Fréttablaðið - 13.11.2002, Síða 22
22 13. nóvember 2002 MIÐVKUDAGUR
HÚSIÐ
Garðastræti 41 var hannað afSigurði Guðmundssyni fyrir
útgerðar- og stjórnmálamanninn
Ólaf Thors árið 1929. Húsið var
fyrsta funkisíbúðarhús sem reist
var á Íslandi og var því hannað
með notagildi og þægindi að leið-
arljósi. Form þess var upphaf-
lega einfalt og teningslaga, vegg-
fletir sléttir og án skreytis. Þakið
var flatt og á því þakhýsi og sól-
verönd með járnhandriði.
Gluggaskipan var ósamhverf og
tók mið af innra skipulagi sem þó
var heldur hefðbundnara en ytra
byrði hússins gaf tilefni til. Húsið
var stækkað töluvert á 7. ára-
tugnum og missti þá að mestu sín
fyrri stíleinkenni. Því má segja
að það hafi orðið velmegun eftir-
stríðsáranna að bráð. Það sama á
reyndar við um fjölmörg funkis-
hús í Reykjavík sem hönnuð voru
á kreppuárunum. Garðastræti 41
hýsti um árabil Vinnuveitenda-
samband Íslands.
Nám fram yfir jeppa
60 ÁRA Sigurlína Davíðsdóttir,
lektor við Háskóla Íslands, er
sextug í dag. Í tilefni dagsins ætl-
ar hún að bjóða vinum og kunn-
ingjum til veislu í Safnaðarheim-
ili Fríkirkjunnar, að Laufásvegi
13, frá klukkan 17 til 19. „Ég veit
nú ekki hvað koma margir. Ég
hef ekki hugmynd um það. Fólk
lítur sennilega við á leið heim úr
vinnunni,“ segir afmælisbarnið.
Sigurlína ólst upp að Sellátr-
um á Tálknafirði en fór ung til
Reykjavíkur. Hún lauk verslun-
arprófi 1961 og fór þá út á vinnu-
markaðinn og hóf barnauppeldi.
Sigurlína hefur unnið við ýmis
skrifstofustörf í gegnum árin.
Hún vann í sjö ár hjá Almanna-
vörnum ríkisins, þrjú ár á með-
ferðarheimili SÁA að Staðarfelli
og kenndi í sex ár að Laugum í
Sælingsdal. Þá lá leiðin í Háskóla
Íslands þar sem hún lagði stund á
sálfræði. „Ég vissi að ég ætti
langan tíma eftir á vinnumarkað-
inum og mig langaði til að eyða
honum í eitthvað sem mér þætti
skemmtilegt. Mér fannst það
meira virði en að eiga fínan
jeppa og hafa húsið mitt fínt,“
segir Sigurlína hlæjandi þegar
hún var spurð hví hún hefði tekið
upp á því að fara í nám. „Ég sé
ekkert eftir því. Hver veit nema
ég eignist jeppa seinna.“
Sigurlína segist hafa fengið
mikinn stuðning frá fjölskyld-
unni þegar hún ákvað að fara í
nám. Hún var ekki langelst í
skólanum. „Það var hópur sem
var fullorðinn en við vorum
miklu færri. Ég eignaðist mjög
góða vini meðal yngra fólksins
og mér fannst þetta mjög
ánægjulegur tími.“
„Það hefði kannski verið auð-
veldari leið að fara ekki í nám því
ég gat fengið ágæta vinnu þar
sem ég var með verslunarpróf.
