Fréttablaðið - 04.03.2003, Page 17
Leikstjórinn Rob Marshall vannóvænt aðalverðlaunin á verð-
launahátíð samtaka leikstjóra í
Bandaríkjunum sem haldin voru í
Los Angeles á laugardag. Þau fékk
hann fyrir mynd sína „Chicago“.
Fyrir hátíðina þóttu leikstjórarnir
Roman Polanski og Martin Scors-
ese sigurstranglegastir. Verðlaun-
in þykja á hverju ári gefa góða
vísbendingu um hver hljóti Ósk-
arsverðlaunin fyrir leikstjórn.
Söngkonan Ashanti vann tvennverðlaun á Soul Train-tónlistar-
hátíðinni sem haldin var á laugar-
dag. Hún fór heim með styttuna
fyrir „söngkonu ársins“ og „breið-
skífu ársins“. Tónlistarmaðurinn
Musiq var svo valin „söngvari árs-
ins“ auk þess sem hann fékk verð-
laun fyrir fyrstu breiðskífu sína.
Hollywood-leikarinn KevinSpacey hefur bæst í hóp þeirra
sem mótmæla
áætlaðri árás
Bandaríkjanna á
Írak. Hann vill að
deilan verði leyst
með pólitískum
leiðum. Hópur leik-
ara í Hollywood
hélt blaðamanna-
fund seint á síðasta ári þar sem
þeir mótmæltu harðlega áætlunum
Bush Bandaríkjaforseta.
George Michael hljóðritar nú lag-ið „The Grave“
sem lagahöfundur-
inn Don McLean
samdi og gaf út árið
1971 til þess að mót-
mæla Víetnam-stríð-
inu. Michael hyggst
uppfæra lag og texta
til þess að mótmæla
fyrirhugaðri árás á
Írak. Lagahöfundurinn segist vera
stoltur af því að popparinn skyldi
hafa valið lag sitt til þess að tjá hug
sinn.
17MÁNUDAGUR 3. mars 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6 og 9 bi. 16 ára
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8 og 10.30 KALLI Á ÞAKINU m/ísl.tali kl. 4
STAR TRAK NEMESIS kl. 10.10THE HOT CHICK kl. 4 og 8
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
FRIDA kl. 8 og 10.30 bi. 12 ára ABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8, 10.30
CHICAGO kl. 5.30, 8 og 10.30Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 bi. 16 ára
Fréttiraf fólki
Hinn blindi Daredevil er einallra flottasta hetja mynda-
sögubókmenntanna, þannig að eft-
irvæntingin eftir frumraun hans á
hvíta tjaldinu hefur verið umtals-
verð, ekki síst hjá dyggum aðdá-
endum. Að sama skapi er hætt við
að vonbrigði þeirra verði nokkur.
Slappt handrit kemur því miður í
veg fyrir að slagkraftur teikni-
myndasagnanna komist almenni-
lega til skila og þrátt fyrir hröð og
flott bardagatriði dettur myndin
óþarflega mikið niður á köflum. Út-
lit myndarinnar er þó alveg í anda
sagnanna, hún er skemmtilega
drungaleg og sagan gengur ágæt-
lega á meðan fylgst er með upp-
vexti Matts Murdocks, sem verður
að Daredevil eftir mengunarslys.
Fyrir fram óttaðist maður að
Ben Affleck yrði helsti veikleiki
myndarinnar en brotalamirnar í
handritinu gera það að verkum að
honum er að mestu fyrirgefið. Aðr-
ir leikarar standa sig flestir stórvel
og það sem mestu máli skiptir er að
Jennifer Garner virkar ágætlega í
hlutverki hinnar heillandi og ban-
vænu Elektru. Þannig að ef sögum
Franks Millers um DD hefði verið
fylgt betur eftir hefði útkoman get-
að orðið miklu betri.
Þórarinn Þórarinsson
DAREDEVIL:
Leikstjóri: Mark Steven Johnson
Leikarar: Ben Affleck, Jennifer Garner,
Colin Farrell
Umfjöllunkvikmyndir
Illa farið með
góðan dreng
■ BÆKUR
■ SJÓNVARP
Leikarinn Martin Sheen segir aðstjórnendur sjónvarpsstöðvar-
innar NBC óttist að andstaða hans
við hugsanlegt stríð Bandaríkjanna
gegn Írak muni draga úr vinsældum
þáttanna „The West Wing“.
Sheen, sem leikur Josiah Bartlet
Bandaríkjaforseta í þáttunum, hefur
verið ötull talsmaður gegn stríðinu.
Hann tók meðal annars þátt í mót-
mælum í síðustu viku þegar sendar
voru þúsundir tölvubréfa til Hvíta
hússins í andstöðu gegn stríðinu.
Í viðtali við blaðið The Los Angel-
es Times segir Sheen að samstarfs-
menn hans í þáttunum hafi sýnt bar-
áttu hans fullan skilning en aðra
sögu væri að segja af stjórnendum
NBC-stöðvarinnar. Þeir hafi látið í
ljós að þeir væru ekki sáttir við and-
stöðu hans gegn stríðinu. ■
Stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar NBC:
Óttast andstöðu
Sheen gegn Íraksstríði
SHEEN
Martin Sheen, sem er 62 ára gamall, er
harður andstæðingur hugsanlegs stríðs
Bandaríkjanna gegn Írak.
Skráningarsími
561 8585
Yogaspuni
Gauja litla
www.gauilitli.is
8 vikna aðhald
í World Class
aðeins 14.500 kr.
Ný námskeið
hefjast 10. mars
MADONNA
Madonna, sem er tveggja barna
móðir, vakti mikla athygli fyrir síðustu
bók sína „Sex“.
Madonna snýr
sér að ritstörfum:
Fimm
barnabækur
væntanlegar
Söngkonan Madonna ætlar aðsnúa sér að ritstörfum á næst-
unni því hún hefur samið við fyrir-
tækið Penguin um útgáfu á fimm
barnabókum.
Fyrsta bókin, sem kallast „The
English Rose“, verður gefin út í
september. Fjallar hún um ævin-
týri lítils prins og refs sem er rauð-
ur að lit. Hún er ætluð börnum sem
eru sex ára og eldri.
Síðasta bók Madonnu, „Sex,“
sem gefin var út árið 1990, vakti
mikla hneykslan fyrir djörf efnis-
tök. Þar birtust myndir af popp-
dívunni nakinni í hinum ýmsu stell-
ingum. Bókin náði umsvifalaust
metsölu og brátt kemur í ljós hvort
sú saga endurtaki sig. ■