Fréttablaðið - 13.11.2002, Síða 4
4 13. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
Mikil úrkoma á Austurlandi:
Aurskriða féll milli húsa á Seyðisfirði
AUSTURLAND Aurskriða féll niður í
íbúðarbyggð á Seyðisfirði rétt
fyrir hádegi í gærdag. Engar
skemmdir urðu vegna skriðunn-
ar en hún fór á milli húsa á Aust-
urvegi og flæddi yfir veginn.
Mjög mikil úrkoma hefur verið
á Seyðisfirði undanfarna sólar-
hringa en heldur dró úr henni í
gærdag.
Almannavarnir Seyðisfjarðar
lokuðu í fyrradag veginum
sunnanmegin í firðinum en opn-
uðu að nýju í gærdag. Eftir fund
í gær var ákveðið að hafa engan
sérstakan viðbúnað en ákveðið
var að biðja íbúa í efstu húsum
sunnanmegin í firðinum að hafa
varann á þangað til í dag.
Vegir á Austurlandi hafa ekki
orðið fyrir stórvægilegu tjóni
þrátt fyrir mikla úrkomu. Páll Þ.
Elísson, verkstjóri hjá Vegagerð-
inni á Reyðarfirði, segir aðeins
hafa runnið úr köntum á nokkrum
stöðum. Unnið væri að því að fylla
í skörð og laga.
Aðspurður um kaflann milli
Hvalnes- og Þvottárskriða segir
Páll nokkrar minniháttar skriður
hafa orðið og eitthvað hafi fallið
af grjóti. Vildi hann ekki gera
mikið úr ástandinu og sagði veg-
inn hreinsaðan jafnóðum.
FRÁ SEYÐISFIRÐI
Aurskriðan féll milli húsa á Austurvegi 54 og 56 og flæddi yfir veginn.
M
YN
D
/K
AR
Ó
LÍ
N
A
ÞO
R
ST
EI
N
SD
Ó
TT
IR
VERÐBÓLGA LÆKKAR
Verðbólgan hefur farið hratt lækkandi.
Seðlabankinn segir lækkun vísitölu nú
ekki eina sér hafa áhrif á vaxtaákvarðanir
bankans.
Verðhjöðnun milli
mánaða:
Kom mark-
aðnum á
óvart
EFNAHAGSMÁL Verðhjöðnun var í
októbermánuði. Vísitala neyslu-
verðs miðað við verðlag í byrjun
nóvember var 223,7 stig og lækk-
aði hún um 0,18% milli mánaða.
Fjármálafyrirtæki höfðu spáð
verðbólu á bilinu 0,1 til 0,2% í
mánuðinum. Verðbólgan er nú
komin undir verðbólgumarkmið
Seðlabankans.
Ingimundur Friðriksson seðla-
bankastjóri segir þetta ánægjuleg
tíðindi. „Þetta er í samræmi við þá
þróun sem Seðlabankinn gerði ráð
fyrir.“
Vaxtalækkun Seðlabankans tók
gildi í gær, en ákvörðun um hana
var tekin í síðustu viku. Í ljósi
þess að niðurstaðan er heldur
betri en búist var við hafa vaknað
spurningar um frekari vaxta-
lækkun. Ingimundur segir að
þessi mæling ein og sér hafi ekki
áhrif á ákvörðun bankans.
Verðbólga síðustu tólf mánuði
er 2,4% en var 8,1% fyrir ári síð-
an. Húsnæði hækkaði milli mán-
aða og er verðbólga án húsnæðis
1,7% miðað við síðustu tólf mán-
uði.
Skipulagsstjóri sátt-
ur við umhverfislög
Stefán Thors undrast að vísindamönnum sé hótað en gefur
umhverfismati Norðlingaölduveitu heilbrigðisvottorð.
UMHVERFISMAT Stefán Thors skipu-
lagsstjóri segir stofnun sína hafa
haft fulla yfirsýn yfir umhverfis-
mat vegna Norðlingaölduveitu og
því hafi úrskurður sem heimilaði
gerð uppistöðu-
lóns, þar sem hluta
friðlandsins við
Þjórsárver yrði
sökkt, verið vand-
lega íhugaður og
studdur fullum
rökum. Hann seg-
ist geta gefið um-
h v e r f i s m a t i n u
heilbrigðisvottorð.
„Það hefur ekk-
ert verið óeðlilegt
í þessu ferli en
munurinn á þessari framkvæmd
og öðrum er einna helst sá að
þetta er umdeild framkvæmd,“
segir Stefán.
Skipulagsstofnun hefur verið
gagnrýnd fyrir úrskurðinn og vís-
indamenn hafa gengið fram fyrir
skjöldu og lýst því að matsskýrsla
Landsvirkjunar sé stórgölluð þar
sem búið sé að skrumskæla niður-
stöður vísindamanna og breyta
einkunnagjöf sem varpa eigi ljósi
á áhrif veitunnar á umhverfi.
„Það kemur ekkert á óvart í
umræðum undanfarinna daga
nema það að ákveðnum vísinda-
mönnum hafi verið stillt upp við
vegg og þeim hótað. Það var mér
ekki kunnugt um. Okkur var hins
vegar kunnugt um ágreining milli
vísindamanna og ólíkar skoðanir á
málinu. Við fórum yfir það allt,“
segir Stefán.
Hann staðfestir að Skipulags-
stofnun hafi í upphafi ekki fengið
athugasemdir doktor Ragnhildar
enda segir hann VSÓ hafa talið að
þar væri um að ræða vinnugögn.
