Fréttablaðið - 16.04.2003, Side 7
BANGKOK, AP Að minnsta kosti 359
manns hafa látist og yfir 23.000
slasast í umferðarslysum á fyrstu
þremur dögum nýárshátíðarhalda
í Tælandi. Songkran, sem einnig
er kölluð vatnshátíðin, er stærsta
hátíð Tælendinga og fylgir henni
jafnan mikill hamagangur. Millj-
ónir manna ferðast landshluta á
milli til þess að hitta fjölskyldur
sínar og er talsvert um ölvun-
arakstur.
Fullorðnir karlmenn og ung-
lingspiltar hafa orðið valdir að um
85 prósentum banaslysanna og
um 75 prósentum annarra um-
ferðaróhappa. Að sögn heilbrigð-
isráðuneytisins hefur yfir helm-
ingur þeirra sem hafa slasast ver-
ið undir áhrifum áfengis.
Á síðasta ári létu 567 manns líf-
ið og yfir 38.000 slösuðust í um-
ferðarslysum á meðan á Songkran
stóð. Í ár hafa verið gerðar um-
fangsmiklar öryggisráðstafanir
til þess að stemma stigu við þess-
um óæskilega fylgifiski hátíðar-
haldanna. Læknar eru á vakt allan
sólarhringinn á yfir 900 stöðum
víðs vegar um landið. Enn fremur
hefur konum verið bannað að
ganga í efnislitlum fatnaði á með-
an á hátíðinni stendur. Yfirgnæf-
andi meirihluti landsmanna er
samþykkur því að banna konum
að klæðast hlýrabolum. ■
Prenta.is býður þér stórkostlegan sparnað!
Vissir þú að það er hægt að endurfylla öll blekhylki með áfyllingarsettinu frá prenta.is?
Sparaðu í rekstrarkostnaði prentarans þíns og notaðu blekhylkið þitt aftur og aftur.
Sem dæmi getur þú fyllt á blekhylkið þitt fyrir u.þ.b 400 kr hjá prenta.is
Þú getur sparað þér stórar upphæðir á prenta.is
Prenta.is hjálpar þér að spara
www. prenta.is
Finnst þér dýrt að kaupa blekhylki?
8 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
WorldCom:
Óskar
nýs lífs
NEW YORK, AP Nokkrum mánuðum
eftir að hafa skilað inn stærstu
gjaldþrotabeiðninni í sögu Banda-
ríkjanna hafa stjórnendur
WorldCom farið fram á að fá að
endurskipuleggja reksturinn og
halda áfram. Helstu lánardrottnar
fyrirtækisins hafa lýst stuðningi
sínum við að sú leið verði farin.
Skuldir fyrirtækisins námu á þriðja
þúsund milljarða króna þegar það
lýsti yfir gjaldþroti. Nú er farið
þess á leit að meirihluti skuldanna
verði gefinn eftir. Verði dómstóll
við beiðni fyrirtækisins hyggjast
stjórnendur breyta nafninu í MCI
eftir einu undirfyrirtækja þess. ■
ÓLÆTI Stjórn Skólafélags Mennta-
skólans við Sund og nemendur
hafa sent frá sér tilkynningu í kjöl-
far óláta sem urðu í miðbæ
Reykjavík þegar nemendur
dimitteruðu. Þurfti lögregla að
skerast nokkrum sinnum í leikinn.
Höfðu nemendur m.a. ráðist á tvo
starfsmenn verslana við Lauga-
veg. Annar var fluttur á slysadeild
með höfuðáverka. Flöskum var
kastað í bíla sem óku niður Lauga-
veg og rúða brotin í verslun.
„Framferði nokkurra nemenda
var skólanum og öllum nemendum
hans til skammar. Stjórnin vill hins
vegar árétta að einungis örfáir ein-
staklingar innan skólans voru að
verki,“ segir í tilkynningunni. Þá
segist stjórnin styðja allar ákvarð-
anir skólayfirvalda hvað varðar þá
sem hlut áttu að máli. Að lokum
eru allir sem urðu fyrir ónæði eða
eignatjóni beðnir innilegrar afsök-
unar fyrir hönd allra nemenda
skólans. ■
LÍFEYRIR Fjármálaeftirlitið var
spurt um það í lok október hvort
því væri kunnugt um það að Sig-
urður Tryggvi Sigurðsson, endur-
skoðandi Lífeyrissjóðs Austur-
lands, og Gísli Marteinsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri sama
lífeyrissjóðsins, hefðu á sama
tíma og þeir störfuðu við sjóðinn
rekið saman einkafyrirtækið Sjö
dverga ehf. Félagið var rekið und-
ir þeim yfirlýsta tilgangi að það
annaðist kaup og
sölu hlutabréfa,
annarra verðbréfa
og fasteigna. Sá
sem spurði Fjár-
málaeftirlitið um
þetta atriði benti á
það í bréfi sínu að það væri hans
mat að samvinna endurskoðand-
ans og framkvæmdastjórans á
þessu sviði fæli í sér lögbrot.
