Fréttablaðið - 13.11.2002, Page 10

Fréttablaðið - 13.11.2002, Page 10
10 13. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGURKÖRFUBOLTI TILÞRIF Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sýndi góð tilþrif er hann heimsótti körfuboltasýningu hjá Harlem Globetrotters um helgina. Dorrit Moussaieff var með í för og fylgdist af miklum áhuga með tilburðum forsetans. ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.00 Sýn Sportið 18.30 Sýn Golfstjarnan Sergei Garcia 19.00 Sýn Heimsfótbolti með West Union 19.15 Njarðvík Kjörísbikar kvenna 19.30 Sýn Meistaradeild Evrópu 19.30 Skjár 1 Mótor 20.00 Seljaskóli Kjörísbikar kvenna (ÍR - KR) 20.00 Digranes Esso deild karla (HK - Grótta/KR) 21.40 Sýn Meistaradeild Evrópu 22.15 RÚV Handboltakvöld 23.30 Sýn Sportið Handklæði & flíshúfur Flíspeysur m. Félagsmerkjum, flísteppi o.fl. Fáið sendan myndalista Myndsaumur Reykjavíkurvegur 62 220 Hafnarfjörður Sími 565 0488 www.myndsaumur.is JólatilboðÍ 12 árSérmerkt Peter Reid: Vill þjálfa írska lands- liðið FÓTBOLTI Peter Reid, fyrrverandi knattspyrnustjóri Sunderland, seg- ist hafa áhuga á að taka við sem næsti þjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu. Mick McCarthy sagði nýverið upp sem þjálfari liðsins vegna slæms gengis í undankeppni EM. Reid var rekinn frá Sunderland í síðasta mánuði eftir sjö ára starf hjá félaginu. John Aldridge, fyrrverandi leik- maður Liverpool, og Joe Kinnear hafa báðir lýst áhuga sínum á lands- liðsþjálfarastöðunni.  Leikmenn West Ham: Styðja Roeder FÓTBOLTI Gamla kempan Nigel Winterburn, varnarmaður í liði West Ham, segir að leikmenn liðsins standi fyllilega á bak við Glenn Roeder, knattspyrnustjóra liðsins. Liðið er í þriðja neðsta sæti ensku deildarinnar eftir 4:3 tap gegn Leeds á sunnudag. „Þið þurfið aðeins að horfa á leikinn gegn Leeds til að sjá að leik- mennirnir standa á bak við Glenn,“ sagði Winterburn. „Við vorum 4-1 undir en náðum að minnka muninn. Ég vona bara að Glenn fái nægan tíma til að snúa hlutunum við,“ sagði Winter- burn.  REID Peter Reid var rekinn frá Sunderland eftir sjö ára starf hjá félaginu. Newcastle held- ur í vonina Átta leikir fara fram í síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Newcastle verður að vinna Feyenoord í Rotterdam til að eiga möguleika á að komast áfram. Deportivo og Galatasary geta bæði kom- ist í næstu umferð, með sigrum gegn AC Milan og Barcelona. FÓTBOLTI Juventus, Manchester United, Bayer Leverkusen, AC Milan og Barcelona eru öll komin upp úr riðlakeppninni fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeildinni. Eftir tvo sigra í röð í Meistara- deildinni eftir slæma byrjun þarf enska liðið Newcastle á sigri að halda gegn hollenska liðinu Feyenoord í Rotterdam í E-riðli. Newcastle verður jafnframt að treysta á að Juventus vinni leik sinn gegn Dynamo Kiev, til að eiga möguleika á að komast áfram í keppninni. Feyenoord verður án nokkurra leikmanna, þar á meðal Pierre van Hooijdonk og Shinji Ono, japanska miðjumannsins, sem er í leikbanni. Laurent Ro- bert er meiddur og verður ekki