Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 6
6 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.21 -0,58%
Sterlingspund 121.30 -0,76%
Dönsk króna 11.19 -0,36%
Evra 83.09 -0,41%
Gengisvístala krónu 120,02 -0,34%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 320
Velta 2.778 milljónir
ICEX-15 1.417 0,27%
Mestu viðskipti
Ker hf. 181.021.117
Kaupþing banki hf.128.363.653
Búnaðarbanki Íslands hf.115.166.948
Mesta hækkun
Ísl. hugbúnaðarsjóðurinn hf.6,49%
Skýrr hf. 3,57%
Samherji hf. 2,25%
Mesta lækkun
Flugleiðir hf. -4,17%
Grandi hf. -2,56%
Kaupþing banki hf. -1,67%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8380,7 0,4%
Nasdaq*: 1392,0 0,5%
FTSE: 3916,8 1,8%
DAX: 2853,5 2,8%
NIKKEI: 7838,8 1,1%
S&P*: 889,9 0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Kálfur leit dagsins ljós í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum um síðustu helgi.
Hvað heitir kálfurinn?
2Bandaríkjamenn hafa sakað Sýrlend-inga um að reyna að koma sér upp
gereyðingarvopnum. Hvað heitir forseti
Sýrlands?
3Tvær stúlkur af erlendu bergi brotnarkeppa um titilinn Ungfrú Ísland.is.
Frá hvaða löndum koma stúlkurnar?
Svörin eru á bls. 30
4. flokki 1992 – 38. útdráttur
4. flokki 1994 – 31. útdráttur
2. flokki 1995 – 29. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 2003.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Íbúðalánasjóði,
í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Útdráttur
húsbréfa
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
SVEITARFÉLÖG Foreldrar nemenda
við Lækjarskóla og starfsfólk
skólans hefur lagt fram undir-
skriftalista gegn frestun á bygg-
ingu íþróttahúss og kennslusund-
laugar við Lækjarskóla.
Sjálfstæðismenn í bæjarráði
Hafnarfjarðar segjast taka heils-
hugar undir mótmælin. Þeir
minna á að fyrrverandi meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks hafi samþykkt að
mannvirkin yrðu tekin í notkun í
ágúst árið 2004. Sérkennilegt sé
að Samfylkingin dragi lappirnar
í máli sem sé til hagsbóta og hag-
ræðis fyrir nemendur auk þess
að bæta öryggi þeirra:
„Bæjarráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins telja það forkastanlegt
að tala eilíflega um flýti-
framkvæmdir og það jafnvel um
verk sem þegar var ákveðið að
ráðast í.“
Bæjarfulltrúar Samfylking-
arinnar segja tillögu um upp-
byggingu kennslusundlaugar
hafa verið vísað til frekari
umfjöllunar og afgreiðslu hjá
stjórn Fasteignafélags Hafnar-
fjarðar:
„Nánari skoðun á fram-
kvæmdaáætlun íþróttaaðstöðu
við Lækjarskóla er því í fullri
vinnslu og niðurstaða mun liggja
fyrir við framlagningu nýrrar
3ja ára framkvæmdaáætlunar nú
á næstunni.“ ■
LÆKJARSKÓLI Í HAFNARFIRÐI
Foreldrar nemenda í Lækjarskóla eru óánægðir með frestun íþróttahúss og sundlaugar
við skólann. Sjálfstæðismenn í bæjarráði taka undir. Meirihluti Samfylkingar segir til skoð-
unar að setja sundlaugina á þriggja ára áætlun.
Sjálfstæðismenn taka undir með foreldrum og starfs-
fólki Lækjarskóla:
Deilt um frestun
íþróttamannvirkja
VÍGAMAÐUR SYRGÐUR
Ættingjar Abed Al-Hamed Abu Al-Aesh
gráta hann. Ísraelskir hermenn skutu hann
á landamærum Gaza og Egyptalands.
Blóðugur dagur:
Sex felldir
MIÐAUSTURLÖND, AP Sex manns létu
lífið í þremur atvikum á Vestur-
bakkanum og Gaza-ströndinni í
gær, þrír Ísraelar og þrír Palest-
ínumenn.
Palestínumaður var skotinn til
bana eftir að hafa drepið tvo Ísra-
ela með skothríð og handsprengj-
um á landamærum Gaza og Ísra-
els. Ísraelskur lögreglumaður féll
fyrir hendi palestínsks manns
sem lögreglan eltist við í Nablus.
Umsátur var gert um Palestínu-
manninn sem féll í skothríðinni.
Vopnaður Palestínumaður var
skotinn til bana af Ísraelum í
Rafah-flóttamannabúðunum. ■
SKOÐANAKÖNNUN Um 80% lands-
manna bera frekar eða mjög
mikið traust til lögreglunnar
samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins sem gerð var á
laugardaginn. Úrtakið var 1.200
manns.
Aðeins 5% segjast bera frek-
ar lítið traust til lögreglunnar
og 2% mjög lítið traust. Mjög
lítill munur er á afstöðu fólks
eftir búsetu, en þegar niður-
stöðurnar eru skoðaðar með til-
liti til kynja kemur í ljós að
karlar bera markvert minna
traust til lögreglunnar en konur.
