Fréttablaðið - 08.10.2002, Page 22
22 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
... fær Sturla Böðvarsson fyrir að
láta óháða rannsóknarnefnd fara
yfir rannsókn flugslyssins í
Skerjafirði. Sturla hefur verið
gagnrýndur fyrir að heykjast á
að taka á málinu. Reyndar eru
margir á því að þetta sé eitthvað
sem hefði átt að gera strax til að
eyða allri tortryggni. Batnandi
mönnum er best að lifa og gott til
þess að vita að málið sé á leið í
farveg óhlutdrægrar rannsóknar-
nefndar. Svo er bara að sjá hvort
ráðuneytið er ekki tilbúið að
borga fyrir skýrslu Bretanna.
Á sér athvarf í fornbókabúð
Magnús Skúlason, yfirlæknir á Sogni, segist svo lánsamur að eiga mörg áhugamál. Í starfi sínu
sinnir hann málefnum geðveikra afbrotamanna og fylgist með umræðum um hag þeirra.
Magnús Skúlason, yfirlæknir áSogni, er að eigin sögn Norð-
anmaður með djúpar rætur í Eyja-
firðinum. „Ég upplifi mig alltaf
sem hálfgerðan aðkomumann í
Reykjavík þó að ég hafi búið hér í
nær 40 ár. Ég er enn hálf áttavillt-
ur í Reykjavík.“ Magnús kann þó
vel við sig í Vesturbæ Reykjavík-
ur innan um alla KR-ingana. „Skák
og fótbolti eru þær íþróttir sem
eru í mestum metum hjá mér og
ég fylgi að sjálfsögðu Þór og KA
að málum. Þau eru auðvitað lang-
best þó þau séu ekki alltaf efst að
stigum“. Þegar þessi lið eru ekki
að keppa heldur Magnús með KR.
„Ég þekki svo mikið af KR-ingum
að ég held að það sé óhætt að segja
að ég sé að verða einn af þeim.“
Hann segist sjálfur vera búinn
að gefa upp alla von um frama við
skákborðið en hann fylgist þó vel
með því sem er að gerast í skák-
inni. „Ég tekst á við allar skák-
þrautir sem ég kemst yfir í blöð-
um og geri nokkuð af því að lesa
yfir skákir. Ég hef miklar mætur á
Friðrik Ólafssyni og tel hann eitt
mesta efni í skákmann sem fram
hefur komið.“ Magnús hefur mik-
inn áhuga á myndlist og sækir
málverkasýningar af nokkru
kappi, auk þess sem hann hefur
mikinn áhuga á ljóðagerð. „Ég elt-
ist svolítið við ljóðabækur og
reyni að fylgjast með því helsta
sem kemur út.“
„Ég tel mig vera heppinn að
eiga mörg áhugamál eða dellur og
verð til dæmis helst að komast í
Bókavörðuna til hans Braga einu
sinni í viku. Bara til að finna lykt-
ina og draga andann.“ Magnús
fylgist náið með því sem er efst á
baugi í þjóðfélagsumræðunni
hverju sinni og segist leggja sig
fram um að lesa sem flestar blaða-
greinar um samfélagsmál. „Kjör
þeirra sem minna mega sín í þjóð-
félaginu eru mér hugleikin og ég
tel bætur til þeirra sem þurfa að
treysta á velferðarkerfið af fé-
lagslegum- eða heilsufarslegum
ástæðum ófullnægjandi. Þar á ég
meðal annars við aldraða og ör-
yrkja.“
Magnús fylgist einnig vel með
vímuefnamálum og hefur miklar
mætur á starfi SÁÁ. „Það er ljóst
að það þarf að hlúa betur að ung-
viðinu frá fyrstu tíð og ég tel það
alveg ljóst að það megi koma í veg
fyrir mikinn fjölda félagslegra og
heilsufarslegra vandamála í þjóð-
félaginu með því að sinna börnum
og unglingum betur.“
thorarinn@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
8. OKTÓBER
PERSÓNAN
Ég ætla að baka afmæliskökumeð strákunum mínum fyrir
afmælið þeirra sem er daginn eft-
ir. Ég er fædd þann 8. október og
strákarnir þann 9. þannig að minn
afmælisdagur síðustu fimm árin
hefur farið svolítið í að undirbúa
afmælið þeirra,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir, alþingismaður, að-
spurð hvernig hún ætli að halda
upp á 42 ára afmælisdag sinn.
„Svo er heimilisfaðirinn fæddur
þann 18. október og við sláum því
afmælishaldinu oft saman. Þetta
verður lítið kökuboð fyrir fjöl-
skylduna.“
Bryndís segist vera spennt fyr-
ir komandi prófkjöri hjá Samfylk-
ingunni. „Mér líst ágætlega á það.
Ég er ánægð með hversu margir
virðast hafa áhuga á að taka þátt í
prófkjörinu og það sýnir best
hversu Samfylkingin er að sækja í
sig veðrið og hefur verið að styrk-
ja sig í sessi síðustu mánuði.“
Bryndís hefur haft í nógu að
snúast í þingmennskunni og við
uppeldi strákanna sinna tveggja.
