Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 16.04.2003, Qupperneq 17
Breski skvísustrengjakvartettinnBond, sem harðir aðdáendur klassískrar tónlistar hafa sakað um að sverta ímynd stefnunnar, hefur verið tilnefndur til klass- ískra tónlistarverðlauna. Stúlkurn- ar hafa ekki fengið inni á sölulist- um yfir klassíska tónlistar þar sem tónlist þeirra þykir of poppuð. Fólk skiptist í tvo hópa um það hvort stúlkurnar séu að reyna að selja út á ímynd sína eða hvort þær séu í raun að brjóta ísinn í nýjum markaðsaðferðum fyrir klassíska tónlist. Bandaríski gamanleikarinn Rod-ney Dangerfield er nú að jafna sig eftir 12 klukkustunda langan heilauppskurð. Jálkurinn, sem er orðinn 81 árs gamall, er sagður í besta skapi. Hann er þó ekki sagð- ur úr allri hættu enn. Eftir að Michael Jackson tapaðimálinu gegn fyrrum umboðs- manni sínum, sem sakaði stjörn- una að hafa komið sér undan fram- komu á tvennum tónleikum sem hann hafði þegar fengið greitt fyr- ir, hefur verið orðrómur á kreiki um að „Neverland“-búgarður hans hafi verið settur á sölu. Þessu neit- uðu talsmenn Jacksons alfarið í spjalli við BBC á mánudag. Orðrómar um hina ótrúlegustu hluti hafa alla tíð sveimað í kringum stjörnuna. Nú er hann sagður vera í hugleiðingum að kaupa gamalt smáþorp á Ítalíu sem á rætur sín- ar að rekja til miðalda. 16. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR22 CONFESSIONS. kl. 8 og 10.40 bi 14MAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 TWO WEEKS NOTICE kl. 8 THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 - bi 14 Sýnd í lúxus kl. 9.30 Sýnd kl. 8 kl. 6 og 8NÓI ALBINÓI kl. 5.508 FEMMES kl. 5.45 og 10THE CORE kl. 10.05ADAPTATION kl. 10NOWHERE IN AFRICA Sýnd kl. 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10.10 Sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára THUNDERPANTS kl. 4 25th HOUR kl. 10.10 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 6, 8 og 10 NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 og 6 Magnús Jónsson, eða Blake einsog hann birtist landsmönnum nú, varð fyrstur til þess að stökkva af borði Gusgus-skútunnar þegar sveitin sigldi í gegnum „uppgjörið mikla“ fyrir þremur árum síðan. Síðan þá hefur hann unnið hægt og rólega að því að koma fyrstu sóló- plötu sinni af hugmyndastiginu yfir í áþreifanlegra form. Blake er enn góðvinur Gusgus- manna og segir það ánægjulega þró- un að loksins sé hægt að tala um sveitina sem, ja... hljómsveit. „Þegar ég var í Gusgus vissi enginn af okkur almennilega hvað þetta var,“ útskýrir Blake frekar. „Við virkuðum mjög vel á tónleikum og þá leið okkur mjög vel saman. Svo þegar við fórum að vinna og ná- kvæmnin kom í spilið var ekki eins gaman að þessu. Það var samt alltaf rosalega gaman á tónleikaferðum. Eftir að hafa unnið svona lengi sam- an vildi fólk fara að gera hlutina sjálft. Í Gusgus voru haldnir fundir um það hvort millikaflar ættu að fara í D eða C. Það var frekar leiðin- legt. Það varð aldrei neitt svigrúm til þess að gera sitt. Þetta tók allan manns tíma.