Um 9% karla bera frekar eða
mjög lítið traust til lögreglunn-
ar samanborið við um 5%
kvenna. Karlar á landsbyggð-
inni vantreysta lögreglunni ör-
lítið meira en karlar í þéttbýli.
Landsmenn bera mun minna
traust til dómstólanna en lög-
reglunnar. Tæplega 60% lands-
manna segjast bera mjög eða
frekar mikið traust til dómstól-
anna, en 16% segjast bera frek-
ar lítið eða mjög lítið traust til
þeirra. Lítill munur er á afstöðu
fólks eftir búsetu, en fólk á
landsbyggðinni vantreystir
dómstólunum örlítið meira en
fólk í þéttbýli.
Konur, sem bera meira traust
til lögreglunnar en karlar sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar-
innar, bera minna traust til
dómstólanna en karlar. Um 17%
kvenna segjast bera frekar eða
mjög lítið traust til dómstól-
anna, samanborið við 14%
karla. Örlítið fleiri konur á
landsbyggðinni vantreysta
dómstólunum en konur í þétt-
býli. Munurinn er samt varla
marktækur.
Úrtakið var 1.200 manns.
Spurt var: Hversu mikið traust
berð þú til lögreglunnar á Ís-
landi? og: Hversu mikið traust
berð þú til dómstólanna á Ís-
landi?
trausti@frettabladid.is
FÁIR VANTREYSTA LÖGREGLUNNI
Um 9% karla bera frekar eða mjög lítið
traust til lögreglunnar samanborið við um
5% kvenna.
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
Um 17% kvenna segjast bera frekar eða
mjög lítið traust til dómstólanna, saman-
borið við 14% karla.
Dómstólar njóta minna
trausts en lögreglan
Um 80% landsmanna treysta lögreglunni en 60% bera traust til dómstólanna. Karlar vantreysta
lögreglunni frekar en konur. Dæmið snýst við þegar kemur að dómstólunum.
Mjög mikið
24%
Frekar mikið
56%
Hvorki né
13%
Frekar lítið
5%
Mjög lítið
2%
Mjög mikið
15%
Frekar mikið
44%
Hvorki né
25%
Frekar lítið
10%
Mjög lítið
6%
Grunaður um mansal:
Gögn að
utan
LÖGREGLUMÁL Gert er ráð fyrir að
ákæra verði gefin út í næstu viku á
hendur manni sem grunaður er um
að hafa reynt að koma fjórum Kín-
verjum ólöglega til Bandaríkjanna
gegn peningagreiðslu. Jóhann R.
Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, segir rannsókn
málsins ganga vel.
Maðurinn, sem er bandarískur
ríkisborgari, er grunaður um man-
sal og var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 1. maí. Starfsmenn sýslu-
mannsembættisins hafa leitað
gagna víða í tengslum við rannsókn
málsins og farið til Þýskalands og
Bandaríkjanna í því skyni. ■
SJÁVARÚTVEGUR Vilyrði Davíðs Odd-
sonar forsætisráðherra og Árna
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
um 30 þúsund tonna aukningu
þorskveiðiheimilda styðjast ekki
við ráðgjöf Hafrannsóknastofnun-
ar. Ráðherrarnir segjast byggja á
upplýsingum stofnunarinnar.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, bendir á
að í ástandsskýrslu stofnunarinnar
frá í fyrra sé gert ráð fyrir áður-
greindri aukningu á næsta fisk-
veiðiári. Mælingar í svokölluðu tog-
araralli í síðasta mánuði hafi sýnt
9% aukningu í þorskstofninum.
Hins vegar byggi stofnunin fisk-
veiðiráðgjöf sína á fleiri þáttum.
Ráðgjöfin fyrir næsta fiskveiðiár
verði gefin út um mánaðamótin
maí-júní eins og venja sé.
„Ráðherrarnir eru væntanlega
að vísa í ástandsskýrsluna frá í
fyrra og í togararallið í mars. Við
viljum hins vegar hafa ýmsa fyrir-
vara á þessu þar til okkar úttekt er
að fullu lokið,“ segir Jóhann.
Gangi áætlanir Hafrannsókna-
stofnunar frá í fyrra og áform ráð-
herranna eftir munu aflaheimildir í
þorski verða 209 þúsund tonn á
næsta fiskveiðiári, sem hefst 1.
september í haust. ■
HAFRANNSÓKNASKIPIÐ BJARNI
SÆMUNDSSON
„Höfum fyrirvara þar til okkar úttekt er að
fullu lokið,“ segir Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, um hugsan-
lega aukningu þorskveiðiheimilda.
Vilyrði forsætisráðherra um auknar þorskveiðiheimildir:
Styðst ekki við ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar
HVERSU MIKIÐ TRAUST BERÐ ÞÚ
TIL LÖGREGLUNNAR Á ÍSLANDI?
HVERSU MIKIÐ TRAUST BERÐ ÞÚ
TIL DÓMSTÓLANNA Á ÍSLANDI?
INNHERJASVIK Fjórir danskir
bankamenn hafa fengið skilorðs-
bundna fangelsisdóma fyrir
innherjasvik. Mennirnir voru
starfsmenn Midtbank þegar hann
var seldur Handelsbanken.
Mennirnir keyptu hlutabréf í
bankanum, sem hækkuðu um
150% við samrunann.
■ Norðurlönd