Fréttablaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 7
7ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2002 JARÐHRÆRINGAR Tilbúið undir tréverk! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 18 69 2 0 9/ 20 02 Nú er rétti tíminn til að innrétta. Duropal borðplötur, skápahurðir og sólbekkir. 20% afsláttur. Límtré í borðplötur, sólbekki og stiga. Eik, beyki, hlynur og kirsuberjaviður. Þykktir 19, 26 og 32 mm. 20% afsláttur. Furulímtré. Þykktir 18, 28 og 38 mm. 25% afsláttur. 10% afsláttur af allri vinnslu. Duropal borðplötur, skápahurðir og sólbekkir. Límtré í borðplötur, sólbekki og stiga. VERSLUN „Við höfum engin not fyr- ir þetta lengur. Keikó er farinn og nú verður allt selt,“ segir Smári Harðarson, kafari í Vestmanna- eyjum, sem unnið hefur með Keikó undanfarin fjögur ár en leitar sér nú að nýjum verkefnum. „Ég er orðinn sölumaður búnaðar- ins sem hér er og ég get ekki ann- að sagt en að áhuginn sé gríðar- legur,“ segir Smári. Aðstoðarmenn Keikós sem eft- ir sitja í Vestmannaeyjum hafa komið sér upp vefsíðu, keikó.is, þar sem þeir auglýsa búnaðinn. Um er að ræða alls kyns köfunar- græjur, mælitæki og síðast en ekki síst kvígin sjálf sem hvalur- inn var í og netið sem hélt honum inni: „Loðnuveiðimenn hafa mik- inn áhuga á netinu og telja sig geta notað það í veiðarfæri. Þá hentar kvígin sjálf til fiskeldis af ýmsum toga,“ segir Smári sem var í hópi fimmmenninga sem höfðu fullt starf af því að sýsla með Keikó. Allir hafa þeir nú misst vinnuna og stefna á ný mið. Líkt og Keikó.  Mikill áhugi á Keikó - búnaði í Vestmannaeyjum: Kafari orðinn sölumaður KEIKÓ FARINN Búnaðurinn auglýstur til sölu - mikill áhugi. Bandarískur erindreki: Myrtur fyrir utan heimili sitt AMMAN, JÓRDANÍU, AP Bandarískur erindreki var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær. Mað- urinn hét Laurence Foley og vann að hjálparstörfum. Lést hann samstundis eftir að hafa verið skotinn margoft. Ekki er vitað hvort hryðjuverkamenn hafi staðið fyrir verknaðinum. Þónokkrar árásir hafa verið gerðar á Ísraela í Amman og við landamæri Jórdaníu og Ísralels undanfarið.  SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Hyggst beita sér fyrir því að frumvarpið verði samþykkt fyrir þingslit í vor. Björgunarsveitir: Gert að tryggja sína menn FRUMVARP Björgunarsveitum verð- ur gert skylt að kaupa slysatrygg- ingar fyrir björgunarsveitarmenn verði frumvarp sem hefur verið samið fyrir dómsmálaráðuneytið að lögum. Í frumvarpinu er kveðið á um hlutverk björgunarsveita, sam- starf þeirra við aðra aðila og rétt- indi og skyldur björgunarsveitar- manna. Sólveig Pétursdóttir, dóms- málaráðherra, greindi frá því á ráðstefnunni Björgun að sam- komulag væri í burðarliðnum milli ráðuneytisins og Landsbjargar um að kostnaður vegna trygginga björgunarsveitarmanna yrði greiddur af ríkissjóði.  Rafiðnaðarsambandið: Krefjast efnda ATVINNUMÁL Miðstjórn Rafiðnaðar- sambands Íslands krefst þess að ríkisstjórnin standi við yfirlýs- ingu sína frá því í desember að leitast verði við að jafna muninn á réttindum starfsmanna sinna sem er misjafn eftir því í hvaða verka- lýðsfélögum þeir eru. Í yfirlýsingu miðstjórnarinnar segir að aðilar vinnumarkaðarins hafi staðið við sinn hluta sam- komulagsins sem var gert um að koma böndum á þensluna í efna- hagslífinu. Nú standi upp á stjórn- völd að standa við sitt fyrir 1. febrúar á næsta ári svo komist verði hjá aðgerðum.  SKJÁLFTI Í MÝRDALSJÖKLI Nokkr- ir jarðskjálfar urðu í suðvestan- verðum Mýrdalsjökli í fyrirnótt. Sá stærsti mældist 3,4 á Richter klukkan 01.17 og mínútu síðar mældst annar sem mældist 3,1 á Richter. Fundust skjálftarnir á nokkrum stöðum. Aðrir skjálftar fygldu í kjölfarið sem mældust undir 2,0 að stærð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.