Fréttablaðið - 16.11.2002, Blaðsíða 24
24 16. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
BÆKUR Áður fyrr sótti fólk hugarró
og sáluhjálp til almættisins, sem
hjálpaði að vísu engum nema þeir
hjálpuðu sér sjálfir. Nú getur hins
vegar varla nokkur maður farið
fram úr rúminu lengur án þess að
lesa sjálfshjálparbók fyrst, eins
og gamalreyndur bóksali á Vest-
urgötunni orðaði það nýlega.
Hjálpin kemur sem sagt ekki
lengur að ofan eða innan, að
minnsta kosti ekki án viðkomu í
svona eins og einni bók. Það er þó
ekki lengur skáldskapurinn sem
er greiningartækið, líkt og hjá
Laxness, Dostojevskí og Kundera,
heldur reynslusögur og rannsókn-
ir, kenningar sálfræðinga, félags-
fræðinga, geðlækna og eiginlega
bara allra sem telja sig færa um
að hjálpa öðrum.
Þessar vangaveltur taka
stöðugt meira pláss í dagskrá
sjónvarpsstöðvanna í svokölluð-
um „kellingaþáttum“ og um leið
fjölgar sjálfshjálparbókunum í
jólabókaflóðunum stöðugt og mið-
að við framboðið í ár ætti ekki
nokkur Íslendingur að eiga í til-
vistarkreppu um áramótin.
Þunglyndi er að festa sig í sessi
sem óvinur mannsins númer eitt.
Það er talið einn algengasti sjúk-
dómur í heimi og áætlað að einn
af hverjum fjórum þjáist af því
einhvern tímann á ævinni. Þetta
er lúmskur fjandi og fólk getur
engst um í sálarangist árum sam-
an án þess að hafa hugmynd um
að rót vandans liggi í boðefna-
brenglun í heilanum.
Bókin „Allt sem þú þarft að
vita um líf með þunglyndi“ er að-
gengileg bók sem gæti komið ein-
hverjum á sporið og einnig reynst
sjúklingum og aðstandendum góð-
ur leiðarvísir. Bókin fer yfir ein-
kenni og meðferðarúrræði, bæði
hefðbundin og óhefðbundin, og að
lestri loknum veit maður meira
um innlagnir á geðdeildir, áhrif
lyfja, gildi hreyfingar, vatnsmeð-
ferðar og síðast en ekki síst dans-
meðferðar, en samkvæmt rann-
sóknum gagnast þjóðdansar best í
baráttunni gegn þunglyndi. Í bók-
arlok eru Geðorðin 10 birt en þeir
sem geta lifað samkvæmt þeim
ættu að standast áhlaup þung-
lyndisins. Fyrsta geðorðið segir
einfaldlega: „Hugsaðu jákvætt,
það er léttara,“ og það þriðja er
lítið síðra: „Haltu áfram að læra
svo lengi sem þú lifir“.
Þetta boðorð vísar okkur beint
á Dalai Lama og Bókina um visk-
una og kærleikann. Dalai Lama
gefur einföld og hagnýt ráð um
hvernig njóta megi ástar og öðlast
samhygð. Kenningar hans eru all-
ar sagðar byggjast á skynsemi og
manngæsku. Hann leggur mikla
áherslu á að fólk öðlist hugarró
með því að breyta neikvæðum
kenndum í jákvæðar. Kenningar
hans eru búddískar og afslappað-
ar og hann heldur því ekki fram
að sínar aðferðir séu betri en aðr-
ar. Það er hins vegar um að gera
að prófa sig áfram og gagnist að-
ferð hans ekki er hægur vandi að
hætta við, eins og hans heilagleiki
orðar það.
Þórir S. Guðbergsson, kennari
og félagsfræðingur, er öllu jarð-
bundnari í nálgun sinni á lífsstíl,
heilsu, mannleg samskipti og lífs-
gleðina í bók sinni Lífsorka. Hann
bendir á leiðir til að rækta hug og
hönd og hvernig hægt er að horfa
til framtíðar á öllum æviskeiðum.
Bókin er aðgengileg og er ætluð
öllum sem eldast en Þórir fjallar
um ýmisleg félagsleg réttindi og
hlutverk lífeyrissjóða og al-
mannatrygginga.
Þá erum við komin að því ver-
aldlega, hlutum sem getur verið
vont að ánetjast um of en að sama
skapi illmögulegt að útiloka þá.
Victoria Moran telur sig geta lagt
okkur lið í baráttunni við að koma
á jafnvægi á þessum vígstöðvum.
Hún leggur áherslu á andleg verð-
mæti og varar við áróðri um að
veraldleg gæði færi okkur ham-
ingjuna, slíkt hafi fátt annað í för
með sér en ófullnægju og leiða.
