Fréttablaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 13
13LAUGARDAGUR 16. nóvember 2002 auka þjóðarframleiðsluna og stækka kökuna til að við getum staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru til okkar. Það vantar ekki kröfurnar, hvort sem það er í heilbrigðismálum, menntamálum eða hvar sem er. Við viljum góða opinbera þjónustu. Eina leiðin til að borga hana, án þess að setja okkur í stórkostlegar skuldir og vandræði, er að afla tekna og þá er spurningin hvernig er skyn- samlegast að gera það. Þá stefnu sem ég er að lýsa tel ég vera besta í þeim efnum.“ Hinir ráðherrarnir hringja oftar Sjálfstæðisflokkurinn er á tólfta ári í ríkisstjórn samfellt. Getur svo löng stjórnarseta eins flokks ekki verið lýðræði skaðleg? „Eflaust getur hún verið það. Ég tel ekki að svo sé í þessu til- viki. Þrátt fyrir svo langa stjórn- arsetu er forsætisráðherra eini maðurinn sem hefur setið allan tímann. Í ríkisstjórninni frá 1995 eru bara þrír menn sem hafa ver- ið allan tímann, forsætisráðherr- ann, utanríkisráðherrann og fé- lagsmálaráðherrann. Það hafa orðið miklar mannabreytingar þó þetta sé sama stjórnin. Það urðu miklar breytingar á þingliði Sjálf- stæðisflokksins 1991 sem hefur staðið vel saman. Það er mikils virði að hafa góðan þingmeiri- hluta og samstöðu.“ Kemur fyrir að þér þyki þú geta leyst mál betur en sá ráðherra sem ber að gera það? „Ég get reyndar ekki neitað því. En það er mjög skýr verka- skipting innan ríkisstjórnarinnar. Það er svo að hinir ráðherrarnir hringja oftar í mig en ég í þá, eðli málsins samkvæmt. Stundum hringja þeir oftar en góðu hófi gegnir, finnst mér. Þeir bera hag sinna ráðuneyta fyrir brjósti og flest góðu málin kosta peninga. Þrátt fyrir þetta er samstarfið innan stjórnarinnar gott. Ég reyni að sýna þeirra málum skilning og ætlast til þess sama af þeim. Mik- ilsvert er að láta sama yfir alla ráðherrana ganga.“ Hafa ráðherrar tekið neitanir þínar persónulega? „Það er sjaldan. Við þekkjumst öll vel og höfum unnið mikið sam- an. Oftast gildir hið faglega mat og það fjárhagslega svigrúm sem er hverju sinni. Þess vegna hefur okkur gengið vel.“ Ég er þar sem ég er Ég vænti þess að samskipti þín og Davíðs Oddssonar séu mikil. Eruð þið einungis vinnufélagar, eða kunningjar og eða jafnvel vinir? „Við höfum verið vinir frá því í menntaskóla. Það kemur fyrir að við séum saman í frístundum, en það er ekki mikið um þær.“ Fyrir um einu ári síðan var eig- inkona þín, Inga Jóna Þórðardótt- ir, leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og Björn Bjarnason fór í raun gegn henni. Þú hefur eflaust verið í erfiðri stöðu, samráðherra að fara gegn eiginkonu þinni. „Bæði og. Ég tel að hún hafi staðið sig vel sem oddviti sjálf- stæðismanna. Hún leiddi aldrei listann í kosningum svo það reyndi aldrei á það. Ég var búinn að segja við hana og aðra að ef hún færi í fyrirhugað leiðtogaprófkjör styddi ég hana eindregið. Það lá fyrir. Síðan sneru menn bökum saman um aðra niðurstöðu og allir þekkja framhaldið.“ Breytti Björn rangt, hefur hann jafnvel fallið sem stjórnmálamað- ur eftir að hafa mistekist að vinna borgina? „Nei, það vil ég ekki meina. Hann tók þessa ákvörðun að yfir- lögðu ráði og hafði óskoraðan stuðning eftir að niðurstaða var fengin.