„Þetta fyrirtæki var ætlað til
þess að leggja áhættubréf og sjö
manns lögðu fram 100 þúsund
krónur hver. Við áttum engin við-
skipti við Lífeyrissjóð Austur-
lands. Þetta félag er lifandi dautt,
menn urðu blankir einn tveir og
þrír,“ segir Sigurður Tryggvi Sig-
urðsson endurskoðandi um
Dvergana sjö. Hann segist ekki
telja að þótt hann ætti fyrirtæki
úti í bæ með framkvæmdastjóra
lífeyrissjóðsins ættu tengsl þeirra
við lífeyrissjóðinn að skipta neinu
máli.
Páll Gunnar Pálsson, forstöðu-
maður Fjármálaeftirlitsins, segist
ekki geta tjáð sig um einstök er-
indi sem til stofnunarinnar ber-
ast. Hann segir þó vera ljóst að
Fjármálaeftirlitið hafi haft Líf-
eyrissjóð Austurlands til eftirlits
og skilað ýmsum athugasemdum
til stjórnar sjóðsins.
„Við höfum meðal annar til at-
hugunar þær ábendingar sem því
berast og eftirliti okkar er hvergi
lokið,“ segir Páll Gunnar. Hann
segir jafnframt að það sé á valdi
stjórnar sjóðsins að upplýsa um
afskipti Fjármálaeftirlitsins.
Málefni Lífeyrissjóðs Austur-
lands hafa verið mjög í brenni-
depli eftir að á daginn kom stór-
tap sjóðsins. Þá hefur komið í ljós
að sjóðstjórnin hefur staðið að
vafasömum aðgerðum svo sem
kaupum á einbýlishúsi fráfarandi
framkvæmdastjóra og starfsloka-
samnings upp á 29 milljónir króna
sem gerður var við hann. Stjórnin
er einnig gagnrýnd fyrir vafa-
samar fjárfestingar í óskráðum
félögum á borð við enska fót-
boltaliðið Stoke.
Nokkrir sjóðfélagar hafa kraf-
ist opinberrar rannsóknar og
kært stjórnarmenn og endurskoð-
anda til ríkissaksóknara fyrir
meint brot á lögum í starfi sínu.
Meðal þess sem er bent á í
kæru Austfirðinganna er að ávöxt-
un hjá Lífeyrissjóði Austurlands
hefur verið afspyrnu slök undan-
farin ár og árin 1998 og 2000 tæp-
lega 1,7 milljarður króna. Á sama
tíma var rekstarkostnaður sjóðs-
ins með því hæsta sem gerðist hjá
sambærilegum lífeyrissjóðum eða
á bilinu 4,18 til 5,81 prósent af inn-
komnum iðgjöldum en til saman-
burðar voru aðrir sjóðir með á bil-
inu 1,1 til 4,38 prósent í kostnað
vegna reksturs.
rt@frettabladid.is
HÆTTULEGUR LEIKUR
Yfirvöld á Tælandi hafa gripið til þess ráðs
að banna háþrýstivatnsbyssur á meðan á
hátíðarhöldunum stendur.
Spyrja um
Dvergana sjö
Stjórn Lífeyrissjóðs Austurlands og endurskoð-
andi kærð til efnahagsbrotadeildar. Málefni
sjóðsins enn til athugunar Fjármálaeftirlitsins.
Menntaskólinn við Sund:
Biðjast afsökunar
á framferði nemenda
AUSTURLAND
Ýmislegt þykir athugavert við fjárreiður Líf-
eyrissjóðs Austurlands.
■
Málefni sjóðs-
ins eru enn til
athugunar Fjár-
málaeftirlitsins.
Tælendingar fagna nýju ári:
Skemmta sér úr hófi fram
Orðrétt
Nirflarnir sem vilja allt
ókeypis
Mætum öll á skrifstofur þeirra og
þiggjum veitingar þeirra. Það virð-
ist það eina sem við getum ætlast
til af þeim á fjögurra ára fresti.
Haraldur Árnason skorar á fátæklinga.
DV, 14. apríl.
Í alvöru?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ver-
ið við völd undanfarin tólf ár.
Berglind Svavarsdóttir 9. maður D-lista í Norð-
austurkjördæmi. Morgunblaðið, 12. apríl.
Hamskiptin
Ég er í hópi þeirra sem telja að
Morgunblaðið breytist í „flokks-
málgagn Sjálfstæðisflokksins“
þegar líður að kosningum.
Kristján Ari Arason. Morgunblaðið, 12. apríl.