Fréttablaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2003
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á
skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir.
Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto›
vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best.
Glitnir traustur samstarfsa›ili í fjármögnun atvinnutækja.
F T
T
E
R F E T
O
T P
E
O
P
E
Sér›u atvinnutæki›
sem flig langar í?
– h lut i a f Í s landsbanka
K i r k j u s a n d i 1 5 5 R e y k j a v í k g l i t n i r . i s S í m i 4 4 0 4 4 0 0
Átök í Kosovo:
Sprengdu lögreglubíla
Lýsa vopnahléi:
Vilja ljúka
16 ára borg-
arastríði
ÚGANDA, AP Uppreisnarmenn í Úg-
anda hafa lýst yfir vopnahléi í 16
ára löngu borgarastríði sem geis-
að hefur í landinu. Þeir vilja nú
funda með Yoweri Museveni, for-
seta landsins, og semja um frið.
Uppreisnarmenn lýstu þessu yfir
á fundi með trúarleiðtogum í land-
inu. Caleb Akandwanaho, hers-
höfðingi og bróðir forsetans,
fagnaði þessum yfirlýsingum.
Museveni komst til valda í Úg-
anda árið 1986 eftir fimm ára
byltingu. ■
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur að tillögu Hafrann-
sóknarstofnunar bannað veiðar á
hrygningarslóðum þorsks á tíma-
bilinu 20. mars til 1. maí.
Hrygningarstoppið nú er tvö-
falt lengra en áður. Þá hefur há-
marksstærð netmöskva verið
minnkuð niður í sjö og hálfa
tommu til að draga úr veiðum á
stærstu fiskunum.
Grétar Mar Jónsson skipstjóri
segir með ólíkindum að Hafrann-
sóknastofnun ætli að byggja upp
þorskstofninn með því að stoppa
aðeins netabáta. Þeir veiði hverf-
andi magn heildaraflans, aðeins
10 til 15 þúsund tonn.
„Þó að þeir fari með riðilinn
niður í sjö og hálfa tommu mun
áfram veiðast stór þorskur þó að-
eins minna komi af honum. Þetta
virkar eins og fúsk eða káf út í
loftið til að friða eigin samvisku,“
segir Grétar Mar.
Að sögn Grétars munu netabát-
ar nú allir leggja upp laupana.
Smærri fiskur að landi þýði lægra
aflaverð. Miðað við hátt leiguverð
á þorski sé rekstrargrundvöllur-
inn brostinn. „Í gegnum tíðina
hefur manni ekki komið á óvart sú
vitleysa sem kemur frá Hafrann-
sóknastofnun. Þetta er bara meiri
vitleysa en oftast áður,“ segir
Grétar Mar. ■
Grétar Mar Jónsson:
Netabátar
leggja upp
laupana
SERBÍA, SVARTFJALLALAND, AP
Þrír lögreglubílar á vegum
Sameinuðu þjóðanna eyði-
lögðust þegar handsprengju
var kastað á lögreglustöð í
norðurhluta Kosovo. Bygg-
ingin varð einnig fyrir minni-
háttar skemmdum en ekkert
manntjón varð.
Árásin átti sér stað í þorp-
inu Kosovska Mitrovica en
þar býr fólk af bæði
serbneskum og albönskum
uppruna. Lögreglustöðin er á yfir-
ráðasvæði Serba í þorpinu en
serbneskir harðlínumenn hafa
lagst gegn afskiptum Sameinuðu
þjóðanna á svæðinu. ■
SÉRSVEITIR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Kosovo hefur verið undir yfirráðum Sam-
einuðu þjóðanna síðan 1999 og hefur það
mælst misvel fyrir meðal heimamanna.
GRÉTAR MAR JÓNSSON
Þetta virkar eins og fúsk eða káf út í loftið
til að friða eigin samvisku,“ segir Grétar
Mar Jónsson um tvöfalt lengra veiðibann
en venjulega á hrygningarslóð þorsks.