Fréttablaðið - 16.11.2002, Qupperneq 20
Sjálftitlaður konungur poppsins,Michael Jackson, gerði sér lítið
fyrir og mætti fjórum klukkustund-
um of seint í réttar-
salinn á fimmtudag.
Hann lét það þó
ekki stoppa sig í
því að eyða smá
tíma með aðdáend-
um sínum fyrir
utan dómshúsið
áður en hann fór
inn til þess að halda
vitnisburði sínum áfram frá því deg-
inum áður. Jackson var kærður af
fyrrum umboðsmanni sínum, sem
heldur því fram að popparinn skuldi
sér 1,8 milljarða króna eftir að hafa
hætt við að syngja á tónleikum sem
búið var að bóka. Jackson heldur því
fram að það hafi verið umboðsmað-
urinn sem hætti við tónleikana, ekki
hann sjálfur. Í vitnastúkunni í gær
sagði Jackson að hann gæti lítið að-
stoðað í þessu máli þar sem hann
væri „tónlistarspámaður“ og sæi
ekkert um fjármál sín.
Önnur myndin um Harry Pottervar frumsýnd í yfir 1000 kvik-
myndahúsum í Bretlandi í gær. „The
Chamber of Secrets“ hefur hlotið
ágæta dóma gagnrýnenda, sem segja
flestir myndina vera drungalegri og
meira spennandi en þá fyrstu. Mynd-
in hefur þegar halað inn um 8 millj-
ónir punda (rúmlega 1 milljarð ís-
lenskra króna) fyrir forsölu aðgöngu-
miða. Potter hefur greinilega bíófólk
á öllum aldri enn í álögum.
Þrír samstarfsmenn plötuútgefan-dans Marion „Suge“ Knight hafa
verið handteknir grunaðir um „sam-
særi um að fremja morð“. Lögreglan
gerði einnig húsleit á 16 stöðum, þar
á meðal á heimili Knight og í húsa-
kynnum Tha Row Records, sem áður
hét Death Row Records. Lögreglan
sagði þó að Knight, sem var sleppt
úr fangelsi í fyrra, væri ekki á með-
al hinna grunuðu. Þeir tóku líka
fram að handtökurnar tengdust ekki
morðum 2Pac né Biggie Smalls. Ekk-
ert bendir heldur til að málið sé
tengt morði Run DMC plötusnúðar-
ins Jam Master Jay.
20 16. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
MR. DEEDS kl. 2, 4 og 6
LITLA LIRFAN LJÓTA kl. 2, 3 og 4
HALLOWEEN kl. 8 og 10
STUART LITLI kl. 2 og 4
ROAD TO PERD... kl. 5, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
kl. 6FÁLKAR
BLOOD WORK kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 8 og 10.05 Sýnd kl. 8 og 10
YA YA SISTERHOOD kl. 8 VIT455
THE TUXEDO kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT474 HAFIÐ kl. 1.40 3.40, 5.50, 8 og 10.10
VIT
453
LILO OG STITCH m/ísl.tali kl. 2 VIT429
MAX KLEEBLE´S.. kl. 2, 4 og 6 VIT441
INSOMNIA kl. 10.10 VIT444
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT 461
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 VIT 479
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 480
kl. 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 5.40 - 8 og 10.20DAS EXPERIMENT
TÍSKA Í byrjun október fór hópur ís-
lenskra fatahönnuða til Parísar á
vegum Útflutningsráðs. Þar var
þeim gefið færi á að kynna afurðir
sínar. Sýningin var haldin í miðri
tískuviku þar sem fjöldi kaupsýslu-
fólks úr fatabransanum var þá í
borginni. Til þess að gera langa
sögu stutta bárust íslensku hönnuð-
unum nokkrar pantanir á vörur sín-
ar og tóku þær Aftur-systur við
þeim flestum.
„Þetta snýst svolítið um það
hvernig þú staðsetur þig,“ út-
skýrir Hrafnhildur Hólmgeirs-
dóttir. „Þú þarft að ákveða í
hvernig búðum þú vilt selja, við
hliðina á hvaða fatahönnuðum þú
vilt hanga og svoleiðis. Við
komumst inn í þær búðir, í þeim
löndum, sem okkur vantaði.“
Þær systur tóku við pöntunum
frá búðum í fimm löndum og
komust inn hjá tveimur búðum á
Ítalíu. Önnur þeirra er verslunin
Penelope, sem Hrafnhildur segir
hafa mikil áhrif á tískustrauma þar
í landi. Einnig fengu þær inni í
tveimur búðum í París, einni í Hong
Kong, einni verslunarkeðju í Tókíó
og einni í London.
