Fréttablaðið - 08.10.2002, Page 11
11ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2002
FÓTBOLTI Filippo Inzaghi, fram-
herji AC Milan, er markahæstur
ásamt Francesco Totti, leikmanni
AS Roma, í ítölsku fyrstu deild-
inni í knattspyrnu þegar fjórum
umferðum er lokið. Inzaghi var á
skotskónum um helgina þegar
hann skoraði þrennu í stórsigri
AC Milan á Tórínó, 6:1. Inter Mil-
an er efst í ítölsku deildinni með
12 stig en nágrannar þeirra í AC
Milan sitja hins vegar í fimmta
sæti með 7 stig.
Inzaghi og Totti:
Markahæstir
á Ítalíu
FÖGNUÐUR
Inzaghi fagnar einu af þremur mörkum
sínum gegn Tórínó um helgina.
MARKAHÆSTU MENN
Í ÍTÖLSKU DEILDINNI:
Filippo Inzaghi (AC Milan) 6
Francesco Totti (AS Roma) 6 (2 úr víti)
Alessandro Del Piero (Juventus) 5 (2)
Christian Vieri (Inter Milan) 4 (1)
FÓTBOLTI Thomas Sörensen, mark-
vörður Sunderland, verður frá
næstu tvo til þrjá mánuði eftir að
hafa slasast á olnboga í 3:1 ósigri
gegn Arsenal í fyrradag. Atvikið
átti sér stað á 17. mínútu leiksins
þegar Sörensen lenti í samstuði
við Thierry Henry, framherja
Arsenal. Thomas Myhre, sem kom
í markið stað Sörensen gegn
Arsenal, verður því á milli stang-
anna hjá Sunderland í næstu leikj-
um.
Thomas Sörensen:
Frá í 2 til
3 mánuði
BORINN ÚT AF
Thomas Sörensen var borinn út af á 17. mínútu í leik Sunderland gegn Arsenal
um helgina.
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Rúmlega 1200 enskum
knattspyrnubullum hefur verið
meinað að ferðast til Slóvakíu
um næstu helgi til að fylgjast
með viðureign heimamanna og
enska landsliðsins í undakeppni
Evrópumótsins.
John Denham, innanríkisráð-
herra Bretlands, segir að breska
lögreglan vinni náið með yfir-
völdum í Slóvakíu og öðrum
löndum álfunnar til að koma í
veg fyrir ólæti á leiknum á laug-
ardag. Talið er að fótboltabull-
urnar muni reyna að komast inn
í landið í gegnum nágrannaríkin
Austurríki og Tékkland. Þó
nokkrir ólátaseggir hafa þurft
að afhenda yfirvöldum vegabréf
sín og komast þannig hvorki
lönd né strönd.
„Þetta er hluti af því að reyna
að koma í veg fyrir ólæti á knatt-
spyrnuleikjum,“ sagði Denham.
„Til þess þurfum við að beita
ýmsum ráðum.“
1200 enskar fótboltabullur:
Látnar
sitja heima
BOLTABULLUR
Bresk yfirvöld reyna nú hvað þau geta til að meina boltabullum aðgang að
knattspyrnuleikjum.
FÓTBOLTI Rio Ferdinand, dýrasti
varnarmaður heims og leikmaður
Manchester United, verður ekki
með enska landsliðinu í næstu
tveimur leikjum undankeppni
Evrópumótsins. Ferdinand gekkst
undir aðgerð á hné í fyrradag og
verður frá knattiðkun í mánuð í
það minnsta. Enska landsliðið á
leik við Slóvaka á laugardag og
við Makedóníu á miðvikudag.
„Þetta hefur verið erfitt tíma-
bil fyrir mig,“ sagði Ferdinand í
samtali við fjölmiðla. „Fyrst voru
það ökklameiðslin og nú þetta.
Það er samt betra að láta lagfæra
hnéð.“
Ferdinand segist vera svekkt-
ur yfir því að missa af leikjunum.
„Það vita allir hvað ég hef gaman
af knattspyrnu og að leika fyrir
England er mér mjög mikilvægt.
Ég er samt viss um að samherjar
mínir eiga eftir að standa sig og
ég mun fylgjast með þeim í sjón-
varpinu.“
Ferdinand missir væntanlega
einnig af leikjum með Manchest-
er United í Meistaradeild Evrópu,
gegn Olympiakos og Maccabi
Haifa.
Rio Ferdinand:
Frá knatt-
iðkun í
mánuð
RIO FERDINAND
Er lykilmaður í vörn enska landsliðsins og
hjá Manchester United.
AFTUR TIL STARFA
Cristoph Daum, fyrrverandi þjálfari Bayer
Leverkusen, er tekinn við þjálfun aust-
uríska liðsins FK Austria. Hann kom til
greina sem landsliðsþjálfari Þýskalands
en var þá handtekinn fyrir notkun ólög-
legra lyfja.
FAGRABREKKA 45
Glæsilegt einbýli innarlega í
lokuðum botnlanga, 229 fm á
2 hæðum. Innbyggður bílskúr.
Mjög fallegur garður, hellulagður
sól/grillpallur. Sér inngangur á
neðri hæð, hægt að gera sér íbúð.
Hús í góðu viðhaldi, þak og hús
að utan nýlega viðgert. Falleg
eign á góðum stað í Kópavogi
með miklu útsýni. – LAUST –
Fasteignaþjónustan
Skúlagata 30, 3hæð
Sími 552-6600
Skoðið þessa eign og aðrar á:
www.hn.is/fasto
Lovísa Kristjánsdóttir, löggiltur fasteignasali.
Þorsteinn Thorlacius, viðskiptafræðingur.
Helgi Hákon Jónsson, viðskiptafræðingur.