Fréttablaðið - 16.04.2003, Side 2
2 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
“Að sjálfsögðu hefur þetta ekki
farið fram hjá mér.“
Össur Skarphéðinsson var á dögunum kjörinn
kynþokkafyllsti karlmaðurinn á Alþingi af hlust-
endum útvarpsstöðvarinnar Zombie. Hann er
kvæntur Árnýju Sveinbjörnsdóttur.
Spurningdagsins
Árný, vissir þú af þessu?
MOSUL Bandarískir hermenn
skutu tíu manns til bana og særðu
marga til viðbótar eftir að fólk
hafði gert aðsúg að nýjum borgar-
stjóra. Þetta hafa Al Jazeera og
AFP fréttastofurnar eftir læknum
á sjúkrahúsi borgarinnar og fólki
sem var á staðnum. Yfirmenn
Bandaríkjahers þvertaka fyrir að
bandarískir hermenn hafi hafið
skothríð á fólkið. Þeir hafi svarað
árásum óþekktra byssumanna
sem skutu á þá úr launsátri.
Haft er eftir Ayad al-Ramad-
hani, lækni á sjúkrahúsi borgar-
innar, að tíu til tólf manns hefðu
látist og um hundrað manns leitað
aðhlynningar vegna sára. Læknar
á spítalanum höfðu eftir særðu
fólki að til uppþota hefði komið
þegar borgarstjórinn hvatti fólk
til að sýna Bandaríkjaher sam-
vinnu. Fólk hefði grýtt borgar-
stjórann og hermenn svarað með
skothríð.
Talsmaður Bandaríkjahers
sagði að skotið hefði verið á her-
menn af húsþökum. Þeir hafi
svarað þeirri skothríð en ekki
skotið á almenning. Hann gat ekki
sagt til um hvort tilræðismennirn-
ir hefðu verið felldir.
Hveragerði:
Jarðskjálfti í
gærmorgun
HAMFARIR Jarðskjálfti mældist í
gærmorgun skammt frá Hvera-
gerði. Samkvæmt sjálfvirkum
mælum Veðurstofunnar voru
upptök skjálftans um þrjá kíló-
metra suður af Hrómundartindi
og mældist hann 2,3 á Richter.
Skjálftinn varð klukkan 8.30.
Í síðustu viku mældust þrír
jarðskjálftar í Ölfusinum, milli
Hveragerðis og Þorlákshafnar.
Stærsti skjálftinn mældist þá þrír
á Richter. Haft var eftir Gunnari
Guðmundssyni á jarðeðlissviði
Veðurstofunnar að minniháttar
hrinur væru ekki óalgengar á
þessu svæði og hefðu enga sér-
staka þýðingu. ■
SAMEINING „Starfsmenn eru auð-
vitað smeykir eftir þessar fyrstu
yfirlýsingar, sérstaklega í verð-
bréfadeildum bankanna,“ segir
Friðbert Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna,
um hug starfs-
manna Kaup-
þings og Búnað-
arbanka eftir yf-
irlýsingar um
s a m e i n i n g u
bankanna.
F r i ð b e r t
Traustason segir
að Heiðar Már
Jónsson, for-
stjóri Kaup-
þings, hafi látið
að því liggja að
einhverjar upp-
sagnir yrðu. Ennþá er ekki vitað
hvaða afleiðingar þessi sameining
kemur til með að hafa í för með
sér.
Friðbert segir reynsluna vera
þá að þegar tvær stórar deildir
séu sameinaðar, eins og verð-
bréfadeildir þessara banka, sé
ekki byrjað á því að tilkynna upp-
sagnir. Hann segir uppsagnir það
vitlausasta sem gert er, því það
komi óróa af stað innan bankans,
hjá starfsmönnum og einnig hjá
viðskiptavinum. „Starfsmenn eru
allir í sambandi við sína við-
skiptavini þannig að stjórnendur
láta líða einhvern tíma áður en
svokallaðri hagræðingu verður
náð fram, oft er beðið í eitt til
þrjú ár. Í verðbréfabransanum er
mikið af ungu fólki, sem getur
haft í för með sér meiri starfs-
mannaveltu en almennt er í við-
skiptabönkum. Yngra fólkið flyt-
ur sig meira til, meðal annars í
framhaldsnám. Því er hægt að ná
fram hagræðingu á skömmum
tíma án þess að grípa til róttækra
aðgerða eins og uppsagna,“ segir
Friðbert.