„Okkur fannst eðlilegt að við
fengjum þessi gögn og það var
engin fyrirstaða þegar við kölluð-
um eftir þeim,“ segir Stefán.
Hann segist vera sáttur við lög-
in um umhverfismat með þeim
breytingum sem gerðar voru árið
2000.
„Í öllum aðalatriðum tel ég að
þessi mál hjá okkur séu í eðlileg-
um og góðum farvegi og lögin
standa ágætlega undir sínu. Auð-
vitað er það með þessi lög eins og
önnur að það þarf að pússa þau til.
Það er ástæða til þess að í lögun-
um komi skýrt fram hvert er gildi
úrskurða Skipulagsstofnunar og
hvort úrskurðir eru bindandi eða
hvort leyfisveitandi geti haft
hann til hliðsjónar. Þetta þarf að
vera skýrt. Meðal þess sem um er
rætt er að heppilegra væri að það
væri úrskurðarnefnd en ekki ráð-
herra sem taki endanlega ákvörð-
un,“ segir Stefán.
rt@frettabladid.is
Uppgjör Landssímans:
Fjár-
magnsliðir
hagstæðari
UPPGJÖR Landssími Íslands skilaði
tæplega 1,8 milljörðum í hagnað
fyrstu níu mánuði ársins. Þetta er
um milljarði meiri hagnaður en
fyrir sama tímabil í fyrra. Allir
helstu rekstrarliðir eru í sam-
ræmi við áætlanir fyrirtækisins.
Fjármunaliðir voru félaginu hag-
stæðari en í fyrra auk þess sem
söluhagnaður upp á tæpar 400
milljónir var tekjufærður á síð-
asta ári. Fjármagnsliðir voru
betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þeir voru jákvæðir um rúmar 400
milljónir en voru neikvæðir um
rúmar 1100 milljónir í fyrra.
BÆJARMÁL Bæjarstjórn Garða-
bæjar hefur falið Ásdísi Höllu
Bragadóttur bæjarstjóra að
hefja viðræður við fjármálaráð-
herra um hugsanleg kaup á landi
Vífilsstaða.
Bæjarstjóri lagði fram til-
lögu þessa efnis á síðasta fundi
bæjarstjórnar. Ef samningar
nást og farið verður út í fram-
kvæmdir verður einn grunn-
skóli byggður á svæðinu. Landið
er í heild um 162 hektarar, en
svæðið sem talið er að henti
undir íbúðabyggð er um 14 hekt-
arar austan við Vífilsstaðaspít-
ala og liggur niður að Vífils-
staðavatni.
Í greinargerð með tillögu bæj-
arstjóra kemur fram að það hafi
verið vilji ríkisstjórnarinnar að
reisa hjúkrunarheimili á svæð-
inu. Á síðasta kjörtímabili hafi
bæjarstjórn Garðabæjar lagt til
að framtíðaruppbygging Land-
spítala - háskólasjúkrahúss yrði
á landi Vífilsstaða. Nú sé hins
vegar ljóst að svo verði ekki og
því sé mikilvægt að Garðabær
hugi að því hvernig skipuleggja
megi svæðið með sem farsælust-
um hætti fyrir Garðbæinga.
Bæjarstjóri Garðabæjar ræðir við ráðherra um kaup á landi Vífilsstaða:
Vill reisa nýja íbúða-
byggð og grunnskóla
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
Svæðið sem talið er að henti undir íbúða-
byggð er um 14 hektarar austan við Vífils-
staðaspítala og liggur niður að Vífilsstaða-
vatni.
GAGNRÝNA UMHVERFISMATIÐ
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor og doktor Ragnhildur Sigurðardóttir hafa gagnrýnt
harðlega hvernig umhverfismat er unnið.
„Í öllum aðal-
atriðum tel ég
að þessi mál
hjá okkur séu
í eðlilegum og
góðum farvegi
og lögin
standa ágæt-
lega undir
sínu“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Telur þú að brögðum hafi ver-
ið beitt í prófkjöri Sjálfstæðis-
manna í Norðvesturkjördæmi?
Spurning dagsins í dag:
Hvort telurðu prófkjör eða uppstillingu
vænlegri leið til að raða frambjóðend-
um á framboðslista?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
8,1%
58,9%
Nei
Já
SVIK OG PRETTIR
Meirihluti er sammála
Vilhjálmi Egilssyni og
telur að brögðum hafi
verið beitt í prófkjöri
Sjálfstæðismanna í
Norðvesturkjördæmi.
Veit ekki
32,9% 32,9%
Lánskjör Reykjavíkur:
Kaup OR
breyta engu
BORGARMÁL Kaup Orkuveitu
Reykjavíkur á ljósleiðarakerfi
Línu.nets fyrir 1,7 milljarð króna
hafa ekki áhrif á lánskjör Reykja-
víkurborgar.
Þetta kom fram í svari Önnu
Skúladóttur, fjármálastjóra
Reykjavíkurborgar, við fyrir-
spurn sjálfstæðismanna frá 22.
október, sem lagt var fram í borg-
arráði í gær.
Þar sem Reykjavíkurborg á
92,22% í Orkuveitunni vildu sjálf-
stæðismenn fá að vita hvort kaup-
in á ljósleiðarakerfinu hefðu áhrif
á lánskjör borgarinnar.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR
Kaup í ljósleiðarakerfi hafa engin áhrif.