Mig langaði ekki að vinna lengur
við það sem verslunarprófið gaf
mér réttindi til og ákvað að taka
stökkið. Ég sé alls ekki eftir því.“
Sigurlína hefur kennt uppeldis-
og menntunarfræði við Háskól-
ann frá árinu 1995 og varð lektor
árið 1998. „Mér finnst þetta
skemmtilegt starf og ég er
ánægð hér.“
kristjan@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
Þórður Guðjónsson, knatt-spyrnumaður af Akranesi, er
aftur kominn í landsliðshóp Ís-
lands eftir eins og hálfs árs fjar-
veru. Í landsliðinu hittir hann
fyrir yngri bræður sína, Bjarna
og Jóhannes Karl. Þórður segist
ekki vita til þess að margir bræð-
ur hafi spilað með landsliði á
sama tíma. „Ég hafði heyrt af því
að Felixsynirnir hefðu einhvern
tímann verið saman í landsliðinu
en það var víst ekki opinber leik-
ur.“
Þórður er 29 ára og alinn upp á
Akranesi. Hann er sonur Guðjóns
Þórðarsonar, fyrrverandi lands-
liðsþjálfara í knattspyrnu. „Ég
held ég hafi verið mjög fjörugur.
Við brölluðum þó ansi mörg
prakkarastrik og fórum vítt og
breitt um Skagann, í sements-
verksmiðjuna og hafnargarðinn.
Boltinn var þá ekki alltaf með,“
segir Þórður en vill þó ekki gefa
upp hvað þeir félagar gerðu af
sér.
Þórður er útskrifaður úr Fjöl-
brautaskóla Vesturlands og lék
knattspyrnu með ÍA til ársins
1993. Haustið eftir hóf hann at-
vinnumannsferil sinn með Boch-
um í Þýskalandi, þar sem hann
var í fjögur ár. Síðan lá leiðin til
Genk í Belgíu, þar sem hann lék
með yngri bræðrum sínum.
„Þetta er einn eftirminnilegasti
tími minn sem knattspyrnumað-
ur því ég vann mikið af titlum og
stóð mig mjög vel. Það er það
sem stendur upp úr á ferlinum,
það sem af er komið,“ segir Þórð-
ur. Hann færði sig um set til
Kanaríeyja og lék með Las
Palmas. Það gekk þó ekki jafn vel
og hann hafði vonast eftir og
fékk hann lítið að spreyta sig.
Hann var lánaður í tvígang í
ensku deildina, fyrst til Derby
County og síðan til Preston. Nú er
hann kominn aftur til Bochum,
þar sem hann hóf atvinnumanna-
ferilinn.
„Það má segja að maður sé
kominn aftur heim. Ég er að
verða búinn að loka hringnum.
Hver veit nema ég endi hjá ÍA.“
Þórður Guðjónsson er aftur kominn
í íslenska landsliðið í knattspyrnu
eftir eins og hálfs árs hlé. Hann
ætlar að nýta sér tækifærið.
Áfangi
Fjörugur prakkari með bolta
SIGURLÍNA DAVÍÐSDÓTTIR
Sigurlína Davíðsdóttir er gift Ragnari Inga Aðalsteinssyni og eiga þau einn son. Hún á
þrjú börn frá fyrra hjónabandi og Ragnar á einnig son fyrir. Sigurlína hefur meðal ann-
ars verið viðloðandi Krýsuvíkursamtökin frá stofnun þeirra og er nú formaður þeirra.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki
verður leyft að skila atkvæðaseðlum í
strætisvögnum í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Leiðrétting
Spekingur og einfeldningurlentu hlið við hlið í rútu. Spek-
ingurinn ákvað að hafa gaman að
einfeldningnum og stakk upp á að
þeir færu í spurningaleik. „Ég
spyr spurningar og þú borgar mér
100 kall ef þú getur ekki svarað.
Þú spyrð mig og ég borga þér
1000 kall ef ég get ekki svarað. Þú
byrjar.“
„Hvað hefur þrjá fætur, klifrar
upp í tré á 10 klukkutímum og nið-
ur aftur á 10 sekúndum?“ spurði
einfeldningurinn. Spekingurinn
lenti í standandi vandræðum og
um leið og rútan rann inn á BSÍ
sagði hann: „Ég veit ekki svarið.
Hér færðu 1000 kall og svo spyr
ég þig: Hvað hefur þrjá fætur,
klifrar upp í tré á 10 klukkutímum
og niður aftur á 10 sekúndum?“
„Ég veit það ekki heldur,“ svar-
aði einfeldningurinn um leið og
hann rétti spekingnum 100 kall.
Sigurlína Davíðsdóttir, lektor við Háskóla Íslands og fyrrverandi
sjónvarpsþula, er sextug í dag.
