Fréttablaðið - 16.04.2003, Page 8
10 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Ég er bara að draga
fram reynsluna. Það hefur farið
framhjá mörgum hversu vel hefur
gengið hjá smærri þjóðum innan
ESB,“ segir Þorsteinn Þorgeirsson,
hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Þorsteinn ritar grein á vef sam-
takanna þar sem hann rekur kosti
ESB-aðildar. Reynsla smærri ríka
hafi verið á einn veg: Minn vaxta-
kostnaður, lægra verðlag og meiri
stöðugleiki. Í Kastljósi Sjónvarps-
ins á sunnudag var einna helst á
forkólfum stjórnmálaflokkanna að
skilja að aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu væri ekki einu sinni
inni á kortinu í kosningabaráttu
komandi. Þorsteinn vill ekki leggja
mikið út af því, segir að stjórn-
málamennirnir meti þetta út frá
eigin forsendum.
„Ég tel að það yrði til góðs fyrir
Ísland að gerast aðili og taka upp
evruna, þá fyrir atvinnulífið og
sérstaklega samkeppnisgreinarn-
ar: Iðnað, ferðaþjónustu, samgöng-
ur og á sinn hátt fiskvinnsluna ein-
nig. Því miður, meðan við erum
utan ESB, er virðisauki í fisk-
vinnslu að eiga sér stað að miklu
leyti í Frakklandi og öðrum ESB
löndum þar sem afurðirnar eru
fullunnar. Við verðum þannig af
verulegum launatekjum.“
Þorsteinn segir þetta langtíma-
mál og á því margar hliðar sem
verði að fjalla um og kanna. ■
ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON
Hagfræðingur Samtaka iðnaðarins er sann-
færður um að það yrði til góðs fyrir Ísland
að sækja um aðild að ESB.
Samtök iðnaðarins vekja athygli á kostum ESB-aðildar:
Háir vexir og hátt
gengi brenna á iðnaði
!" #$"%$"
!"#$$%&%%'()(*+,-,./-,0-
(1-.!+!-2..!2.3,.'4 5550-,0-6-'#7'
COLIN POWELL
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur
gagnrýnt Sýrlandsstjórn harkalega.
Ekki innrás
WASHINGTON Bandaríkjastjórn hef-
ur ekki uppi áætlanir um að ráð-
ast á Sýrland þrátt fyrir harða
gagnrýni hennar á sýrlensk
stjórnvöld. Þetta hafa bresk og
bandarísk dagblöð eftir heimild-
armönnum innan bandaríska
stjórnkerfisins.
Breska blaðið The Guardian
segir að Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
hafi á undanförnum vikum látið
undirmenn sína vinna drög að
hugsanlegri innrás. Hvíta húsið er
sagt hafa stöðvað þá vinnu. ■
SVEITARSTJÓRNIR Minnihluti Neslist-
ans í bæjarstjórn Seltjarnarness
vill upplýsingar um sérfræðiálit
sem bæjarstjóri sagði hafa verið
unnið um fjármál bæjarins.
Fyrirspurn Neslistans er sett
fram í framhaldi síðari umræðu
bæjarstjórnar um langtímafjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir árin
2004-2006.
„Hvar er að finna það sérfræði-
álit sem vísað er til í bókun bæjar-
stjóra um trausta fjárhagsstöðu,
áframhaldandi skilvirkni í rekstri,
markvissa niðurgreiðslu lang-
tímalána og metnaðarfulla þjón-
ustu við íbúa á hagkvæmum skatt-
kjörum? Af hverju var þessu sér-
fræðiáliti ekki dreift til bæjarfull-
trúa við framlagningu langtíma-
fjárhagsáætlunar?“ spyr Neslist-
inn.
Þá vill Neslistinn fá upplýst
hvaða sérfræðingar hafi unnið út-
tekt á viðhaldsmati fasteigna bæj-
arins til næstu fimm ára: „Bæjar-
stjóri fullyrðir að í þeirri skýrslu
komi fram að viðhaldsþörf fast-
eigna sé 23 til 25 milljónir króna. á
ári á næstu fimm árum. Af hverju
hefur þessi skýrsla ekki verið lögð
fram? Hvað kostaði þetta sér-
fræðiálit? Hvar var sú ákvörðun
tekin að láta vinna úttektina?“ ■
SELTJARNARNES
„Af hverju hefur þessi skýrsla ekki verið lögð
fram? Hvað kostaði þetta sérfræðiálit?“ spyr
Neslistinn um sérfræðiúttekt sem bæjar-
stjórinn á Seltjarnarnesi segir hafa verið
unna um viðhald fasteigna bæjarins.
Minnihlutinn á Seltjarnarnesi krefst aðgangs að
sérfræðiáliti:
Hvar eru sérfræðiálitin
og hver vann þau?
■ Innrás í Írak/Sýrland