Fréttablaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 6
6 4. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR LÖGREGLUFRÉTTIR VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 22 1. 2. 3. Hann er háttsettur innan al Kaída, hryðjuverkasamtaka Osama bin Laden. Hann var handsamaður um helgina. Hver er maðurinn? Fréttablaðið hefur flutt aðsetur sitt. Hvert er hið nýja heimilis- fang blaðsins? Íslandsmeistaramótinu í skák lauk um helgina. Hvaða taflfé- lag bar sigur úr býtum? SVEITARSTJÓRNIR Verkefnisstjórn Vetrarhátíðar Reykjavíkurborgar veitti 1.425 þúsund krónum í lista- verkin þrjú sem hlutu verðlaun á vegum hátíðarinnar. Verkin voru sett upp á meðan Vetrarhátíðin stóð frá fimmtudegi í síðustu viku til sunnudagskvölds. Verkið Ljósberar eftir Ilmi Stef- ánsdóttur myndlistarkennara hlaut fyrstu verðlaun, 100 þúsund krón- ur. Að auki fékk Ilmur 400 þúsund krónur til að setja verkið upp í hólmanum í Reykjavíkurtjörn ásamt 20 nemendum í fornámsdeild Myndlistarskóla Reykjavíkur. Alfreð Sturla Böðvarsson hlaut 75 þúsund krónur fyrir önnur verð- laun. Alfreð fékk að auki 450 þús- und krónur til að koma verki sínu. Ó! Frjáls? fyrir í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsinu. Að endingu fékk Stefán Geir Karlsson 50 þúsund krónur fyrir þriðju verðlaun í samkeppni Vetr- arhátíðar. Til að koma verkinu Regnbogabrú fyrir yfir tjörninni út frá Ráðhúsinu fékk Stefán 350 þús- und krónur. Hann fékk enn fremur aðstoð Stálsmiðjunnar til að útbúa verk sitt. Signý Pálsdóttir, formaður Verk- efnisstjórnar Vetrarhátíðar, segir listaverkin hafa verið gerð með lág- marks tilkostnaði. ■ Vetrarhátíð Höfuðborgarstofu: Hálf önnur milljón í þriggja daga list LJÓSBERAR Verkið Ljósberar í Tjarnar- hólmanum. Ljósdíóðurnar í því lifðu þá þrjá daga sem Vetrarhátíð stóð. Verkið kostaði hálfa milljón króna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SAMSKIPTI Fréttir af fundi Davíðs Oddssonar og Hreins Loftssonar í London hafa á ný beint kastljósinu að samskiptum þessara fyrrum samherja og vina. Hreinn Loftsson varð snemma áber- andi innan Sjálf- stæðisflokksins. Hann settist í stjórn Heimdallar 19 ára gamall og sat fjögur kjör- tímabil í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hreinn var einn af stofnendum Félags frjáls- hyggjumanna og hefur löngum til- heyrt þeim skoðanahópi innan flokksins. Innan þess hóps eru flestir hörðustu stuðningsmenn Davíðs Oddssonar. Árið 1991 var Davíð Oddsson kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Því kjöri fylgdu sárindi og flokkadrættir. Strax í kjölfarið varð Davíð for- sætisráðherra og tók Hreinn sér hlé frá rekstri lögmannsstofu sinnar til að gerast aðstoðarmað- ur hans. Forsætisráðherra þurfti á öflugum liðsmönnum að halda, enda réð þetta fyrsta ár á valda- stóli úrslitum um tök hans á flokknum. Hreinn naut mikils trausts for- sætisráðherra og þegar fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu var sett á laggirnar var Hreini falið það vandasama verk að stýra störfum nefndarinnar. Ljóst var að Hreinn var í innsta hring og hon- um falin vandasöm úrlausnarefni. Á ýmsu gekk við einkavæðinguna og varði Hreinn gerðir stjórnvalda af hörku. Orca-hópurinn, sem Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs var hluti af, bakaði sér reiði Davíðs við sölu á Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins. Það var haft til marks um ráðkænsku Baugsmanna að gera Hrein Loftsson að stjórnarfor- manni enda ætti hann traust og trúnað forsætisráðherra. Fyrri part árs 2001 gagnrýndu stjórn- völd matvöruverð og markaðs- stöðu Baugs. Hreinn brást hart við og skammaði landbúnaðarráð- herra og viðskiptaráðherra fyrir tolla og slaka efnahagsstjórn. Ekki þurfti mikla hugkvæmni til að lesa gagnrýni á efnahagsstjórn Davíðs úr orðum Hreins. Þolinmæði Hreins virðist hafa þrotið þegar forsætisráðherra