Fréttablaðið - 13.11.2002, Side 16

Fréttablaðið - 13.11.2002, Side 16
Þann 28. janúar verða endurútgefn-ar fyrstu fjórar breiðskífur hljómsveitarinnar The Red Hot Chili Peppers. Skífurnar heita „Red Hot Chili Peppers,“ „Freaky Styley,“ „ The Uplift Mofo Party Plan,“ og „Mother´s Milk.“ Auk þess að vera endurhljóðblandað- ar verður þar að finna fjölda auka- laga sem sjaldan hafa heyrst áður. Söngkonunni Kylie Minogue er illavið raunveruleikasjónvarpsþætti og segir þá „hryllilega.“ Þættirnir hvetji ungdóminn til að leita eftir frægð í stað þess að einbeita sér að því að leita að hæfileikaríku fólki með metnað. „Frægð var eitt sinn eitthvað sem fylgdi aukalega með í kaupunum. Nú virðist frægðin sjálf skipta öllu máli en engu máli skiptir hins vegar fyrir hvað fólk er frægt.“ Rapparanum Eminem gengur allt íhaginn þessa daga. Nýjasta breið- skífa hans, „The Eminem Show“, er á lista yfir þær 10 vinsælustu í Banda- ríkjunum og skífa með lögum úr nýj- ustu kvikmynd hans, „8 Mile“, er í efsta sæti vinsælda- listans, auk þess sem myndin sjálf er í efsta sæti yfir að- sóknarmestu kvik- myndir Bandaríkj- anna. Tekjur af myndinni námu um 4,6 milljörðum króna fyrstu sýning- arhelgina. Er það næst tekjuhæsta frumsýningarhelgi kvikmyndar sem er stranglega bönnuð börnum, fyrr og síðar í Bandaríkjunum. Leikarinn John Cleese er sagðurvera önnum kafinn við skriftir á gamansamri myndasögu um Súper- man. Sagan kallast „True Brit“ og fjallar um það þegar geimflaug Ofur- mennisins lendir á Englandi og æsifréttablöð hrekja hann á brott frá landinu. Þetta mun vera fyrsta myndasaga Cleese. 16 13. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR MR. DEEDS kl. 4 og 6 HALLOWEEN kl. 8 og 10 STUART LITTLI kl. 4 ROAD TO PERD... kl. 5, 7.30 og 10 ROAD TO PERD... kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 kl. 6FÁLKAR THE BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.10 RED DRAGON kl. 5.45, 8 og 10.15Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6 og 8 YA YA SISTERHOOD kl. 6 VIT455 UNDERCOVER BROTHER 4, 6, 8, 10.10 VIT448 HAFIÐ kl. 3.40, 5.50 og 8 VIT453 MAX KLEEBLE´S.. kl. 4 VIT441 INSOMNIA kl. 10.10 VIT444 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT 461Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 474 Sýnd kl. 4, 6 og 10.10 VIT 475 kl. 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ kl. 10.10PORNSTAR-RON JEREMY TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Ívar Bjarklind hefur orðið Íslandsmeist- ari í knattspyrnu bæði með ÍBV og KR. Það kom því mörgum á óvart þegar hann tilkynnti á sínum tíma að hann væri hættur boltasparkinu. „Áhuginn dó bara hægt og rólega út. Ég var orðinn þreyttur á því að gera alltaf sama hlutinn,“ segir Ívar. „Það er svo mikil einstefna sem maður þarf að lifa eftir. Það hefði hugsanlega verið hægt að setja allt í botn, koma sér út og æfa við al- mennilegar aðstæður. Það bara heill- aði mig ekki. Ég var bara búinn að fá nóg. Í huganum hætti ég sumarið 1999 en fór samt aftur í boltann næstu tvö sumur. Aðallega af fjár- hagslegum ástæðum. Þá var ég bú- inn að ákveða að hætta.“ Ívar segir að mönnum gefist ekki tími til þess að einbeita sér að neinu öðru eftir að hafa skuldbundið sig fótboltaliði. Leikurinn skilji enga orku eftir fyrir sköpun. „Fótboltinn tekur fáránlega stóran hluta af líf- inu. Ég var alltaf þreyttur og dofinn. Vildi bara horfa mikið á sjónvarp.“ Ívar byrjaði að fikra sig áfram í lagasmíðum um tvítugt. Hann keypti sér hljóðkort í tölvuna sína en tímaleysið varð til þess að brenn- andi áhuginn fékk ekki nægilegt eldsneyti. Ívar fékk fyrst smjörþef- inn af tónlistarbransanum þegar hann söng ÍBV-lagið 1996 og næst þegar hljómsveitin Mír gaf út lagið „Upphaf og endir“ á safnplötunni „Svona er sumarið 2000“. Gítarinn og hljóðkortið fengu loksins langþráða athygli Ívars eftir að takkaskórnir voru komnir á hill- una og síðan hefur hann legið í laga- smíðum ásamt tvíburunum Ómari og Unnari. Nú er fyrsta breiðskífan, „Tilraunaraun“, komin í hillurnar. Ívar passar sig þó á að vera ekki of sókndjarfur í upphafi leiktímabils, setur sér langtímamarkmið og kýs frekar að styðjast við kerfi 5-4-1 en að láta mótherjana fella sig strax úr leik. „Þetta er náttúrulega fyrsta plat- an mín og ég held að það heyrist al- veg. Ég heyri það að minnsta kosti. Ég lærði alveg rosalega mikið af þessu, aðallega hvað varðar laga- smíðar og hvað hentar minni rödd. Ég er búinn að velja mér farveg núna og veit í hvað átt ég stefni.