“ En ekki löngu fyrr var talað um slag milli ykkar sem hugsanlegra arftaka Davíðs. Í dag er það ekki og hann reynir ekki að fara á móti þér í prófkjörinu? „Það var kannski talað þannig. Ég er þar sem ég er og hann þar sem hann er. Síðan ákveður fólkið í flokknum framhaldið. Það á eng- inn neitt í Sjálfstæðisflokknum. Ég er hreykinn af því sem flokkur- inn hefur falið mér og mun sækj- ast eftir endurkjöri sem varafor- maður.“ Þú hefur notið vinsælda í könn- unum um ágæti starfa ráðherra. Þykir þér það notalegt? „Ég hef verið það lengi í stjórn- málum, er að fara í mitt fimmta prófkjör, að ég geri mér grein fyr- ir að fylgi í svona könnunum er fallvalt. Þetta er gaman en hefur ekki áhrif á mín störf.“ Okkur hefur verið tíðrætt um ágæt störf þín og ríkisstjórnarinn- ar, en er einhver ákvörðum sem þú sérð eftir? „Eflaust er það eitthvað, en ég man ekki eftir neinu í svipinn. Það er ekkert sem ég sé alvarlega eft- ir.“ Hver er draumaríkisstjórnin? „Núverandi samstarf hefur gengið vel. Allir sem leggja fyrir sig stjórnmál gera það af góðum vilja. Hér á landi er enginn stjórn- málamaður sem ég get ekki hugs- að mér að starfa með. Þess vegna útiloka ég engan frá samstarfi.“ sme@frettabladid.is „Ég tel að Inga Jóna hafi staðið sig vel sem oddviti sjálf- stæðismanna. Hún leiddi aldrei listann í kosningum svo það reyndi aldrei á það. Ég var búinn að segja við hana og aðra að ef hún færi í fyrirhugað leiðtoga- prófkjör styddi ég hana eindregið.“FRÉTTABLAÐIÐ/BILLI FRAMKVÆMDIR Norska verktaka- fyrirtækið Veidekke ASA hefur ákveðið að taka ekki þátt í tilboði í stíflugerð við Kárahnjúka- virkjun með Ístaki og fleiri fyr- irtækjum. Áður hafði sænska stórfyrirtækið Skånska hætt við þátttöku í tilboðum, bæði í stíflu og aðrennslisgöng Kárahnjúka- virkjunar. Umhverfismál ku hafa ráðið ákvörðun Skånska þó yfirmenn vilji ekki tjá sig um það. Nýlega var auglýst forval vegna véla og rafbúnaðar í Kárahnjúkavirkj- un. Auglýst er eftir verktökum til að taka þátt í forvali fyrir út- boð á afhendingu og uppsetn- ingu búnaðar. Hámarksafl stöðv- arinnar verður 630 megavött. Væntanlegur verktaki mun setja upp sex vélasamstæður, hverja 105 megavött að stærð. Gert er ráð fyrir undirritun verksamnings í ágúst 2003 og verklok eru áætluð síðla árs 2007. Enn fremur hefur Lands- virkjun auglýst eftir ráðgjöfum til að taka þátt í forvali vegna eftirlits með byggingarfram- kvæmdum við Kárahnjúkavirkj- un. Eftirlitið nær til fjögurra meginverkefna, stíflugerðar við Hálslón, aðrennslisganga, stöðv- arhúss og fleiri virkjanabygg- inga í Fljótsdal og Ufsastíflu og Hraunaveitu.  Kárahnjúkavirkjun: Verktakar hætta enn við ATHAFNASKÁLD Í UMFERÐINNIAthafnaskáldið Goði, kenndur við CostGo vörusvikalistann, er aftur kominn í dómssali eftir að hafa verið dæmdur fyrir fjársvik fyrir fáum vikum. Að þessu sinni er þó aðeins um umferðarlagabrot að ræða. TVEIR MILLJARÐAR ÚR SJÁVARÚT- VEGI Sjávarútvegsfyrirtækin Har- aldur Böðvarsson hf., Skagstrend- ingur hf. og Útgerðarfélag Akur- eyringa hf. skiluðu samtals 2.040 milljóna króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins 2002. Rekstrartekj- ur félaganna námu alls 11,3 millj- örðum króna fyrstu níu mánuði ársins. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam rúmum 2,4 milljörðum króna. INNLENT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.