Svörin við þessu öllu gætu
hæglega leynst innra með okkur
sjálfum og þó flestir séu orðnir
hundleiðir á Sigmund Freud fyrir
lifandis löngu er sálgreining aftur
að ryðja sér til rúms sem gagnleg-
ur meðferðarmáti. Draumar gætu
því geymt mikilvægar vísbend-
ingar og þeir sem vilja leita á þau
mið gætu haft gagn og gaman af
stórri, dökkblárri og mjúkri bók
sem nefnist einfaldlega Draumar
og kynnir „leiðir til að túlka
draumfarir og öðlast dýpri skiln-
ing á sálarlífinu,“ eins og það er
orðað á bókarkápu. Bókin er afar
falleg á að líta, ríkulega skreytt
listaverkum sem tengjast draum-
förum, en hvort hinn eini sann-
leikur leynist í skýringum á al-
gengum draumtáknum skal ósagt
látið.
Ástin er mikill örlagavaldur og
ef ekki er hlúð að henni getur hún
snúist upp í andhverfu sína.
Draumurinn verður martröð og
heimsmyndin hrynur. Anna Valdi-
marsdóttir lumar á ýmsum holl-
ráðum um hvernig hægt er að
halda ástinni lifandi í bók sinni
Legðu rækt við ástina. Anna bend-
ir á að ástin sé sprottin af ein-
manaleika, enda myndi sjálfsagt
enginn leggja allt það á sig sem
ástinni fylgir nema til þess að
forðast það að standa uppi einn.
Þegar ástin er annars vegar
eru samskipti kynjanna vitaskuld
í brennidepli. Skýringarnar á
skrykkjóttum viðskiptum karla
og kvenna eru óteljandi og hafa
meðal annars teygt sig til himin-
tunglanna. Þeir sem gátu hlegið
að Hellisbúanum geta sjálfsagt
haft gaman af bókinni Hvernig á
því stendur að karlar hlusta
aldrei og konur geta ekki bakkað
í stæði. Þar er meintur eðlismun-
ur kynjanna viðraður og áþreif-
anlegur munur á heilum kynj-
anna meðal annars lagður til
grundvallar sígildum deilum um
opnar klósettsetur, fótbolta og
uppvask. Þetta getur verið snið-
ugt á köflum en sjálfsagt munu
margir ekki finna neinar hlið-
stæður við eigið líf og mjúkir
menn sem brjóta saman þvott og
tárast yfir þáttum Opruh Winfrey
verða sjálfsagt litlu nær og vita
ekkert hvort þeir eiga ættir að
rekja til Venusar eða Mars.
thorarinn@frettabladid.is
Jólaölkannan vinsæla komin
Verð: 2.500 kr.
Málið jólagjafirnar sjálf
Nýtt kortatímabil
Vorum að fá í hús mikið af nýjum mótum
eitthvað nýtt á hverjum degi
Opnunartími verslunar:
Virka daga 10.00-18.00
mánudaga 10.00-22.00
laugardaga kl. 10.00-16.00.
Keramikgallery ehf.,
Dalvegur 16b,
200 Kópavogur,
sími 544-5504
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is SJÁLFSHJÁLPARBÆKUR
„Hvernig eigum við að njóta gleðinnar ef við höfum aldrei kynnst sorginni?“ spyr Þóra
Snorradóttir í bók sinni Yfir djúpið breiða. Lífið verður líklega alltaf samspil gleði og
sorgar, óháð því hvaða sjálfshjálparbókahrúgan hefur að segja.
Bækur hjálpa þeim
sem hjálpa sér sjálfir
Það þykir ekki fínt lengur að bíta á jaxlinn og byrgja tilfinningar inni og
því fátt eðlilegra en að afkomendur sauðaþjófa og víkinga þurfi á hjálp
bóka að halda til að fóta sig í breyttum heimi.
TÓNLIST Sala á nýjustu plötu Bubba
Morthens er með mesta móti miðað
við að enn er ekki komið fram í jóla-
mánuðinn. Svipaða sögu er að segja
af nýjustu plötu Sigur Rósar.
Sól að morgni, plötunni hans
Bubba, hefur verið dreift í þremur
til fjögur þúsund eintökum, að sögn
Þórhalls Jónssonar, verslunarstjóra
Skífunnar á Laugavegi. Plötu Sigur
Rósar, ( ), hefur hins vegar verið
dreift í tveimur til þremur þúsund
eintökum. Plata hefur náð gull-
plötusölu við fimm þúsund seld ein-
tök.
Í næstu viku koma plötur frá
þeim sem seldu flestar plötur í
fyrra, Páli Rósinkrans og
Rottweilerhundum. Í fyrra var Páll
langsöluhæstur. Hann var sá eini
sem náði platínusölu, það er fleiri
en tíu þúsund seldum eintökum.
Söluhæstu íslensku tónlistar-
mennirnir í verslun Skífunnar á
Laugavegi eru í augnablikinu Sigur
Rós, Bubbi, Daysleeper, Í svörtum
fötum og Írafár. Þórhallur verslun-
arstjóri segir safnplötur með U2 og
Nirvana seljast best af erlendum
plötum.
Brautin rudd fyrir Rósinkrans og Rottweiler:
Bubbi og Sigur Rós
eru að hitta í mark
BUBBI MORTHENS
Bubbi nálgast gullplötusölu þótt enn
séu 36 dagar til jóla.
Austurhrauni 3, Garðabæ, s. 555 2866
Mokka jakkar frá kr. 4900-
Mikið úrval af jólavörum