“ Mír heldur útgáfutónleika á Grand Rokk á föstudagskvöld. biggi@frettabladid.is Leikkerfi 5-4-1 FRÉTTIR AF FÓLKI KVIKMYNDIR Þeir sem vonast eftir að sjáæsandi ástarsenur tveggja les- bískra kvenna í myndinni „Kissing Jessica Stein“ gætu orðið fyrir vonbrigðum. Hina, sem vilja sjá ágætis afþreyingu og fá smá slettu af eilífðarvangaveltunni um kyn- hvöt mannskepnunnar í leiðinni ætti þessi mynd að hitta. Hún er svo vitanlega krydduð fyndnum samtölum og neyðarlegum aðstæð- um sem samkynhneigt fólk ætti flest að kannast við. Söguþráðurinn er í raun fyrir- sjáanlegur. Það er líka augljóst að myndin er gerð af áhugafólki þar sem hljóðneminn sést gægjast inn á tjaldið tvisvar í myndinni. Það sem bjargar myndinni er sannfær- andi leikur og skemmtilegar per- sónur. Til dæmis fylgdist ég af að- dáun með vinkonunni Joan (leik- inni af Jackie Hoffman) sem hlýtur að hafa einn stærsta munn sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Senan þegar móðir Jessicu Stein ákveður að viðurkenna samkynhneigð dótt- ur sinnar er með betur leiknum at- riðum sem ég hef séð í bíó. Það var líka gaman að vera í bíó umvafinn konum sem héldust í hendur, pikkuðu hvor í aðra og flissuðu að sameiginlegum endur- minningum þegar kunnugleg atriði birtust á skjánum, hölluðu höfðum sínum saman og kysstust leyni- kossum á milli atriða. Birgir Örn Steinarsson KISSING JESSICA STEIN: Sæta lesbíu- myndin O D D I H F I9 96 3 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík Sími 520 3000 www.sminor.is Ljós í miklu úrvali fyrir heimilið. FUNDIR 12.00 Kvennasögusafn Íslands stendur fyrir bókakynningu í fyrirlestarsal Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð. 12.00 Hafþór Guðjónsson flytur erindið Nám og tunga. Fyrirlesturinn er í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og er öllum opinn. 12.05 Í málstofu sálfræðiskorar flytja Sólveig Ásgrímsdóttir, Dipl. Psych., formaður Sálfræðingafélags Íslands, og Ingi Jón Hauksson, Cand. Psykol., framkvæmdastjóri SÍ og Stéttarfélags sálfræðinga á Íslandi, erindið Sálfræðingafélag Íslands og Stéttarfélag sálfræðinga á Ís- landi. Málstofan er haldin í stofu 201 í Odda og er öllum opin. 20.00 Ólafía Aðal- steinsdóttir kynnir leið- angur nokk- urra Íslend- inga á Kilimanjaro, hæsta tind Afríku, þar sem fjöl- breytilegt mannlíf og náttúra skarta sínu fegursta. Sýningin er í Ferðafélagssalnum, Mörkinni 6. Aðgangseyrir er 500 kr. 12.15 Stefán Már Stefánsson flytur fyr- irlestur um framtíðarskipan Evr- ópusambandsins í stofu L-101 í Lögbergi á vegum Lagastofnun- ar Háskóla Íslands. Fyrirlestur- inn er opinn öllum. 12.30 Háskólatónleikar verða í Nor- ræna húsinu. Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari leikur verk eftir David Ellis, Karólínu Eiríksdóttur og Óliver Kentish. Aðgangseyrir er kr. 500 en ókeypis er fyrir hand- hafa stúdentaskírteina. 16.00 Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt flytur erindið Tilgátan um Korp- úlfsstaði að Aragötu 14. MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER hvað? hvar? hvenær? Forsprakki hljómsveitarinnar Mír, Ívar Bjarklind, hefur nú þegar fórnað færi á atvinnumennsku í knattspyrnu til þess að elta drauma sína. Fyrsta breiðskífan, „Tilraunaraun“, er komin í búðir. MÍR Ívar Bjarklind við Gróttu ásamt tvíburunum Ómari og Unnari. Ívar segir tilfinninguna að sanna sig vera mjög sterka. Hann segir ein- nig að lög hans séu helst leikin á Rás 2 eftir íþróttafréttirnar. „Mér finnst það svolítið leiðinlegt,“ segir Ívar og brosir. „Þá eru dag- skrárgerðarmennirnir að reyna að tengja við fortíð mína“. Hann vonast þó til að áhugasamir boltamenn gefi plötunni séns. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Síðumúla 3-5 H e r r a n æ r f ö t

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.