Fréttablaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 6
6 16. nóvember 2002 LAUGARDAGUR VIÐSKIPTI VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Íslensk kona er við hjálpar- störf á Vesturbakkanum. Hvað heitir hún? Nýr eigandi er að flytja inn í gamla Borgarbókasafnið. Hver er það og hvers lenskur er hann? Hvað heitir næsti forseti Kína? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 85.59 0.26% Sterlingspund 135.1 -0.30% Dönsk króna 11.57 -0.01% Evra 85.89 -0.03% Gengisvístala krónu 128,30 -0,23% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 228 Velta 5.470 m ICEX-15 1.315 0,44% Mestu viðskipti Vátryggingafélag Ís. hf. 3.371.812.500 Flugleiðir hf. 84.656.117 Eimskipafélag Íslands hf. 25.526.718 Mesta hækkun Íslenskir aðalverktakar hf. 8,06% Íslandssími hf. 4,48% Össur hf. 2,02% Mesta lækkun Íslenska járnblendifélagið hf. -23,08% Marel hf. -4,14% Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. -4,00% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8488,2 -0,60% Nsdaq*: 1391,6 -1,40% FTSE: 4085,4 0,80% DAX: 3166,1 -0,70% Nikkei: 8503,6 2,40% S&P*: 898,3 -0,70% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Rúmeninn Sándor Pál: Farinn af landinu HÆLI Rúmeninn Sándor Pál, sem hingað kom til lands sem hælisleit- andi og fór í hungurverkfall í þrjá- tíu og einn dag, er farinn af landinu. Þórir Guðmundsson, upplýsinga- fulltrúi Rauða kross Íslands, segir Sándor hafa tjáð sig um að hann vildi fara af landi brott en hefði ekki útskýrt af hverju. Sándor hefði flogið til Amsterdam síðast- liðinn laugardag. Sándor hafði hitt fulltrúa Út- lendingaeftirlitsins, sem fullviss- uðu hann um að mál hans væri til skoðunar, en hann kaus að bíða ekki eftir úrskurði í málinu.  MINNKANDI TAP Tap Sláturfélags Suðurlands janúar til september 2002 var 14,5 milljónir. Á sama tíma í fyrra var 103 milljón króna tap. Bætt afkoma stafar fyrst og fremst af lækkun fjármagnsgjalda vegna gengishækkunar krónunnar. RÍKISSJÓNVARPIÐ Von á nýjum fréttastjóra. Útvarpsráð: Fréttastjóri á þriðjudag FJÖLMIÐLAR Sjö umsækjendur um stöðu fréttastjóra Ríkissjónvarps- ins hafa verið kallaðir til viðtals við sérfræðinga ráðningarstof- unnar Mannafls, sem sá um að auglýsa og ganga frá umsóknum um stöðuna. Gert er ráð fyrir að skýrsla ráðningarstofunnar um umsækjendurna verði send yfir- stjórn Ríkisútvarpsins á allra næstu dögum: „Þetta er enn í vinnslu en stefnt er að því að leggja umsókn- irnar fyrir á fundi útvarpsráðs næstkomandi þriðjudag,“ segir Guðbjörg Jónsdóttir, starfs- mannastjóri Ríkisútvarpsins.  ORKUVEITA „Það er ófært að fólk í Dölum þurfi að bera þessar slig- andi skuldir og ég tel fráleitt að velta þessum vanda yfir á við- skiptavini Orkubús Vestfjarða,“ segir Kristinn H. Gunnarsson al- þingismaður um þær hugmyndir að Orkubú Vestfjarða yfirtaki Hitaveitu Dalamanna. Eins og Frétta- blaðið greindi frá í gær hefur fram- k v æ m d a s t j ó r a Orkubúsins verið falið að kanna hagkvæmni þess að sameina orkufyrirtækin tvö. Hitaveita Dalamanna glímir við erfiða skuldastöðu og einsýnt er að að- stoð þurfi að koma til. Hitaveitan var vígð fyrir um ári síðan. Í upphafi var áætlað að framkvæmdin kostaði 80 milljón- ir króna en kostnaðurinn fór 100 milljónir króna fram úr áætlun. Dalabyggð er í ábyrgðum fyrir þeim skuldum en einsýnt þykir að fyrirtækið ráði engan veginn við að leysa þann vanda. Undanfarna mánuði hefur verið róinn lífróður í því skyni að létta bagganum af sveitarfélaginu. „Sveitarfélagið getur ekki borið þennan vanda eitt og það verður að koma til op- inber fyrirgreiðsla,“ segir Krist- inn. Í febrúar á þessu ári lagði sveitarstjórn Dalarbyggðar til lausn með hlutafjáraukningu sem fólst í því að sveitarfélagið legði fram 25 milljónir króna, Byggða- stofnun 15 milljónir, RARIK 20 milljónir króna, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 20 milljónir króna og Iðnaðarráðuneytið 20 milljónir króna með stofnstyrk. Byggða- stofnun samþykkti að leggja fram 10 milljónir króna, gegn því að