Fréttablaðið - 13.11.2002, Side 6
6 13. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
ERLENT
Bókin sem slegið
hefur í gegn hjá öllu
áhugafólki um
náttúru Íslands.
„Mæla má eindregið
með bók þessari
handa þeim sem
vilja kynnast
öræfaslóðum.“
ÁHB í Mbl.
JÓLAGJÖF JEPPAFÓLKSINS!
Bókin í jeppann
METSÖLUBÓK!
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Samein-
uðu þjóðirnar kynntu á mánudag
grískum og tyrkneskum Kýpur-
búum tillögur að sameiningu eyj-
arhlutanna. Hugmyndin er sú að
stofnað verði sjálfstætt sam-
bandsríki að svissneskri fyrir-
mynd þar sem fullt jafnræði verð-
ur með tyrkneska og gríska hluta
eyjunnar.
Kýpur er eitt þeirra tíu
ríkja,sem vonast til þess að ganga
í Evrópusambandið árið 2004.
Búist er við því að Evrópusam-
bandið bjóði þessum ríkjum aðild-
arviðræður á leiðtogafundi í
Kaupmannahöfn 12. desember
næstkomandi.
Tyrkland hefur hótað því að
innlima norðurhlutann á Kýpur ef
eyjan fær aðild að Evrópusam-
bandinu áður en samkomulag
næst.
Grikkland hefur fyrir sinn hatt
hótað því að beita neitunarvaldi
gegn fjölgun aðildarríkja Evrópu-
sambandsins ef Kýpur fær ekki
aðild.
„Ég veit að þetta verður erfið
ákvörðun fyrir þá,“ sagði Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, eftir að hann af-
henti eyjarskeggjum tillögur sín-
ar í gær.
Utanríkisráðherra:
Styttist í
Halldór
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra er væntanlegur
aftur til starfa í utanríkisráðu-
neytinu í kring-
um næstu mán-
aðamót.
E k k e r t
verður af því
að utanríkis-
ráðherra flytji
Alþingi skýrslu
um utanríkis-
mál í haust eins
og ráðgert var.
S a m k v æ m t
starfsáætlun
Alþingis átti ut-
a n r í k i s r á ð -
herra að flytja
skýrslu um utanríkismál í þessari
viku og aðra undir lok febrúar.
Vegna veikindaleyfis ráðherra
var ljóst að ekki yrði hægt að fly-
tja skýrsluna á tilsettum tíma og
ekki gafst tími í dagskrá Alþingis
fyrir skýrsluflutninginn síðar á
haustþinginu. Því verður aðeins
um eina skýrslu að ræða þennan
þingvetur.
Hafnarfjörður:
Sex bíla
árekstur
UMFERÐ Sex bíla árekstur varð í
Hafnarfirði laust eftir klukkan
átta í gærmorgun. Tvær konur
voru fluttar á slysadeild en meiðsl
þeirra reyndust ekki alvarleg. Þá
kvartaði einn undan verkjum en
ákvað að leita sér læknishjálpar
sjálfur. Draga þurfti tvo bíla af
vettvangi.
Tildrög slyssins voru þau að bíl
var ekið suður Hafnarfjarðarveg
og hugðist ökumaður beygja inn í
Silfurtún. Í leiðinni fór hann í veg
fyrir bíl sem kom úr norðurátt.
Bandarísk skoðanakönnun:
Ánægja með
störf Bush
NEW YORK, AP Tveir af hverjum
þremur Bandaríkjamönnum eru
ánægðir með störf George W.
Bush Bandaríkjaforseta sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun. Sex
af hverjum tíu Bandaríkjamönn-
um eru ánægðir með störf hans í
efnahagsmálum og sex af hverj-
um tíu styðja hernaðaraðgerðir
gegn Írak. Fjórir af hverjum tíu
töldu að Bandaríkin ættu að ráð-
ast á Írak aðeins ef Sameinuðu
þjóðirnar gæfu leyfi til þess. 55%
svarenda sögðust myndu styðja
Bush í endurkjöri til forseta. Fjór-
ir af hverjum tíu sögðust aftur á
móti styðja fulltrúa frá Demókra-
taflokknum.