„Við fengum líka boð um að sýna
í Barcelona á næsta ári. Þar er hátíð
haldin tvisvar á ári sem sýnir brot
af því sem er að gerast í tísku, tón-
list og listum. Þau taka alltaf eitt
land fyrir á ári og á næsta ári verð-
ur það Ísland.“
Systurnar fjöldaframleiða hönn-
un sína aðeins innan þess ramma að
hver og ein flík hafi eitthvað sérein-
kenni. Þetta geta þær gert með því
að endurnýta notuð efni. Nýja línan
þeirra, sem þær kalla „It’s about
time“, er til dæmis öll unnin úr not-
uðum stuttermabolum, bindum,
slæðum og gömlum rúmfötum. Þar
getur þú, kæri lesandi, komið þeim
til aðstoðar. „Við notum rúmföt af
því að þau eru svo persónuleg. Ef-
laust er einhver búinn að gera það
fallegasta í heimi umvafinn þeim
þannig að þau eru full af ást. Svo er
alveg merkilega þægilegt að vera í
þessu. Söluaðilinn okkar í Hollandi
gat ekki hjálpað með rúmfataefnin
nema með lengri fyrirvara. Við
erum að leita að almunstróttum
rúmfötum, skreyttum blóma-
munstrum eða hippahringjum, frá
áttunda áratugnum. Okkur vantar
þetta til þess að geta klárað fram-
leiðsluna. Ef fólk á svona getur það
hringt í 846-0725, eða sent mér
tölvupóst á hrafnhildur@aftur.com.“
biggi@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eftir vel heppnaða kynningarferð til Parísar náðu Aftur-systurnar, Hrafnhildur
og Bára Hólmgeirsdætur, að fá pantanir frá búðum í fimm mismunandi löndum.
Allt fullt af ást
HRAFNHILDUR OG BÁRA
Systurnar segjast finna fyrir miklum áhuga frá fólki og að þær séu oft spurðar hvort þær ætli ekki að fara að halda sýningu. Þær
langar að hafa opið hús á vinnustofunni eina helgina.
AFTUR
Hér sést pils, endurunnið úr gömlum
sjölum. „Núna erum við að reyna að
safna saman efnum til þess að geta
framleitt pantanir. Við erum líka byrjaðar
að undirbúa næstu línu. Erum að leggja
höfuðin í bleyti.“
VERÐLAUN Rapparinn Eminem fékk
þrenn verðlaun á MTV Europe Music
Awards á fimmtudagskvöldið. Hann
var verðlaunaður sem besti karlkyns
tónlistarmaðurinn og besti hiphop-
flytjandinn auk þess sem plata hans
„The Eminem show“ var valin besta
platan. Það virðist allt ætla að ganga
upp hjá piltinum þessa dagana þar
sem kvikmynd hans „8 Mile“ er að-
sóknarmesta mynd Bandaríkjanna
auk þess sem tónlistin úr myndinni er
í efsta sæti plötusölulistans þar í
landi.
Kylie Minougue, The Red Hot Chili
Peppers og Linkin Park fóru heim
með tvenn verðlaun.
Kylie var verðlaunuð sem besti
kven kyns poppflytjandinn og besti
kvenkyns danstónlistarmaðurinn.
Hún þakkaði Evrópubúum sérstak-
lega fyrir að taka sér opnum örmum.
Jennifer Lopez hirti þó verðlaunin af
henni sem besti kvenkyns flytjandi.
The Red Hot Chili Peppers voru
verðlaunaðir sem besta rokkhljóm-
sveitin og fyrir bestu sviðsframkomu.
Linkin Park komu flestum á óvart
með því að vinna titilinn „besta hljóm-
sveitin“ og „besta þungarokkssveit-
in“.
Alicia Keys var verðlaunuð sem
besti kvenkyns hiphop-flytjandinn og
lag Pink, „Get the Party Started“ var
valið besta lagið. Íslandsvinirnir í
Coldplay voru valdir besta breska
sveitin. Slík sérverðlaun voru veitt
fyrir níu önnur lönd í Evrópu.
Um 12 þúsund manns sóttu hátíð-
ina.
Evrópsku MTV-verðlaunin:
Eminem vann þrennu
EMINEM
Tók lagið „Lose yourself“ úr kvikmyndinni
8 Mile við mikinn fögnuð áhorfenda.
Hann sleppti því alveg að skjóta á Moby í
þetta skiptið.
KYLIE
Fór heim með tvo verðlaunagripi og þakkaði evrópskum ungmennum sérstaklega fyrir að
taka sér opnum örmum.
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson
Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik
sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
M
YN
D
/S
N
O
R
R
I-B
RO
S
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI