Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 14
19MIÐVIKUDAGUR 16. apríl 2003
FÓTBOLTI Svissneska dagblaðið
24Heures greinir frá því að full-
trúar svissnesku og austurrísku
deildakeppninnar hafi hist í Vín-
arborg til að ræða möguleikann á
sameiningu efstu deilda landanna.
Vinnan við sameininguna er á
byrjunarstigi og vill Knattspyrnu-
samband Evrópu ekki taka af-
stöðu í málinu fyrr en fullmótaðar
hugmyndir liggja fyrir.
UEFA hefur hingað til ekki
verið hrifið af viðleitni við að
sameina deildir tveggja landa, eða
hleypa félögum í deildir annarra
landa. UEFA bendir einnig á að
ráðstöfun sæta í Evrópukeppnum
til einstakra landa gæti reynst
flókin með þessu fyrirkomulagi.
Norska dagblaðið Adresse-
avisen tók upp þráðinn og spurði
Åge Hareide, þjálfara Rosenborg-
ar, um álit hans á skandinavískri
deild með bestu félögum Noregs,
Svíþjóðar og Danmerkur. Hareidi
sér marga kosti við slíka deild og
segir að keppnin gæti fljótt orðið
Meistaradeild Evrópu í smækk-
aðri mynd. Aðsókn að leikjum
ætti að verða góð og umfjöllun í
sjónvarpi mikil en samanlagt eru
sjónvarpsáhorfendur í Skandinav-
íu um 18 milljónir. Hareide segir
að það þurfi að vera einhver gul-
rót í svona keppni, t.d. öruggt sæti
í Meistaradeildinni fyrir sigur.
Hareide sér einnig vankantana
á hugmyndinni og hefur t.d.
áhyggjur af stöðnun félaga sem
standa utan skandinavísku deildar-
innar. Hugmynd um skandinavíska
deild hefur áður verið til umræðu í
Noregi og tóku forsvarsmenn Ros-
enborgar þá afstöðu gegn henni. ■
JORDAN KVEÐUR
Michael Jordan, leikmaður Washington
Wizards, veifar til áhorfenda eftir síðasta
heimaleik sinn með liðinu í NBA-deildinni
í körfubolta, en kappinn leggur skóna á
hilluna eftir þessa leiktíð. Leikurinn var
háður í fyrrakvöld þegar Wizards tóku á
móti New York Knicks. Jordan og félagar
töpuðu með 93 stigum gegn 79.
15.00 Stöð 2
Spænsku mörkin. Þáttur um leiki spæn-
sku knattspyrnunnar um síðustu helgi.
17.45 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþróttavið-
burði heima og erlendis.
18.15 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti West World.
18.45 Sýn
Bein útsending frá leik Arsenal og
Manchester United.
20.00 Reykjaneshöllin
Haukar og Víkingur leika í Deildabikar-
keppni karla.
20.30 Egilshöll
Fylkir leikur gegn Grindavík í Deildabikar-
keppni karla.
21.00 Sýn
Manchester United: The Movie (Rauðu
djöflarnir)
22.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþróttavið-
burði heima og erlendis.
23.00 Sýn
Bein útsending frá leik Philadelphia og
Washington í NBA.
FÓTBOLTI Ísland mætir Finnum í A-
landsleik í knattspyrnu í Vantaa
miðvikudaginn 30. apríl.
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari, tilkynnti leikmannahópinn í
gær og er útlit fyrir að Ísland geti
teflt fram sínu sterkasta liði. Her-
mann Hreiðarsson og Heiðar
Helguson koma að nýju inn í hóp-
inn en þeir misstu af síðasta
landsleik vegna meiðsla.
Guðni Bergsson, sem leikur
með Bolton á Englandi, er einnig í
hópnum. Hann lék með landslið-
inu í fyrsta sinn í fimm og hálft ár
þegar Íslendingar léku gegn Skot-
um. ■
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
APRÍL
Miðvikudagur
Knattspyrnan í Evrópu:
Alpadeild og
skandinavísk deild?
AUSTURRÍSK
KNATTSPYRNA
Andreas Herzog
(Rapid Wien) og
Ewald Brenner (SV
Salzburg) í leik fé-
laganna á sunnudag.
Austurrísk félög
keppa hugsanlega í
deild með svissnesk-
um félögum í fram-
tíðinni.
A-landsliðið valið:
Guðni áfram
í hópnum