KJARNAÚRGANGUR FJARLÆGÐUR
Rússar hafa ákveðið að fjarlægja
allan kjarnorkuúrgang á Kola-
skaga og í nágrenni hans innan
sex ára. Einkum er geymt þarna
notað eldsneyti úr kjarnorkukaf-
bátum, sem hafa aðstöðu á Kola-
skaga.
GATES FJÁRFESTIR Bill Gates,
yfirmaður tölvufyrirtækisins
Microsoft, segir að Microsoft
ætli að fjárfesta á Indlandi fyrir
samtals 400 milljónir Bandaríkja-
dala næstu þrjú árin. Hluti fjár-
festingarinnar fer í að fræða
kennara og nemendur í ríkisskól-
um um tölvur.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Eigendur Eiða
á Héraði ætla að koma á fót lista-
setri á staðnum þar sem áður var
alþýðuskóli.
Hugmyndir eigendanna, Sig-
urðar Gísla Pálmasonar og Sigur-
jóns Sighvatssonar, verða form-
lega lagðar fyrir bæjarráð Aust-
ur-Héraðs í dag. Meðal helstu
hugmyndanna eru umhverfislista-
garður, menntasetur fyrir lista-
menn, sviðslistahús, vatnsgarður
og sumarbúðir fyrir íslensk börn
sem búsett eru erlendis.
„Menn eru almennt mjög
ánægðir með að þeir skuli vera
búnir að skila þessa gögnum eins
og þeim bar samkvæmt samn-
ingnum. Þetta eru mjög fram-
sæknar og jákvæðar hugmyndir,“
segir Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri. Bæjaryfirvöld hafa
mánuð til að kynna sér hugmynd-
irnar og Eiríkur segir að þau muni
væntanlega nýta sér þann frest.
Eiríkur segir hluta hugmynd-
anna hafa verið verðmerktan.
Framkvæmdaáætlun liggi þó ekki
fyrir.
„Í svona verkefni er sígandi
lukka best en þeir velta því fyrir
sér að koma þessu í framkvæmd
strax á næsta ári. Það hugnast
okkur að sjálfsögðu vel, enda mik-
ilvægt að þessi mannvirki fái aft-
ur þá stöðu sem þau eiga vissu-
lega skilið,“ segir Eiríkur.
KOFI ANNAN KYNNIR TILLÖGURNAR
Sameinuðu þjóðirnar leggja til að stofnað
verði sjálfstætt sambandsríki á Kýpur að
svissneskri fyrirmynd. Grískir og tyrkneskir
íbúar eyjunnar hafa deilt hart um yfirráðin
síðustu áratugi.
Tillögur að lausn Kýpurdeilunnar:
Sambandsríki að
svissneskri fyrirmynd
HALLDÓR ÁS-
GRÍMSSON
Fór í veikindaleyfi í
kjölfar aðgerðar um
miðjan síðasta mán-
uð.
SIGURJÓN SIGHVATSSON
Sigurjón Sighvatsson og Sigurður Gísli
Pálmason, eigendur Eiða á Héraði, vilja
meðal annars koma á fót umhverfislista-
garði að Eiðum.
Hugmyndir Eiðamanna lagðar fyrir bæjarráð
á Egilsstöðum í dag:
Bæjarstjórinn ánægður
með áformað listasetur
BAGDAD, WASHINGTON, AP Þingið í
Írak hafnaði í gær skilmálum
Sameinuðu þjóðanna um afvopn-
un og vopnaeftirlit. Skömmu áður
hafði sonur Sadd-
ams Husseins mælt
með því við þingið
að skilmálarnir
yrðu samþykktir.
Sjálfur hefur
Saddam Hussein þó
síðasta orðið. Hann
hefur frest fram á
föstudag.
Hvorki Banda-
ríkin né Bretar
hafa farið í grafgötur með það, að
farið verði með hernaði á hendur
Írak ef Saddam Hussein sam-
þykkir ekki ályktun Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Sömuleiðis
verði beitt hervaldi ef Írakar
reyna að villa um fyrir eða hindra
störf vopnaeftirlits Sameinuðu
þjóðanna.