Friðbert segir sameiningar
stórra fyrirtækja án uppsagna
þekkta víða um Evrópu. Íslands-
banki og FBA gáfu það út í upp-
hafi sinnar sameiningar að ekki
yrðu uppsagnir heldur tíminn lát-
inn líða. Þannig myndu þeir ná
fram hagræðingu sem tókst mjög
vel. „Ég vona að Búnaðarbanki og
Kaupþing fari svipaða leið, það
væri hræðilegt fyrir starfsmenn
þeirra að eiga uppsagnir yfir
höfði sér. Orðspor bankans myndi
heldur ekki vera gott úti í þjóðfé-
laginu ef margir verða reknir.
Fyrirtæki þurfa að hugsa út frá
viðskiptalegum sjónarmiðum.
Viðskiptavinir vilja almennt að
vel sé komið fram við starfs-
menn. Það kostar kannski eitt-
hvað fyrst um sinn en til framtíð-
ar telja menn þetta vænlegustu
leiðina,“ segir Friðbert.
hrs@frettabladid.is
Á VEITINGASTAÐ
Að minnsta kosti 56 manns hafa látist af
völdum bráðalungnabólgu í Hong Kong og
virðist ekkert lát á útbreiðslu sjúkdómsins.
Sængurkona lést:
Björguðu lífi
ófædds barns
HONG KONG, AP Læknum í Hong
Kong tókst að bjarga lífi ófædds
barns 34 ára gamallar konu sem
veiktist af bráðalungnabólgu.
Barnið var tekið með keisara-
skurði 1. apríl síðastliðinn. Móðir-
in lést tæpum tveimur vikum síð-
ar en engar upplýsingar hafa
fengist um líðan barnsins. Faðir-
inn veiktist einnig en honum tókst
að sigrast á sjúkdómnum.
Konan var lögð inn á sjúkrahús
með einkenni bráðalungnabólgu
30. mars og var þá þegar orðin al-
varlega veik. Ákváðu læknar að
taka barnið með keisaraskurði
þrátt fyrir að níu mánaða með-
göngutíma væri ekki lokið. ■
ÚR, AP Þúsundir Sjítamúslíma
efndu til mótmæla nærri fundar-
staðnum þar sem fulltrúar ýmissa
samtaka og hópa Íraka voru sam-
an komnir til að ræða framtíð
Íraks. Fundurinn var haldinn að
frumkvæði Bandaríkjanna sem
buðu hópum og samtökum að
senda fulltrúa til þátttöku.
Stærstu samtök Sjítamúslíma,
Æðsta ráð íslamskrar byltingar í
Írak, hunsuðu fundarboð Banda-
ríkjamanna. „Írak þarfnast íra-
skrar bráðabirgðastjórnar,“ sagði
Abdul Aziz Hakim, einn leiðtoga
samtakanna. Allt annað væri end-
urhvarf til nýlendutímans.
Bandaríkjastjórn hefur „engan
áhuga, alls engan áhuga, á því að
stjórna Írak,“ sagði Zalmay
Khalilizad, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar, þeim sem mættu til
fundarins. Meðal þeirra sem
mættu voru Kúrdar,
Súnnímúslímar, Sjítamúslímar og
Írakar sem hafa búið erlendis.
Þeir ákváðu að funda aftur að tíu
dögum liðnum. ■
Skoðanakönnun Stöðvar 2:
Sjálfstæðis-
flokkur fær
tæp 37%
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk-
urinn er stærsti flokkur landsins
samkvæmt skoðanakönnun IBM
fyrir Stöð 2.
Flokkurinn mælist með 36,8%
og fengi samkvæmt því 25 þing-
menn. Samfylkingin er næst-
stærst með 33,9% og 22 þing-
menn. Framsóknarflokkurinn er
þriðji stærsti flokkurinn með
10,8% og 7 þingmenn, Vinstri
grænir með 8,6% og 5 þingmenn.