tók undir gagn- rýni Össurar Skarphéðinssonar og ljáði máls á að skipta Baugi upp vegna markaðsráðandi stöðu. Davíð og Hreinn hittust í London til að ræða ágreining sinn. Eftirmálar þess fundar voru að Hreinn sagði af sér sem formaður einkavæðingarnefndar. Hreinn hætti síðar sem stjórnarformaður Baugs og Jón Ásgeir tók við þeirri stöðu. Hreinn sneri síðan aftur til starfa sem stjórnarformaður Baugs þegar Tryggvi Jónsson, for- stjóri Baugs, keypti bifreiðainn- flutningsfyrirtækið Heklu. Jón Ás- geir tók þá við forstjórastarfinu og Hreinn við stjórnarformennsku. haflidi@frettabladid.is Samherjar og nán- ir samstarfsmenn Davíð Oddsson og Hreinn Loftsson voru meira en samherjar. Þeir voru nánir samstarfsmenn og gagnkvæmt traust ríkti á milli þeirra. Davíð bar fyllsta traust til Hreins og fól honum vandasöm trúnaðarstörf. DAVÍÐ ODDSSON Hreinn Loftsson var hægri hönd hans á erfiðum tímum. HREINN LOFTSSON Naut trausts og trúnaðar Davíðs og Sjálfstæðisflokksins. Ljóst var að Hreinn var í innsta hring og honum fal- in vandasöm úrlausnarefni. VIÐSKIPTI Afgangur eignarhluta ríkisins í Búnaðarbanka Íslands verður seldur í gegnum kerfi Kauphallar Íslands. Aðferðin er sú sama og við afgang bréfa í Landsbanka Íslands. Mun stærri hlutur er til sölu í Búnaðarbank- anum en var í Landsbankanum, eða 9,11 prósent af heildarhlutafé bankans. Nafnvirði þess sem selt verður er 493 milljónir. Miðað við gengi á markaði er verðmætið á þriðja milljarð króna. Útboðs- gengið hefur ekki verið ákveðið, en það verður miðað við gengi bréfa bankans síðustu vikur. Bréf Búnaðarbankans hafa hækkað um 10 prósent frá áramótum. Sala bréfanna hefst klukkan tíu föstudaginn 7. mars næstkomandi og lýkur henni 14. mars eða þegar öll bréfin hafa verið seld. Hlutur ríkisins í Landsbankanum seldist á innan við tveimur mínútum. Mun stærri hlutur Landsbanka var seldur síðasta sumar. Þeirri sölu lauk á mjög skömmum tíma. Frekar er búist við því að sama verði uppi á teningnum við sölu Búnaðarbankans og að henni ljúki á fyrsta söludegi. ■ Bréf ríkisins í Búnaðarbankanum: Líklegt að salan gangi hratt RÍKIÐ SELDUR Afgangurinn af bréfum ríkisins í Búnaðar- bankanum verður seldur á föstudag. Mið- að við fyrri reynslu má búast við að salan gangi fljótt fyrir sig. Í SJÁLFHELDU MEÐ TRILLU Öku- maður með trillu í eftirvagni lenti í sjálfheldu við brúna á Vestur- landsvegi snemma á laugardags- morgun þar sem farmurinn var of hár. Lögreglan aðstoðaði manninn að komast úr bænum í gegnum Grafarvog og um Vest- urlandsveg. Hann fékk áminn- ingu. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77.53 -0.33% Sterlingspund 122.12 -0.63% Dönsk króna 11.27 0.01% Evra 83.73 0.00% Gengisvístala krónu 121,06 -0,12% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 589 Velta 4.194 milljónir ICEX-15 1.383 -0,42% Mestu viðskipti Sjóvá-Alm. tryggingar hf. 202.800.356 Fjárfestingarf. Straumur hf. 79.101.378 Búnaðarbanki Íslands hf. 64.929.388 Mesta hækkun Össur hf. 1,25% Skýrr hf. 0,91% Eimskipafélag Íslands hf. 0,83% Mesta lækkun ACO-Tæknival hf. -25,93% Kögun hf. -5,71% Flugleiðir hf. -3,70% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7921,4 0,4% Nasdaq*: 1335,3 -0,2% FTSE: 3684,7 0,8% DAX: 2564,9 0,7% Nikkei: 8490,4 1,5% S&P*: 843,7 0,3% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Flugvélabensín: Nothæft bensín eftir tíu daga FLUGMÁL Nothæft bensín á minni gerðir flugvéla hefur reynst vera á tönkum hér og þar um landið. Flugmálastjórn hafði fundið flugvélabensín í Reykjavík sem ekki uppfyllti lengur gæðakröfur og stöðvað allt flug minni flugvéla. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, seg- ir málið hafa valdið töluverðum truflunum. Að sögn Heimis Más eiga olíufélögin von á nýrri send- ingu af flugvélabensíni eftir um það bil tíu daga. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.