Fréttablaðið - 16.11.2002, Side 14
14 16. nóvember 2002 LAUGARDAGURSUMO-GLÍMA
LÉTTIR Á SÉR
Sumo-glímumaðurinn Takanonami, til
vinstri, ýtir meistaranum Musashimaru út
úr hringnum. Þeir mættust í Fukuoka í
suðvesturhluta Japan á fimmtudaginn var.
Þetta var fyrsta tap Musashimaru á mót-
inu, sem stóð yfir í 15 daga.
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
12.30 Skjár 1
Mótor (e)
14.20 Stöð 2
Alltaf í boltanum
14.25 RÚV
Þýski fótboltinn
14.45 Stöð 2
Arsenal - Tottenham)
16.00 Höllin
Þór Ak. - Víkingur
16.00 Keflavík
Karfa kvenna (Keflavík - ÍS)
16.00 DHL-Höllin
Karfa kvenna (KR - UMFG)
16.20 RÚV
Evrópukeppnin í handbolta
16.30 Ásvellir
Evrópuk. Haukar - Conversano
17.00 Sýn
Toppleikir (Toppleikir)
21.00 Sýn
Box í Höllinni (Ísland - USA)
SUNNUDAGUR
13.45 Sýn
Enski b. Liverpool - Sunderland
15.00 Framhús
Handbolti kv. Fram - Grótta KR
15.00 Ásgarður
Handbolti kv. Stjarnan - KA/Þór
16.00 Fylkishöll
Handbolti kv. Fylkir ÍR - ÍBV
16.00 Sýn
Enski b. West Ham - Man. Utd.
17.00 RÚV
Markaregn
17.00 Ásgarður
Handbolti k. Stjarnan - Selfoss
18.00 Ásvellir
Handbolti kv. Haukar - Valur
18.00 Kaplakriki
Handbolti kv. FH - Víkingur
18.00 Sýn
Meistaradeild Evrópu
19.00 Sýn
Golfmót í Bandaríkjunum
20.00 Kaplakriki
Handbolti karla (FH - Valur)
21.35 RÚV
Helgarsportið
2. umferð Meistaradeildar Evrópu:
Arsenal í dauðariðlinum
FÓTBOLTI Arsenal lenti í sannköll-
uðum dauðariðli þegar dregið var
í riðla í 2. umferð Meistaradeildar
Evrópu í gær. Englandsmeistar-
arnir drógust í B-riðil ásamt Val-
encia frá Spáni, Roma frá Ítalíu
og Ajax frá Hollandi. Riðlarnir
fjórir eru miserfiðir þó ljóst sé að
ekkert lið á auðvelda leið upp úr
þeim.
Manchester United dróst í D-
riðil ásamt Deportivo La Coruna
frá Spáni, Juventus frá Ítalíu og
Basel frá Sviss. Enska liðið sigraði
Juventus á leið sinni að Evrópu-
meistaratitlinum árið 1999. United
og Deportivo hafa mæst fjórum
sinnum á síðustu tveimur árum.
Newcastle dróst í A-riðil ásamt
Bayer Leverkusen frá Þýskalandi,
Inter Milan frá Ítalíu og Barcelona
frá Spáni. Sir Bobby Robson,
knattspyrnustjóri Newcastle,
hlakkar ábyggilega til að mæta síð-
ast talda liðinu en hann var eitt
sinn við stjórnvölinn hjá því.
Í C-riðli mætast Evrópumeist-
arar Real Madrid frá Spáni, AC
Milan frá Ítalíu, Borussia Dort-
mund frá Þýskalandi og
Lokomotiv Moskva frá Rússlandi.
Fyrstu leikir annarrar umferð-
ar verða 26. og 27. nóvember og
næstu leikir verða tveimur vikum
síðar. Þá verður frí gefið í Meist-
aradeildinni fram í febrúar.
MÆTA MILAN
Ronaldo og Luis Figo, leikmenn Real Ma-
drid, fagna hér marki þess fyrrnefnda. Real
Madrid mætir AC Milan í Meistaradeild
Evrópu.
A-RIÐILL
Inter Milan
Bayer Leverkusen
Barcelona
Newcastle
B-RIÐILL
Ajax
Roma
Arsenal
Valencia
C-RIÐILL
Dortmund
AC Milan
Real Madrid
Lokomotiv Moskva
D-RIÐILL
Juventus
Basel
Manchester United
Deportivo La Coruna
Sigursæll knattspyrnu-
stjóri á sjötugsaldri
Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle, er einn reyndasti stjórinn í bransanum. Hann hef-
ur meðal annars stjórnað enska landsliðinu, PSV Eindhoven og Barcelona. Hann segist ætla að
enda ferilinn hjá liðinu sem hann hefur haldið með frá því í æsku.
FÓTBOLTI Flestir 69 ára gamlir karl-
menn hafa um ýmislegt annað að
hugsa á þessum aldri en að stjórna
heilu knattspyrnu-
liði, hvað þá eins
stóru félagi og
Newcastle. Í stað
þess að hugsa um
hvort slá þurfi
blettinn í dag eða á
morgun þarf Sir
Bobby Robson,
knattspyrnustjóri
Newcastle, að
glíma við gífurlega pressu á hverj-
um degi.
Lærisveinar hans komust í vik-
unni áfram í 16 liða úrslit Meistara-
deildar Evrópu eftir frækilegan 3:2
sigur á hollenska liðinu Feyenoord
auk þess sem liðið hefur verið að ná
sér á strik í ensku úrvalsdeildinni
eftir herfilega byrjun. Newcastle er
nú í 9. sæti deildarinnar. Liðið á
nokkuð í land með að jafna árangur
sinn frá því í fyrra er það kom öll-
um á óvart og náði fjórða sætinu.
Robson vann fyrsta titil sinn sem
knattspyrnustjóri er hann stýrði liði
Ipswich Town til sigurs í ensku bik-
arkeppninni árið 1978 og Evrópu-
keppni félagsliða árið 1981. Í kjöl-
farið var honum boðin staða sem
flesta enska knattspyrnustjóra
dreymir um, landliðsþjálfarastaða
Englands.
Fyrst um sinn náði enska lands-
liðið litlum árangri undir stjórn
Robson. Á HM 1986 í Mexíkó var
hins vegar annað uppi á teningnum.
Liðinu gekk stórvel allt þar til það
mætti argentínska landsliðinu í 8
liða úrslitum. Maradona og hin
fræga „hönd Guðs“ stöðvuðu þá sig-
urgöngu liðsins. Fjórum árum síðar
á HM á Ítalíu komst enska liðið enn
lengra er það féll úr leik eftir víta-
spyrnukeppni í undanúrslitum gegn
Þýskalandi.
Eftir það hætti Robson sem
landsliðsþjálfari og tók við hol-
lenska liðinu PSV Eindhoven. Undir
hans stjórn léku efnilegir leikmenn
eins og Brasilíumaðurinn Ronaldo
og Eiður Smári Guðjohnsen. Eftir
að hafa unnið tvo hollenska meist-
aratitla færði hann sig um set til
Sporting Lissabon og síðar til Porto
í Portúgal. Hjá Porto vann hann bik-
armeistaratitil og tvo meistaratitla.
Því næst tók hann við spænska stór-
veldinu Barcelona. Hann stýrði lið-
inu til sigurs í Evrópukeppni bikar-
hafa auk þess sem liðið vann
spænsku bikarkeppnina.
Eftir að hann var rekinn frá
Barcelona var hann nálægt því að
setjast í helgan stein. Þess í stað
ákvað hann, vegna ástar sinnar á
fótbolta, að taka við liðinu sem hann
hafði haldið með frá því í æsku,
Newcastle, af Hollendingnum Ruud
Gullit árið 1999. Liðið var þá í næst-
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. Eft-
ir það hefur leiðin svo sannarlega
legið upp á við.
Með yfirburði á þýskum markaði
Útsölustaðir:
Bónus
Byko
Elko
Europris
11:11
Fjarðarkaup
Hagkaup
Húsasmiðjan
Kjöthöllin
Krónan
Nettó
Nóatún
Nýkaup
Samkaup
Þín verslun
Sannkallað undraefni!
Ath. Efnið brotnar 100% niður í
náttúrunni. Engin kemísk efni.
Ofnæmisfrítt!
Á ver
ði se
m
stens
t sam
kepp
ni!
PRE-WASH
BLETTAHREINSIR
Þeir gerast ekki betri!
Fyrir alla bletti.
Afar handhægur - frábær virkni.
250 og 500 ml. umbúðir.
Leiðbeiningar á
heimasíðu okkar:
www.asvik.is
FÖGNUÐUR
Lærisveinar Robson hjá Newcastle stóðu sig frábærlega á lokasprettinum í fyrri hluta
riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hér sjást þeir fagna sigurmarki Craig Bellamy gegn
Feyenoord. Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, og Gary Speed fagna félaga sínum.
Enska lands-
liðinu gekk
stórvel allt þar
til það mætti
argentínska
landsliðinu í 8
liða úrslitum.
HANDBOLTI Haukar mæta Guð-
mundi Hrafnkelssyni og félögum
í ítalska liðinu Conversano í
seinni leik liðanna í 3. umferð
Evrópukeppni bikarhafa á Ásvöll-
um í dag. Fyrri leiknum lauk með
jafntefli, 27-27.
Það verður á brattann að sækja
hjá Viggó Sigurðssyni og læri-
sveinum því lið Conversano er
feykisterkt. Í liðinu eru meðal
annarra sænski hornamaðurinn
Pierre Thorsson, júgóslavneski
landsliðsmaðurinn Blazo Lisicic
og Zvonimir Bilic, leikstjórnandi
króatíska landsliðsins.
Leikurinn verður sem fyrr seg-
ir á Ásvöllum og hefst klukkan
16.30.
ARON KRISTJÁNSSON
Fer fyrir liði Hauka í dag þegar það mætir
Conversano frá Ítalíu.
Haukar mæta Conversano í Evrópukeppninni:
Á brattann að sækja
AP
/M
YN
D
ROBSON
Bobby Robson hefur verið viðloðandi fót-
bolta í 53 ár. Hann hóf atvinnumannaferil
sinn sem leikmaður hjá Fulham. Hann
skoraði 4 mörk í 20 landsleikjum fyrir Eng-
land á árunum 1957-1962. Robson hefur
lýst því yfir að Newcastle sé síðasta félagið
sem hann stjórni. Hann var heiðraður af
Englandsdrottningu í sumar fyrir framlag
sitt til knattspyrnunnar.