Frjálslyndir mælast með 7% og
fengju samkvæmt því 4 þing-
menn. ■
Héraðsdómur Reykjaness:
Stal Zippo
kveikjara
DÓMSMÁL 19 ára piltur búsettur í
Kópavogi mætti fyrir dómara
Héraðsdóms Reykjaness í gær en
hann var sakaður um að hafa brot-
ist inn í íbúðarhús í Kalundborg í
Danmörku árið 2000 og hafa stolið
þaðan myndavél, Zippo kveikjara
og tveimur bíllyklum. Pilturinn
játaði skýlaust og var ákvörðun
um refsingu frestað og að hún
verði látin niður falla haldi sak-
borningur skilorð. ■
Fréttablaðið
um páskana
Fréttablaðið kemur út á morgun,
skírdag og síðan þriðjudaginn 22.
apríl. Afgreiðsla Fréttablaðsins
verður opin til 18 í dag. Smáaug-
lýsingasíminn verður opin til
klukkan 22 í kvöld og frá klukkan
10 til 22 á laugardaginn. ■
Bótagreiðslur:
Hafa valdið
vonbrigðum
HÖFÐABORG, AP Bæturnar sem rík-
isstjórn Suður-Afríku hefur
ákveðið að greiða fórnarlömbum
aðskilnaðarstefnu hvíta meiri-
hlutans er rétt rúmlega helmin-
gur þess sem sannleiks- og sátta-
nefndin hafði lagt til. Ríkisstjórn-
in hefur samþykkt að greiða öll-
um þeim sem báru vitni fyrir
nefndinni andvirði 320.000 króna
en lagt hafði verið til að bæturnar
næmu nær hálfri milljón króna á
hvern einstakling.
Thabo Mbeki, forseti Suður-
Afríku, sagði ekki koma til greina
að skattleggja sérstaklega fyrir-
tæki sem grunuð eru um stuðning
við aðskilnaðarstefnuna eða styð-
ja lögsókn gegn þeim. ■
Hungursneyð:
Byssur fyrir
kjúklinga
ZAMBÍA, AP Bændur í Afríkuríkinu
Zambíu hafa átt vöruskipti við ná-
granna sína í Angóla að undan-
förnu. Þeir hafa látið geitur og
kjúklinga í skiptum fyrir byssur. Í
kjölfar áratugalangs borgara-
stríðs er ofgnótt vopna í Angóla
en lítið af mat, enda hafa stríðsá-
tökin leikið landsmenn grátt.
Lögreglumenn í norðvestur-
hluta Zambíu skáru upp herör
gegn vöruskiptunum í kjölfar
þess að átta morð voru framin á
skömmum tíma. ■
Blóðpeningar:
Heiðnir á
hálfvirði
TEHERAN, AP Harðlínumenn í Íran
hafa beitt neitunarvaldi gegn
lagafrumvarpi þess efnis að
morðingjar skulu greiða aðstand-
endum fórnarlamba sinna jafn-
háa upphæð óháð trúarbrögðum.
Þingið sem er skipað umbótasinn-
um hafði áður samþykkt frum-
varpið.
Samkvæmt gildandi lögum
eiga morðingjar að greiða ætt-
ingjum fórnarlambsins bætur að
andvirði tæpra tveggja milljóna
króna ef fórnarlambið er múslí-
mi. Aðhyllist fórnarlambið önnur
trúarbrögð eru bæturnar, svo-
kallaðir blóðpeningar, helmingi
lægri. ■
BANDARÍKJAMENN Í MOSUL
Læknar segja fjölda manns hafa látist og
særst.
Bandaríkjamenn sagðir skjóta á mannfjölda á útifundi:
Tíu látnir og
fjölmargir særðir
FUNDAÐ Í TJALDI
Fundurinn í gær fór fram í tjaldi sem reist var
á flugvelli nærri hinum sögufræga stað Úr.
Fulltrúar íraskra hópa beina sjónum að framtíð Íraks:
Þúsundir Sjítamúslíma mótmæla
Starfsmenn ugg-
andi um sinn hag
Formaður Sambands íslenskra bankamanna segir sameiningar stórra
fyrirtækja án uppsagna þekkjast víða um Evrópu.
AFGREIÐSLA BÚNAÐARBANKANS Í KRINGLUNNI
Ekki er vitað hvaða afleiðingar sameiningin hefur fyrir starfsmenn bankanna.
„Hægt að
ná fram hag-
ræðingu á
skömmum
tíma án þess
að taka til
rótækra að-
gerða eins og
uppsagna.