Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 16. apríl 2003
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FÓTBOLTI
Mikilvægasti
leikur ársins
TÓNLEIKAR
Lögin
hans Páls
MIÐVIKUDAGUR
90. tölublað – 3. árgangur
bls. 20
FERÐAMÁL
Landsbyggðin
fær 100 milljónir
bls. 18
FUNDUR Leiðtogafundur Evrópusam-
bandsins hefst í Aþenu í dag.
Stækkun Evrópusambandsins til
austurs verður undirrituð og fer í
staðfestingarferli hjá öllum aðild-
arríkjum og umsóknarríkjum.
Leiðtogafundur í
Aþenu
FUNDUR Kynningarfundur um mann-
aflaþörf vegna fyrirhugaðra stór-
iðjuframkvæmda frá árinu 2003 til
2008 verður haldinn á Hótel Kea á
Akureyri klukkan 12. Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, mun ávarpa fundinn, en
síðan verða niðurstöður starfshóps
kynntar. Einnig verða á fundinum
erindi og hagnýtar ábendingar um
það hvernig íslensk fyrirtæki geta
sem best undirbúið sig í þeim til-
gangi að ná sem bestum árangri
varðandi tilboð og verkefni í fyrir-
sjáanlegum stóriðjuframkvæmd-
um.
Mannaflaþörf
rædd
FÓTBOLTI Tveir leikir fara fram í
deildarbikarkeppni Knattspyrnu-
sambands Íslands í kvöld. Haukar
mæta Víkingum í Reykjaneshöll
klukkan 20 og Fylkir tekur á móti
Grindavík í Egilshöll klukkan 20.30.
Fylkir mætir
Grindavík
bls. 4
REYKJAVÍK Austlæg átt 10-15
m/s og lítilsháttar rigning
öðru hvoru.
Hiti 9 til 13 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Rigning 9
Akureyri 8-13 Hálfskýjað 9
Egilsstaðir 8-13 Hálfskýjað 10
Vestmannaeyjar 13-18 Súld 10
➜
➜
➜
➜
FÓTBOLTI Á TUNGUBÖKKUM Veðurblíðan hefur verið mikil undanfarna daga og gróður virðist koma vel undan vetri. Segja má að
leikmenn Aftureldingar og ÍA tóku forskot á sæluna í gær, þegar leikur þeirra var færður úr knattspyrnuhúsinu Fífunni í Kópavogi upp á
Tungubakka í Mosfellsbæ. Leiknum lauk með 5 - 0 sigri ÍA og sést hér Stefán Þórðarson skora eitt markanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
STJÓRNMÁL „Það er mun meira að
gerast í þessari kosningabaráttu
en í kosningum undanfarinna ára.
Hún er miklu meira spennandi og
það eru miklu meiri tíðindi af
ýmsu tagi í henni en oft áður,
þannig að ég held ég verði að
segja að þetta sé óvenju merkileg
kosningabarátta,“ segir Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands.
Ein stærstu tíðindin telur
Gunnar Helgi felast í því hvað
kosningabaráttan er hörð og hvað
styrkleikahlutföll flokkanna hafa
breyst mikið, af skoðanakönnun-
um að dæma. „Það gneistar á milli
Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokksins,” segir Gunnar Helgi.
„Þessi tveggja flokka kosninga-
barátta er ekki eitthvað sem við
höfum átt að venjast hér á landi.“
Gunnar Helgi telur einnig til
tíðinda að forystumenn flokkanna
séu farnir að gefa út yfirlýsingar í
mun meiri mæli um það hvernig
stjórnarmynstur þeir telji að séu í
spilunum að afloknum kosningum.
„Menn eru farnir að spá í að þessi
eða hin stjórnin sé ekki á pappírn-
um. Það er fremur sjaldgæft.“ Að
sögn Gunnars Helga geta slíkar
yfirlýsingar aukið líkur á stjórn-
arkreppu. Miðað við síðustu skoð-
anakannanir, þar sem stjórnin
heldur ekki meirihluta, gæti
stjórnarkreppa blasað við ef
Frjálslyndir, Vinstri grænir og
Samfylking ná ekki saman. Sjálf-
stæðisflokkur hefur lýst sig
andsnúinn þriggja flokka sam-
starfi, Framsóknarflokkur ætlar
ekki í stjórn miðað við núverandi
stöðu og litlir kærleikar virðast
með Samfylkingu og Sjálfstæðis-
flokki.
