Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 24
Álaugardag gengu yfir tvöþúsundíslendingar til góðs fyrir íbúa í suðurhluta Afríku, en þó ekki síður fyrir sjálfa sig því hvað er betra en leggja eitthvað ofurlítið af mörkum til að gera veröld morgundagsins ör- lítið bærilegri. Það er að minnsta kosti árangursríkara en að gera ekki neitt. Árangurinn var líka stórkost- legur, um 28 milljónir króna. Flestir tóku fagnandi á móti sjálfboðaliðum Rauða Krossins. Ég var einmitt að bíða eftir ykkur. Hvað viljið þið mik- ið? Vonandi kemur þetta sér vel. Verst að það er ekki meira. Mörgum sjálfboðaliðanum hefur áreiðanlega hlýnað í haustgjólunni við tilhugsun- ina um að tilheyra þjóð með hjartað á réttum stað. FIMM ÁRA SKOTTA arkaði til góðs þennan laugardag með móður sinni. Á henni kjaftaði hver tuska og þeir sárafáu sem ekki vildu leggja góðu málefni lið fengu sterk við- brögð frá litlu manneskjunni. Æ, aumingja þú. Áttu enga peninga? Við getum gefið þér peninga, sagði sú stutta. Við erum að safna þeim.Vandræðalegir lokuðu þessir örfáu einstaklingar snarlega dyrum og móðirin skundaði áfram með gjafmildu stubbuna. Á SUNNUDEGI vaknaði þessi sama skotta eldsnemma og dreif sig í föt. Eigum við ekki að ganga til góðs í dag líka? spurði hún og hristi mömmu sína. Ha? Nei, það var bara í gær, sagði mamman milli svefns og vöku. En við verðum að ná í meiri peninga, sagði sú stutta hissa og móðirin vaknaði upp við vondan draum. Til hvers vorum við að ganga til góðs í gær? spurði móðirin ringluð. Til þess að safna peningum, svaraði smælkið. Til hvers eru pen- ingarnir? spurði móðirin ákveðin. Þeir eru handa okkur, sagði krílið og dreif sig í vettlinga. Hún hafði nefnilega ekki verið með þegar söfn- unarbauknum var skilað og upphófst nú langur fyrirlestur um fátækt og hörmungar í suðurhluta Afríku. EN GLÆPUR litlu manneskjunnar var ekki meiri en margra ann- arra.Ýmsir hafa það að atvinnu að ganga til góðs fyrir sjálfa sig og enga aðra, daginn út og inn. Í vest- rænu samfélagi eru fjölmargir á göngu sem leggja lykkju á leið sína og fara um hinar mestu ófærur til þess að maka krókinn og raka til sín auðæfum. Þeir troðfylla koppa sína og kirnur af gulli og fánýtu glingri á meðan náunginn sem býr bæði nær og fjær á hvorki í sig né á. Sumir misnota frelsið, segir landsfaðirinn og ypptir öxlum.  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 18 80 9 1 0/ 20 02 COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ Það hefur aldrei verið hagkvæmara en nú að eignast nýjan Corolla, bíl ársins 2002. Komdu strax og reynsluaktu vinsælasta bíl á Íslandi, fyrr og síðar, og þú finnur hver ástæðan er. Verð frá 1.599.000. www.toyota.is. …og þú finnur af hverju! Bíll ársins 2002 REYNSLU AKSTUR „Enginn annar stenst samanburð.“ Ég var að velja fyrsta bílinn minn og skoðaði vel það sem stóð til boða. Corolla hafði allt það sem ég var að leita að, hann er í réttum stærðarflokki fyrir mig, hefur mjög lága bilanatíðni og hátt endursöluverð. Auk þess hefur hann afskaplega gott orðspor, er sparneytinn, traustur og öruggur. Valið var þess vegna mjög auðvelt því aðrar tegundir stóðust einfaldlega ekki samanburðinn. Margrét Valdimarsdóttir Viðskiptafræðinemi í Háskólanum í Reykjavík Að ganga til góðs

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.