“ Blake hefur alla tíð samið sína eigin tónlist og lagabunkinn því orð- inn töluverður eftir áralangt sam- starf Gusgus. Hann hafði þannig haft það á bak við eyrað lengi að færa sig á bak við stjórnvölinn sjálf- ur. Bæði af forvitni, til þess að sjá hvort hann gæti það, og af áralöngu listrænu svelti. „Mig langaði samt ekki til þess að gefa út persónulega plötu sem „Maggi Jóns“. Mér finnst þetta líka vera hluti af því að eftir tónleika sem þetta „alter-egó“ vil ég geta fengið að vera ég aftur. Ég vil fá að eiga mitt nafn sjálfur. Það var svolítið hug- myndin að gera plötu sem yrði ekki markaðsheild. Mig langaði ekki til þess að fylgja neinum lögmálum heldur bara gera plötuna algjörlega eftir mínu eigin nefi. Aðalatriðið var að gera plötuna nægilega fjölbreytta þannig að hún gæti verið af alls kyns stefnum,“ segir Blake að lokum. Tónar plötunnar eru sambræð- ingur fönks, popps, diskó og klúbbatónlistar. Þessi lög ættu að halda dansgólfinu líflegu vel fram eftir klukkan þrjú um helgar og fylgja svo þeim allra sprækustu upp í rúm. biggi@frettabladid.is ■ TÓNLIST Ekki persónuleg plata „Magga Jóns“ Tónlistarmaðurinn og leikarinn Magnús Jónsson, fyrrum söngvari Gusgus, sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu undir listamannsnafninu Blake á dögunum. Fréttiraf fólki Bandaríska slúðurblaðið Globeheldur því fram að Ben Affleck sé ástæðan fyrir skilnaði „Alias“- leikkonunnar Jennifer Garner. Blaðið hefur það eftir fólki sem vann við tökur „Daredevil“ að leikar- arnir hafi átt afar vingott á með- an á tökum þeirrar mynd- ar stóð. Garner hefði t.d. mætt til þess að fylgjast með tökum Ben, þrátt fyrir að vera ekki í tökum sjálf, sem þykir víst óvenjulegt í kvikmyndabransanum. Eftir að tökum lauk hefðu leikararnir iðu- lega farið í hjólhýsi Afflecks og lokað að sér. Nú verður Jennifer Lopez ekkert sérstaklega sátt við lífið og tilveruna. Titanic“-leikstjórinn JamesCameron hefur ákveðið að næsta mynd hans verði gerð í þrí- vídd. Hann hefur nýlokið við að gera heimildarmyndina „Ghost of the Abyss“ um Titanic þar sem áhorfendur verða að horfa með þrívíddargleraugu á höfðinu. Hann heillaðist svo af forminu að hann ákvað að gera hasarmynd með sama hætti. Myndin á víst að koma í bíó eftir um tvö ár. Tveimur skartgripum sem vorueitt sinn í eigu Marilyn Monroe var stolið á sýn- ingunni „Marilyn Monroe: Life of a Legend“ í London. Þar geta aðdáendur henn- ar séð áður óbirt- ar ljósmyndir og muni sem voru í eigu kvikmynda- stjörnunnar. Gullarmbandi og demantshring úr gulli með stafinn „M“ grafinn ofan í var stolið. Stolnu skartgripirnir eru metnir upp á tæpar 5 milljónir króna. kl. 6 og 10THE PIANIST BLAKE Á tónleikum hefur Magnús hlaðið utan um sig góðu fólki; Davíð Þór Jónssyni píanó- leikara, Ómari Guðjónssyni gítarleikara, Helga Svavari trommuleikara, Samúel Jóni Samúelssyni básúnuleikara, Hlyns Sölva og Ragnari „Funky Moses“ bassaleikara. Blake kemur fram á Vegamótum þarnæstu helgi í gleðskap sem haldinn verður af MTV. Paul McCartney og eiginkonahans Heather Mills greindu frá því á mánudag að þeim hafi verið neituð þátttaka í spurningaþættin- um „Who Wants to Be a Million- aire?“. Þau vildu taka þátt í góð- gerðarþætti sem par en var neitað af stjórnandanum sem sagði að þau myndu standa sig „hræði- lega“. Heather segist fullviss um að þau myndu standa sig vel þar sem hún viti alltaf um helming svaranna þegar hún horfi á þáttinn og Paul hinn helminginn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.