í liði Newcastle. Dynamo Kiev getur aftur á móti tryggt sér sæti í næstu um- ferð með sigri gegn Juventus á Ítalíu. Í F-riðli tekur Manchester United á móti þýska liðinu Bayer Leverkusen á Old Trafford. Bæði lið eru komin áfram og hafa því að litlu að keppa. United vann fyrri leik liðanna 2:1 fyrir sjö vikum síðan. Spænska liðið Deportivo mætir AC Milan á San Siro í G-riðli. Deportivo þarf á sigri að halda til að tryggja sér sæti í næstu um- ferð. Tapi þeir eða geri jafntefli getur franska liðið Lens skotist fram út þeim með sigri gegn Bayern München. Talið er að AC Milan muni hvíla marga af sínum bestu leikmönnum gegn Deport- ivo, þar á meðal markaskorarann Filippo Inzaghi. Barcelona, sem er með fullt hús stiga í H-riðli, tekur á móti Galatasaray. Til að komast áfram verður tyrkneska liðið að vinna leikinn og treysta á að Club Brugge misstígi sig gegn Lokomotiv Moskvu í Rússlandi.  KÖRFUBOLTI Dallas Maverics er eina liðið sem enn hefur ekki tap- að leik í NBA-deildinni í körfu- bolta. Liðið vann sjöunda leik sinn í röð á mánudagskvöld gegn Portland Trailblazers með 82 stig- um gegn 73. Dirk Nowitzki átti stórleik í liði Dallas. Hann skoraði 26 stig auk þess sem hann tók 17 fráköst og stal boltanum sex sinnum. Michael Finney átti einnig góð- an leik og setti 21 stig og tók 8 frá- köst. Næsti leikur Dallas er á úti- velli gegn Cleveland í kvöld.  SHEARER Alan Shearer mun standa í ströngu í kvöld með Newcastle gegn hollenska liðinu Feyenoord. Hann skoraði sigurmarkið í síð- asta leik Newcastle í Meistaradeildinni gegn Dynamo Kiev. AP /M YN D LEIKIR KVÖLDSINS Dynamo-Juventus Feyenoord-Newcastle Man. Utd.-Leverkusen Olympiakos-M.Haifa Bayern-Lens Milan-Deportivo Barcelona-Galatasaray Lokomotiv-Club Brugge STAÐAN E-riðill: Juventus 5 10 Dynamo 5 7 Newcastle 5 6 Feyenoord 5 5 F-riðill: Man.Utd 5 12 Leverkusen 5 9 M.Haifa 5 6 Olympiakos 5 3 G-riðill: AC Milan 5 12 Deportivo 5 9 Lens 5 7 Bayern 5 1 H-riðill: Barcelona 5 15 Club Brugge 5 5 Galatasaray 5 4 Lokomotiv 5 4 NOWITZKI Dirk Nowitzki, leikmaður Dallas, brýst framhjá Rasheed Wallace í viðureigninni gegn Portland. Nowitzki skoraði 26 stig í leiknum. AP /M YN D Dallas Mavericks: Sjö sig- urleikir í röð David Beckham verður vænt-anlega í eldlínunni í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Bayer Leverkusen í lokaum- ferð Meistaradeildar Evrópu. Beckham fékk frí úr vinnunni eftir að upp komst um ráðagerðir um að ræna konu hans Victoriu. Hann lék ekki með liðinu þegar það steinlá í nágrannaslag við Manchester City, 3-1. Þýsku liðin 1860 München ogWolfsburg keppast nú um að bjóða í tékkneska landsliðsmann- inn Patrik Berger, leikmann Liverpool. Umboðsmaður Tékk- ans hefur átt í viðræðum við Liverpool og segir að skjólstæð- ingur sinn sé ekki á leið í þýsku Bundesliguna. Berger hefur ekki fengið mörg tækifæri með Liver- pool á þessu tímabili. MOLAR Pantið jólavörurnar núna Kays Argos - þægilegt og hagkvæmt Ódýrar vörur og útsala í versluninni Austurhrauni 3, Garðabæ, s. 555 2866

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.