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT:
1 taflmann, 2 hræðslu, 3 hlífðarfat , 4 tréð, 5 steig, 6 hnjóð, 7 fjall , 8 ang-
aði, 11 tifi, 14 rolla, 16 kostur, 18 sólarhringa, 20 æviskeiðið, 21 heppnast, 23
námsgreininni, 26 ánægju, 28 tuska, 30 skelin, 31 karlmannsnafn, 33 blundur.
LÁRÉTT:
1 hól,
4 óð,
9 spil,
10 eyktamark,
12 bækling,
13 veiki,
15 álíta,
17 topp,
19 hagnað,
20 áform,
22 hindri,
24 ljósta,
25 gagna,
27 ær,
29 kroppaði,
32 vesala,
34 eljusöm,
35 ferilinn,
36 yfirþyrmi,
37 eirði.
LAUSN á síðustu krossgátu: LÁRÉTT: 1 nösk, 4 krafts, 9 kaleika, 10 stoð, 12
innyfli, 13 kapall, 15 rati, 17 lauf, 19 sáð, 20 stólu, 22 letri, 24 mar, 25 glói, 27
árar, 29 annast, 32 gátu, 34 nutu, 35 afundið, 36 tónaði, 37 gauk. LÓÐRÉTT: 1
nísk, 2 skop, 3 kaðall, 4 keilu, 5 rið, 6 akur, 7 fatast, 8 skeiði, 11 tautar, 14 laug,
16 tárast, 18 flón, 20 smábát, 21 óragan, 23 einnig, 26 launi, 28 ráfa, 30 auða,
31 tusk, 33 tuð.
ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON
Hefur staðið sig frábærlega með Bochum í
þýsku úrvalsdeildinni. Hann er giftur Önnu
Lilju Valsdóttur. Þau eiga tvær dætur, Val-
dísi átta ára og Veróníku fimm ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JARÐARFARIR
13.30 Jón Sigurðsson, fyrrverandi kaup-
maður í Straumnesi, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju.
13.30 Kristín J. Ingimarsdóttir, Bakka-
stöðum 161, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
AFMÆLI
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykjavík, er sjötug.
Sigurlína Davíðsdóttir sálfræðingur er
sextug.
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir er
46 ára.
ANDLÁT
Jón Kristján Kjartansson, Kirkjuteigi 9
og Tjaldanesi, lést 10. nóvember.
Jónas E. Nordquist, Espigerði 4, lést 10.
nóvember.
Kristín Hólmfríður Kristinsdóttir lést
10. nóvember.
Guðrún Ágústa Sigurðardóttir, Gull-
smára 11, Kópavogi, lést 9. nóvember.
Laufey Valdimarsdóttir Snævarr, Dal-
braut 27, Reykjavík, lést 9. nóvember.
Sigurður Jóhannesson, múrarameistari,
lést 9. nóvember.
Björn Húni Ólafsson, Urðarvegi 54, Ísa-
firði, lést 8. nóvember.
Gestur Jónsson, loftskeytamaður, Ljós-
heimum 18a, Reykjavík, lést 8. nóvem-
ber.
Kristján Grétar Sigurðsson, Valhúsa-
braut 29, Seltjarnarnesi, lést 8. nóvem-
ber.
Rögnvaldur Jónsson frá Marbæli,
Skarðshlíð 14A, Akureyri, lést 8. nóvem-
Þjóðvaki sneri aftur í próf-kjöri Samfylkingar í Reykja-
vík og vann glæstan sigur.
Reyndar gæti farið svo að efstu
sæti á lista Samfylkingar í
Reykjavík suður verði eins
skipuð og á lista Þjóðvaka fyrir
þingkosningarnar 1995, Jóhanna
Sigurðardóttir í efsta sæti og á
eftir henni Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir og Mörður Árna-
son. Í fjórða sætinu verður svo
líklega Ágúst Ólafur Ágústsson,
sonur Ágústs Einarssonar, þing-
manns Þjóðvaka úr Reykjanes-
kjördæmi.
FÓLK Í FRÉTTUM