Fréttablaðið - 13.11.2002, Síða 7

Fréttablaðið - 13.11.2002, Síða 7
7MIÐVIKUDAGUR 13. nóvember 2002 Umboðsaðili: Heildverslunin Rún, sími: 568 0656 Söluaðilar: Herra Hafnarfjörður • 66°N • Intersport • Guðsteinn Eyjólfsson Íslenskir Karlmenn • Herrahúsið • Bjarg, Akranesi • Lækurinn, Neskaupstað Hjá Siggu Þrastar, Ísafirði • Olíufélag útvegsmanna, Ísafirði • JMJ, Akureyri • Lónið, Höfn SKIPULAGSMÁL Heimilt verður að rífa Laugaveg 38 samkvæmt nýju deiliskipulagi sem nú er í vinnslu hjá Borgarskipulagi. Húsið við hliðina, Laugavegur 40, var rifið skömmu eftir bruna. Það riðlaði lítillega skipulagsvinnunni, sem þegar var farinn í gang. Jóhannes Kjarval, deildar- stjóri hjá Borgarskipulagi, segir að í sameiningu hafi timburhúsin tvö myndað litla heild innan um hærri byggingar úr steini. Þar sem þegar sé búið að fjarlægja Laugaveg 40 hafi skipulaginu ver- ið breytt þannig að einnig megi rífa húsið númer 38, en þar er skó- verslunin Ecco til húsa. Að sögn Jóhannesar er nú gert ráð fyrir því að fyrirhugaðar byggingar á þeim reit þar sem bruninn varð megi vera jafnháar og Laugavegur 36 og Laugavegur 40a, sem eru vandaðar steinbygg- ingar. Samkvæmt því mun nýting á reitnum aukast enda verða hinar nýju byggingar töluvert hærri en Laugavegur 40 var og Laugaveg- ur 38 er.  Breytt skipulag vegna brunans á Laugavegi: Einnig heimilt að rífa Laugaveg 38 LAUGAVEGUR Gert er ráð fyrir því að fyrirhugaðar bygg- ingar á þeim reit þar sem bruninn varð megi vera jafnháar og Laugavegur 36 og Laugavegur 40a, sem eru vandaðar stein- byggingar. VIÐSKIPTI Kaupþing ætlar að fækka hlutum í félaginu í hlut- fallinu 10 á móti 1. Það þýðir að tíföldun verður á gengi félagsins. Síðasta viðskiptagengi bréfa Kaupþings var 12,1 króna á hlut, en yrði eftir breytingu 121 króna á hlut. Þessi breyting er liður í undirbúningi undir skráningu Kaupþings á markað í Stokk- hólmi í lok mánaðarins. Þetta hefur ekki áhrif á verðmæti eign- ar í félaginu nema hjá þeim sem eiga hluti sem ekki standa á tug króna. Þá verður gengið leiðrétt upp á við og mun Kaupþing nota eigin bréf til að jafna bréf slíkra hluthafa. Hreiðar Már Sigurðsson hjá Kaupþingi segir þetta gert til þess að skráningargengi í sænsk- um krónum verði í eðlilegu sam- ræmi við markaðinn þar. „Það var annað hvort að gera þetta svona eða telja Seðlabankann á að taka núll aftan af krónunni.“ Hefði þessi breyting ekki verið gerð yrði gengi Kaupþings um það bil ein króna og 25 aurar á sænska markaðnum. Svo lágt gengi á hlut þykir ekki heppilegt.  Kaupþing stefnir að erlendri skráningu: Krónum breytt í tíkalla HLUTUM FÆKKAÐ Hlutum í Kaupþingi var fækkað í hlutfallinu 10 á móti einum. Þetta hefur ekki áhrif á verðmæti eignar hluthafa en er hentugt vegna skráningar í kauphöllinni í Stokkhólmi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.