Frakkar tóku í gær undir þess-
ar hótanir. Dominique de Villepin,
utanríkisráðherra Frakklands,
sagði ljóst að Saddam Hussein
þurfi að búa sig undir stríð ef
hann samþykkir ekki skilmála Ör-
yggisráðsins.
Nú er hins vegar beðið eftir því
að Saddam Hussein opinberi af-
stöðu sína til skilmála Öryggis-
ráðsins. Flestir virðast búast við
því að hann fallist á þá skömmu
áður en fresturinn rennur út. Að
sonur hans skyldi mæla með því
við þingið þykir staðfesta það.
Í ályktun Öryggisráðsins, sem
samþykkt var í síðustu viku, er
þess krafist að vopnaeftirlit Sam-
einuðu þjóðanna fái óheftan að-
gang að Írak, geti farið þar hvert
á land sem er og rætt við hvern
sem þurfa þykir.
Rússar og Frakkar fengu því
framgengt að ekkert ákvæði í
ályktuninni geti sjálfkrafa leitt til
stríðs. Engu að síður er í ályktun
Öryggisráðsins eitt ákvæði sem
Bandaríkjamenn gætu notað
hvenær sem er sem átyllu til þess
að fara í stríð gegn Írak.
Þar segir að Írakar megi ekki
„grípa til eða hóta fjandsamlegum
verknaði“ gegn starfsliði neins
aðildarríkis Sameinuðu þjóðanna
sem vinnur að því að „framfylgja“
einhverjum ályktunum Öryggis-
ráðsins.
Þetta orðalag getur sem hæg-
ast átt við um bandaríska og
breska herflugmenn sem sinna
eftirlitsflugi yfir flugbannsvæð-
um í sunnan- og norðanverðu
Írak. Sjaldan líða margir dagar án
þess að Írakar beini ratsjám sín-
um og loftvarnarvopnum að þessu
eftirlitsflugi.
Úrskurðar
Saddams beðið
Íraksþing hafnaði í gær ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Saddam Hussein hefur þó síðasta orðið. Í ályktuninni er ákvæði sem
Bandaríkjamenn gætu hvenær sem er notað til að réttlæta stríð.
Sjaldan líða
margir dagar
án þess að
Írakar beini
ratsjám sínum
og loftvarnar-
vopnum að
þessu eftirlits-
flugi.
ÞEIR MÓTMÆLTU ALLIR
Þrátt fyrir að sonur Saddams Husseins væri nýbúinn að mæla með því að skilmálar Samein-
uðu þjóðanna yrðu samþykktir ákváðu þingmenn í Írak að lýsa andstöðu sinni við það.
AP
/H
U
SS
EI
N
M
AL
LA
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 23
1.
2.
3.
Sturla Böðvarsson varð
efstur í umdeildu prófkjöri
Sjálfstæðisflokks í Norð-
vesturkjördæmi. Hvað fékk
hann hátt hlutfall atkvæða í
fyrsta sæti?
Hver er formaður nýrrar
rannsóknarnefndar vegna
flugslyssins í Skerjafirði?
Þrír bræður eru í landsliðs-
hópnum í fótbolta, Þórður,
Bjarni og Jóhannes Karl
Guðjónssynir. Með hvaða
knattspyrnuliðum leika
þeir?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.18 -0.34%
Sterlingspund 135.49 -0.48%
Dönsk króna 11.61 -0.71%
Evra 86.22 -0.69%
Gengisvístala krónu 129,23 0,1%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 259
Velta 6.454 milljónir
ICEX-15 1.308 -0,3%
MESTU VIÐSKIPTI
Skeljungur hf. 170.030.329
Pharmaco hf. 44.094.000
Eimskipafélag Íslands hf. 29.559.367
MESTA HÆKKUN
SR-Mjöl hf. 10,34%
Líf hf. 5,21%
Flugleiðir hf. 4,26%
MESTA LÆKKUN
Skeljungur hf. -2,74%
Baugur Group hf. -2,02%
Sæplast hf. -1,27%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8471,2 1,30%
Nsdaq*: 1350,7 2,40%
FTSE: 4080,8 1,60%
DAX: 3087,6 1,50%
Nikkei: 8464,8 0,10%
S&P*: 887,3 1,30%