Segir hún að vel hafi gengið að
samræma þetta tvennt. „Ég held
að það sé með okkur þingmenn
eins og mjög marga Íslendinga að
við vinnum alltof mikið. Til að
þessi langi vinnudagur gangi upp
þarf maður að hafa gott öryggis-
net í kringum sig og við erum svo
heppin að eiga það. Með sam-
heldni og góðri hjálp fjölskyld-
unnar hefur þetta allt gengið vel,“
segir Bryndís. „Ég á mjög góða að
og stóra fjölskyldu og það hefur
skipt miklu máli.“
En ætlar hún að mæta með af-
mælistertu í vinnuna í tilefni
dagsins? „Það getur vel verið að
ég geri það. Það er nú hefð fyrir
því hjá okkur í þingflokknum að
koma með eitthvað þegar maður á
afmæli og það getur vel farið svo
að ég geri það.“
Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður,
er 42 ára í dag. Tvíburasynir hennar eiga
fimm ára afmæli á morgun.
Afmæli
Bakar afmælistertu fyrir synina
Þótt sagt sé að fólk sé fljótt aðgleyma rámar væntanlega
flesta í afleiðingar þess að Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir spurðist
fyrir um risnu-
kostnað í Lands-
bankanum.
Bankastjórarnir
þrír hrökkluð-
ust allir úr
starfi. Vinsæld-
ir Jóhönnu juk-
ust í kjölfarið og vilja ýmsir
meina að þetta hafi átt þátt í því
hversu öruggan sigur hún vann
í prófkjöri Samfylkingar í
Reykjavík. Nú er Jóhanna kom-
in með nýja fyrirspurn um bif-
reiða-, ferða- og risnukostnað.
Spurning hvað kemur út úr
henni.
Mikið var að gera í kynning-arbás femin.is á konu-
kvöldi útvarpsstöðvarinnar Létt
96,7 á Broadway í síðustu viku.
„Víbratorarnir seldust upp. Við
þurftum að senda eftir auka-
birgðum,“ segir Soffía Stein-
grímsdóttir. Femin.is var með
35 víbratora í kynningarbás sín-
um þegar skemmtunin hófst og
seldust þeir allir á augabragði.
Alls seldi Femin.is um 50 vibra-
tora þetta kvöld. „Þær voru
margar með titrara í veskjunum
þegar þær fóru heim og mikil
gleði ríkjandi í húsinu,“ segir
Soffía en alls sóttu um tvö þús-
und konur Konukvöldið á
Broadway.
AFMÆLI
Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður
er 42 ára í dag.
ANDLÁT
Jóhannes Björnsson, Hjallavegi 1, Ytri-
Njarðvík, er látinn. Útförin hefur farið
fram.
Jóhann Benediktsson, Eyrarlandi, Eyja-
fjarðarsveit, lést 4. október.
Gunnar H. Steingrímsson, Leiðhömrum
48, Reykjavík, lést 4. október.
Adda Sigríður Arnþórsdóttir, Dísarási
16, Reykjavík, lést 3. október.
Benadikt Þór Helgason lést 3. október.
Hrefna Lang-Jensen, Vagtelsvej 69,
Fredriksberg, Kaupmannahöfn, lést 3.
október.
Sveinbjörg Sverrisdóttir, Brekkustíg 33,
Njarðvík, lést 3. október.
FÓLK Í FRÉTTUM
MAGNÚS SKÚLASON
Heimsækir Braga bóksala í Bókavörðunni reglulega og sækir þar hugarró eins og svo
margir aðrir. Andrúmsloftið á Vesturgötunni þykir líka einstaklega afslappað og allir eru
jafnir innan um gömlu bækurnar, ráðherrar sem og skjólstæðingar Magnúsar á Sogni.
TÍMAMÓT
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Davíð er Oddsson en ekki Tyson.
Leiðrétting
FirstOffice
Office/2
Hansahugbúnaður ehf. • Bæjarlind 2 • Kópavogi • Sími: 564-6800 • www.hansaworld.is
Hansa Financials, eitt fullkomnasta upplýsingakerfi sem fáanlegt er yfir 40 sérkerfi fyrir flestan
rekstur. Allt að 120 samtímanotendur, leitið tilboða hjá sölumönnum okkar.
Hansakerfin hafa verið fullstaðfærð og þýdd á íslensku í Windows frá 1994.
Nánari upplýsingar á www.hansaworld.is og í síma 564 6800.
Fjárhagsbókhald, sölukerfi, viðskiptamannakerfi, lánadrottnakerfi og einfalt lagerkerfi.
Hentugt fyrir smáfyrirtæki og einyrkja.
Verð kr. 48.000 án vsk.
Fjárhagsbókhald, sölukerfi, viðskiptamannakerfi, lánadrottnakerfi, lagerkerfi, tilboðskerfi og
CRM kerfi. Nettengingar og fjartengingar mögulegar allt að 20 samtímanotendur.
Verð frá kr. 84.800 án vsk.
Hansa Financials
Vi›skiptahugbúna›ur
á gó›u ver›i
Spurning: Hvernig deyja heila-frumur hjá ljóskum?
Svar: Einar.
BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR
Bryndís segist eiga mjög góða að og
því hafi gengið vel að samræma þing-
mennskuna og fjölskylduna.
Sýslumanni og hreppstjóra Barð-strendinga var rænt af enskum
togara árið 1910. Þeir voru fluttir
til Englands en komu heim í sama
mánuði.
Leikarinn og leikritaskáldið Pet-er Ustinov kom til landsins árið
1969 og var viðstaddur frumsýn-
ingu á leikriti sínu Betur má ef
duga skal í Þjóðleikhúsinu.
Breski dægurlagasöngvarinnDonovan hélt tónleika í Þjóð-
leikhússkjallaranum árið 1994 við
mikinn fögnuð viðstaddra.