Fréttablaðið - 29.10.2002, Page 23
23ÞRIÐJUDAGUR 29. október 2002
Auglýsing um
Guinness-bjór:
Sýningar
bannaðar
á Írlandi
DYFLINNI Sjónvarpsauglýsing um
þjóðardrykk Íra, Guinness-bjór-
inn, hefur verið bönnuð í írsku
sjónvarpi. Auglýsingin var gerð í
Póllandi og sýnir þorp sem er
nánast í rúst eftir eldgos. Maður
gengur berfættur yfir glóandi
hraun að þorpskránni, opnar
pöbbinn og býður öllum að fá sér
Guinness til að róa sig eftri áfal-
lið sem gosið skiljanlega olli.
Auglýsingaeftirlit á Írlandi taldi
að auglýsingin bryti í bága við
reglur sem kveða á um að auglýs-
ingar um alkólhól megi aldrei
gefa í skyn „þerapísk“ áhrif af
neyslu þess, eða að áfengis-
drykkja stuðli að frama af
nokkru tagi.
BÆKUR Mál og menning hefur gef-
ið út fyrra bindi ævisögu Jóns
Sigurðssonar eftir Guðjón Frið-
riksson. Þetta er fyrsta ítarlega
ævisaga Jóns sem rituð hefur
verið í rúm 70 ár en þegar Páll
Eggert Ólason skráði sögu hans
var þjóðernisleg rómantík í há-
vegum höfð. Guðjón segist hafa
forðast allar þær klisjur sem
hafa verið áberandi í hefðbund-
inni umfjöllun um Jón. „Ég fjalla
hispurslaust um þjóðardýrling-
inn og geri vandlega grein fyrir
veikindum hans sem mikið hefur
verið hvíslað um í gegnum tíð-
ina. Hann smitaðist af kynsjúk-
dómi i Kaupmannahöfn á meðan
Ingibjörg sat enn í festum hér
heima og allar líkur eru á að um
sárasótt hafi verið að ræða.“
Jón hafði lítinn áhuga á
stjórnmálum fyrstu árin sem
hann var úti í Kaupmannahöfn
en eftir að hann reis upp úr veik-
indunum setur hann alla sína
krafta í þau. Guðjón segist oft
hafa verið spurður að því hvort
Jón hafi verið leiðinlegur og
bendir á að Jón hafi haft gríðar-
leg persónutöfra og slíkt fólk
geti varla talist leiðinlegt. „Hann
hefur hins vegar verið hafinn á
stall og gerður að goðsögn,
þannig að það er ekki neitt rúm
fyrir litbrigði í persónuleika
hans eins og hann kemur fólki
sem lesið hefur um hann fyrir
sjónir.“ Guðjón bætti því svo við
að Jón hafi brugðið fyrir sig
gamansemi, meðal annars í bréf-
um en hafi einnig verið mjög
ákveðinn og ráðríkur „eins og
valdsmenn eiga að vera.“
Seinna bindi Guðjóns þar sem
hann segir frá síðustu 20 árunum
í lífi Jóns er væntanlegt að ári
liðnu.
Ævisaga frelsishetju:
Jarðtenging goðsagnar
GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
„Jón fékk mestan mótbyr úr sinni eigin heimasveit og þannig kusu faðir hans og mágur
hann aldrei á þing.“ Þessi staðreynd er að sögn Guðjóns ein af þeim sem legið hafa í
þagnargildi enda ekki við hæfi að frelsishetjan nyti ekki fulltingis sinna nánustu.
LEIKLIST Jim Carrey, leikarinn með
gúmmíandlitið, hefur tekið að sér
aðalhlutverkið í endurgerð ítal-
skrar kvikmyndar frá árinu 1982.
Alberto Sordi leikstýrði fyrri
myndinni, sem heitir á frummál-
inu „Io so che tu sai che io so,“ eða
„I Know That You Know That I
Know.“ Fjallar hún um mann sem
greiðir úr hjónabandsflækjum
sínum eftir að hafa fylgst með eft-
irlitsmyndavélum sem fylgt hafa
með eiginkonunni eftir.
Jim Carrey í nýrri mynd:
Ég veit að
þú veist að
ég veit
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
CARREY
Jim Carrey leikur næst í endurgerð
ítalskrar myndar.
Nýjar vörur á
hverjum degi!
Opið virka daga 14-18, lau.-sun. 11-18. Síðasti dagur sunnudagurinn 3. nóv. Upplýsingasími 561 0580.
Claire
LA GEAR Confetti
Regatta adidasSPEEDO
Triumph
adidas hettupeysur
okkar verð 1.500 fullt verð 5.990
Confetti jakkar
okkar verð 2.500 fullt verð 6.500
Brettabuxur isit Zo
okkar verð 2.990/ 5.990 fullt verð 9.000/12.000
Regatta flíspeysur
okkar verð 3.700 fullt verð 7.500
Flíshanskar
okkar verð 300 fullt verð 990
Sundbolir adidas/O’NEILL/ Speedo
okkar verð 1.500 fullt verð 2.990/ 4.900
adidas hlaupaskór
okkar verð 2.500 fullt verð 8.990
66°N flísjakkar
frá 3.900
STJÓRNMÁL Vöðvatröllið Arnold
Schwarzenegger hefur ekki náð
sér almennilega á strik frá því
hann lék vélmenni í annarri
myndinni um Tortímandann fyrir
áratug eða svo. Þess hefur því
löngum verið beðið að hann hætti
í kvikmyndunum og snúi sér að
stjórnmálum. Hann er farinn að
beita sér af fullum krafti í fjáröfl-
un fyrir verkefni sem miðar að
því að fylla tómstundir barna á
uppbyggilegan hátt. Glöggir
menn vestra telja víst að hér sé
um stærsta skref leikarans, til
þessa, í áttina að ríkisstjórakosn-
ingum í Kaliforníu.
Schwarzenegger, sem er giftur
inn í Kennedy fjölskylduna, er
repúblikani og telur George W.
Bush til persónulegra vina sinna.
Hann segir það af og frá að hann
sé á leið í framboð meðal annars
vegna þess að til þess þurfi hann
að fylla út allt of mörg eyðublöð.
„Þið þekkið mig flest úr bíó-
myndum þar sem ég berst við
glæpamenn og hryðjuverkamenn
en sú barátta sem ég er stoltastur
af er sú sem ég tek þátt í fyrir
börnin.“
ARNOLD SCHWARZENEGGER
Gæti orði ríkisstjóri í Kaliforníu eins og
Ronald Reagan en hann kemst víst aldrei
til valda í Hvíta húsinu þar sem hann er
ekki fæddur í Bandaríkjunum.
Arnold Schwarzenegger:
Fikrar sig yfir
í stjórnmálin