Fréttablaðið - 16.04.2003, Side 15
■ ■ FUNDUR
20.30 Bókaútgáfan Bjartur stendur
fyrir útgáfuhátíð á Súfistanum, Lauga-
vegi 18, í tilefni af útkomu bókarinnar
Ristavél eftir danska rithöfundinn Jan
Sonnergaard í þýðingu Hjalta Rögn-
valdssonar.
■ ■ TÓNLIST
19.30 Oslo Youth Representa-
tion Band, sem er ein besta skóla-
hljómsveit Noregs, heldur tónleika í
Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavík-
urkirkju. Í hljómsveitinni eru 58 ungir
hljóðfæraleikarar sem allir eru félagar í
einhverjum hinna 86 skólahljómsveita
í Osló.
20.00 Hanna Dóra Sturludóttir
sópran, Finnur Bjarnason tenór og
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari
flytja öll sönglög Páls Ísólfssonar í
Salnum í Kópavogi. Ekki er vitað til þess
að öll sönglög Páls hafi áður verið flutt
opinberlega á einum tónleikum.
■ ■ LEIKLIST
19.00 Leikfélag Akureyrar sýnir
Leyndarmál rósanna eftir Manuel Puig
í Samkomuhúsinu á Akureyri.
20.00 Einleikurinn Hin smyrjandi
jómfrú verður sýndur í Iðnó. Smur-
brauðsverður er innifalinn.
Aukasýning á einleiknum Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur í Sjallanum á
Akureyri.
Hugleikur sýnir í kvöld í síðasta
sinn leikritið Undir hamrinum eftir
Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu
Skúladóttur í Tjarnarbíói.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Smack spilar á Hard Rock.
Skítamórall spilar í Sjallanum, Ak-
ureyri.
Á móti sól leikur í Miðgarði, Skaga-
firði ásamt hljómsveitinni Von.
Hljómsveitin Hunang spilar á
Players í Kópavogi.
Rally-Cross sér um fjörið á miðhæð-
inni á Laugavegi 22.
Hljómsveitin Cadillac leikur fyrir
dansi á Kringlukránni til klukkan þrjú.
Óskar Einarsson trúbador leikur á
Ara í Ögri.
Hljómsveitin Í svörtum fötum
skemmtir ásamt Páli Óskari í Stapan-
um, Reykjanesbæ.
■ ■ SÝNINGAR
15.00 Í Listasafni Íslands stend-
ur yfir yfirlitssýning á verkum Georgs
Guðna. Einnig er í safninu sýning á
landslagsmálverkum Ásgríms Jóns-
sonar og vídeóinnsetning eftir Steinu
Vasulka.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk.
16.00 Þrjár sýningar hófust í Ný-
listasafninu um síðustu helgi. Á annarri
hæð safnsins er Sólveig Aðalsteins-
dóttir með sýninguna Úr möttulholinu
en á þeirri þriðju eru Hanne Nielsen og
Birgit Johnsen með Stað-hæfingar eða
Territorial Statements í suðursal. Í norð-
ursal á sömu hæð er landi þeirra Kaj
Nyborg með sýninguna Nágranni eða
Next door neighbour.
Á Kjarvalsstöðum er Ilmur Stefáns-
dóttir með sýningu er hún nefnir
Mobiler. Þar sýnir hún umbreytt farar-
tæki, vídeómyndir og örsögur.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovéskum
veggspjöldum úr eigu safnsins, sem
hafa ekki komið áður fyrir almennings-
sjónir. Heilbrigði, hamingja og friður er
yfirskrift sýningarinnar.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulistir
og frásagnarhefðir Indlands stendur yfir
í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í fyrsta
sinn sem indversk myndlist er kynnt með
jafn víðfeðmum hætti hér á landi.
Himinn og jörð nefnist sýning Þor-
gerðar Sigurðardóttur í Listasafni ASÍ,
sem er til húsa í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
Sigurður Þórir sýnir málverk sín í
Húsi málaranna við Eiðistorg.
G.ERLA sýnir í Listasafni ASÍ á
Skólavörðuholti innsetningar í gryfju,
stigum og á þaksvölum. Verkin eiga það
sameiginlegt að nálin er notuð sem
verkfæri í útsaum í ýmiss konar dúka,
allt frá silki að jarðvegsdúk, sem á hafa
verið máluð málverk.
Inger Helene Bóasson sýnir svart-
hvítar ljósmyndir í Vínbarnum. Myndirn-
ar kallar hún landslag líkamans.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
20 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
APRÍL
Miðvikudagur
Ég held að þetta sé í fyrsta sinnsem öll sönglögin hans Páls Ís-
ólfssonar eru flutt saman á tón-
leikum,“ segir Nína Margrét
Grímsdóttir píanóleikari. „Þau
eru 42 talsins og spanna allan feril
hans.“
Hún hefur fengið þau Hönnu
Dóru Sturludóttur sópran og Finn
Bjarnason bassa til liðs við sig og
saman stíga þau á svið í Salnum í
Kópavogi nú í kvöld til þess að
flytja bæði lög sem allir þekkja,
svo sem Í dag skein sól og Sáuð
þið hana systur mína, og
líka lög sem sjaldan
eða aldrei hafa
heyrst.
„Tvö laga Páls
verða frumflutt
núna í fyrsta
skipti opinber-
lega. Þau voru
samin 1964 og
1972 og
hafa legið bara í handriti. Þuríður
Pálsdóttir söngkona, dóttir hans,
hljóðritaði þau reyndar með hon-
um í útvarpinu, þar sem hann var
tónlistarstjóri. En það var fyrst og
fremst gert til þess að hann gæti
heyrt hvernig þau hljómuðu.“
Einnig verður fluttur sex laga
bálkur við texta úr Ljóðaljóðum
Biblíunnar, sem sjaldan hefur
heyrst opinberlega.
„Það er Hanna Dóra sem
syngur þau öll, því það er
kona sem talar allan tím-
ann. Þessi bálkur er
saminn frekar seint
á ævi hans, senni-
lega á milli 1955
og 1966. Þetta er
mjög spennandi
tónlist og dálítil
erótík í henni.“
Nína Mar-
grét hefur sökkt sér ofan í tónlist
Páls Ísólfssonar, sérstaklega pí-
anóverk hans. Fyrir fáeinum
misserum gaf hún út geisladisk
þar sem hún lék alla píanótónlist
Páls. Í framhaldi af þeirri vinnu
fór hún að skoða sönglögin hans
betur og þá ekki síst undirleikinn,
sem Páll skrifaði fyrir píanó.
„Mér fannst þetta mjög bita-
stætt verkefni fyrir píanóleikara
að takast á við. Ég gerði mér
líka vonir um að söngvurun-
um þætti þetta jafn bita-
stætt fyrir sig, og það
reyndist vera. Þessi lög
eru svo stór partur af
menningararfi okkar.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ TÓNLEIKAR
Öll lögin
hans Páls
Nýbý laveg i 14 , Kópavog i . S ím i 554 4443 . Fax 554 4102 .
Lausnin á góðum merkingum
ptouch 3600
smávara lager bókasafn
einstök prentgæði • sterkir borðar • borðar í mörgum litum og breiddum
fjölbreytt letur og tákn • prentar strikamerki • 360 dpi prentun
usb tengi • prentflötur allt að 27 mm
13
90
.3
5
NÍNA MARGRÉT GRÍMSDÓTTIR
OG HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR
Þær flytja ásamt Finni Bjarnasyni öll sönglög Páls Ísólfssonar
á tónleikum í Salnum í Kópavogi klukkan átta í kvöld.