eigendurnir tryggðu nýtt hlutafé annars staðar og RARIK sam- þykkti að leggja fram 10 milljónir sem hlutafé en fjármálaráðuneyt- ið hafnaði með þeim rökum að ekki væri grundvöllur fyrir þess- um rekstri. Kristinn hefur efa- semdir við að leysa málið með sameiningu við Orkubúið og velta skuldum hitaveitunnar þannig yfir á Vestfirðinga. „Vandi Hitaveitu Dalamanna kom á mitt borð sem stjórnarfor- manns Byggðastofnunar. Greini- legt var að kostnaður við fram- kvæmdir var langtum meiri en áætlað var. Ég vísa í því efni á Magnús Stefánsson, stjórnar- mann í Hitaveitunni, sem þar sit- ur fyrir hönd Byggðastofnunar,“ segir Kristinn. rt@frettabladid.is KRISTINN H. GUNNARSSON Fráleitt að velta vandanum yfir á Vestfirðinga. Hitaveita Dalamanna í skuldakreppu Fjármálaráðuneytið hafnaði því að RARIK legði fram hlutafé. Fráleitt að velta vandanum yfir á Vestfirðinga, segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður Undanfarna mánuði hefur verið róinn líf- róður til að létta baggan- um af sveitar- félaginu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI DÓMSMÁL Landsbanki Íslands hef- ur verið dæmdur til að greiða þrotabúi fyrirtækisins Víkurafls 842 þúsund krónur. Upphæðin var tekin út af bankareikningum fyr- irtækisins eftir að það var tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptastjóri þrotabús Víkur- afls sendi bönkum tilkynningu 27. september í fyrra um gjaldþrota- skiptin og krafðist þess að lokað yrði fyrir allar útborgarnir af reikningum Víkurafls. Þrátt fyrir þetta tókst konu, sem var fyrrverandi fjármála- stjóri í Víkurafli, að taka peninga þrívegis út af reikningi fyrirtæk- isins í Landsbankanum í Keflavík. Peningarnir voru greiðsla ann- ars fyrirtækis til Víkurafls. Kon- an tók þá jafnóðum út og lagði inn á reikninga tveggja manna sem störfuðu fyrir Víkurafl og á reikn- ing lögmannsstofu fyrirtækisins. Héraðsdómur Reykjavíkur segir vörn Landsbankans um að konan hafi verið meðeigandi Vík- urafls að umræddum reikningi ekki standast. Eftir að konan hafði í tvígang tekið út af reikningum sagði bankinn skiptastjóra að það hafi verið mistök sem ekki myndu endurtaka sig. Konunni tókst þó að taka út af reikningnum þriðja sinni tveimur vikum síðar.  Landsbankinn dæmdur til að greiða úttekt: Trassaði að loka reikningi þrotabús PEKING, AP Þótt Jiang Zemin hafi látið af leiðtogaembætti kín- verska Kommúnistaflokksins ætl- ar hann engan veginn að sleppa tökum á völdunum þar í landi. Hann verður áfram yfirmaður kínverska herráðsins, sem veitir honum æðstu völd yfir 2,5 millj- ónum hermanna í kínverska al- þýðuhernum. Á nýliðnu þingi kínverska Kommúnistaflokksins urðu samt miklar breytingar á forystusveit bæði flokksins og hersins. Allir gömlu byltingarjálkarnir hans Mao Zedongs, að undanskildum Jiang Zemin, hafa nú sagt skilið við stjórnmálin. Einungis þriðjungur fráfar- andi framkvæmdastjórnar Kommúnistaflokksins situr áfram í nýkjörinni framkvæmdastjórn. Og í fastanefnd framkvæmda- stjórnarinnar, sem fer í raun með æðstu völd í landinu, situr aðeins einn áfram úr fráfarandi fasta- nefnd. Hu Jintao, sem tók við af Jiang sem flokksleiðtogi og tekur vænt- anlega við forsetaembætti lands- ins í mars á næsta ári, var aftur á móti endurkosinn varaformaður kínverska herráðsins. Hann verð- ur því næstráðandi hersins á eftir Jiang Zemin.  Mikil umskipti hafa orðið á æðstu valdastjórn Kína: Jiang Zemin stjórnar áfram hernum NÍU MANNA FASTANEFND FRAM- KVÆMDASTJÓRNAR KÍNVERSKA KOMMÚNISTAFLOKKSINS Þessi níu manna nefnd er sú stofnun sem í raun fer með æðstu völd í Kína. Hu Jin- tao, nýkjörinn leiðtogi Kommúnistaflokks- ins, stendur lengst til vinstri og veifar til fé- laga sinna. Hinir eru, frá vinstri talið, Wu Bangguo, Wen Jiabao, Jia Qinglin, Zeng Qinghong, Huang Ju, Wu Guanzheng, Li Changchun og Luo Gan. LANDSBANKI ÍSLANDS Landsbankinn lokaði ekki reikningi þrota- bús fyrir fyrrverandi starfsmanni og hefur verið dæmdur til að greiða 842 þúsund króna úttektir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.