ýmsum
hliðum. Svo sem hvað er auglýsandinn að borga
og hvað er hann að fá fyrir peninginn.
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.