Síðast en ekki síst telur Gunnar
Helgi það heyra til tíðinda hvað
munurinn á stefnumálum flokk-
anna er skýr um þessa mundir.
Undir það tekur Svanur Kristjáns-
son, prófessor í stjórnmálafræði,
sem telur kosningabaráttuna
óvenju merkilega af þeim sökum.
„Það er skýr munur varðandi
kvótakerfið,“ segir Svanur.
„Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur ætla ekki að breyta
því. Það er skýr munur varðandi
skattatillögur. Frjálslyndir og
Samfylkingin vilja skattalækkan-
ir sem koma fyrst og fremst þeim
tekjulægri til góða. Það er skýr
munur varðandi afstöðu til utan-
ríkismála, í Íraksmálinu. Það er
skýrari munur milli stjórnar og
stjórnarandstöðu en oft áður. Ég
man ekki eftir skýrari mun síðan
1971, þegar stjórnarandstaðan
vildi færa út landhelgina og
stjórnarflokkarnir ekki.“
gs@frettabladid.is
Óvenju merkileg og
hörð kosningabarátta
Tveir prófessorar í stjórnmálafræði telja yfirstandandi kosningabaráttu fela í sér stórfelldari póli-
tísk tíðindi en kosningar undanfarinna ára. Harðar yfirlýsingar auka líkur á stjórnarkreppu.
SVANUR
KRISTJÁNSSON
Man ekki eftir skýrari
málefnamun.
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
Kosningabaráttan er
óvenju hörð.
Páskastemmning
Opið
til 21.00 í kvöld
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðuneytið
gerir ráð fyrir 2,75% hagvexti í
nýrri skýrslu um þjóðarbúskap-
inn. Þetta er 1% meiri hagvöxtur
en ráðuneytið hafði áður spáð.
Ráðuneytið spáir enn meiri hag-
vexti á næsta ári eða 3,75%.
„Gangi þessi spá eftir markar
það upphafið á nýju hagvaxtar-
tímabili þar sem virkjunar- og ál-
versframkvæmdir verða fyrir-
ferðarmiklar allt fram til ársins
2010,“ segir í niðurstöðum skýrsl-
unnar. Í skýrslunni er gengið út
frá þeirri meginforsendu að auk
byggingar álvers á Reyðarfirði
verði ráðist í stækkun álverk-
smiðju Norðuráls á Grundartanga.
Reiknað er með að atvinnuleysi
verði að jafnaði um 3% af mann-
afla árið 2003 en fari lækkandi
þegar líða tekur á árið. Gert er ráð
fyrir að enn dragi úr atvinnuleysi
árið 2004. Í skýrslunni er gert ráð
fyrir að laun hækki að meðaltali
um 5% árið 2003 og 6% árið 2004
bæði vegna samningsbundinna
launahækkana og launaskriðs.
Samkvæmt þessum spám mun
kaupmáttur launa halda áfram að
aukast, um 3% árið 2003 og 3,5%
árið 2004.
Samkvæmt áætlun fjármála-
ráðuneytisins er talið að liðlega 2
milljarða króna halli hafi verið á
búskap hins opinbera í fyrra. Af-
koma ríkissjóðs er talin hafa verið
í járnum en nokkur halli varð á
rekstri sveitarfélaga. Árið 2003 er
gert ráð fyrir heldur batnandi af-
komu en þó áfram lítils háttar
halla. ■
Skýrsla fjármálaráðuneytisins um þjóðarbúskapinn:
Nýju hagvaxtartímabili spáð
Veðrið í vetur:
Fágætum
vetri að ljúka
VEÐUR Veturinn var mjög hlýr á
landinu samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands.
Mest munaði um fádæma hlýj-
an desembermánuð en einnig
voru aðrir mánuðir hlýir.
í Reykjavík og Stykkishólmi
var veturinn þriðji hlýjasti vetur
frá upphafi mælinga og á Akur-
eyri sá annar hlýjasti. Meðalhiti í
Reykjavík síðustu tólf mánuði er
hærri en nokkurs almannaksárs
frá upphafi mælinga, en finna má
nokkur önnur tilvik þegar 12
mánaða hiti var hærri, síðast í
mars 1945 til febrúar 1946.
Alhvítt var í 18 daga í
Reykjavík og hafa alhvítir dagar
ekki verið jafnfáir síðan árið
1977. Úrkomusamt var um sunn-
anvert landið og hefur úrkoma
ekki mælst meiri í Reykjavík frá
árinu 1992. ■
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
14%
D
V
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
61%
77%