Fréttablaðið - 01.07.2003, Page 1
TÓNLIST
Engar
langlokur
bls. 12
KYNFERÐISBROT Umsjónarmaður
unglingastarfs björgunarsveitar í
meðalstóru bæjarfélagi á lands-
byggðinni hefur verið ákærður
fyrir kynferðisbrot gagnvart ung-
lingum sem voru í umsjón hans.
Í ákærunni segir að í ágúst
árið 2001 hafi maðurinn ýtt
fimmtán ára stúlku inn í hunda-
búr og læst hana nauðuga þar
inni. Hann er einnig kærður fyrir
að hafa kippt niður sundbuxum
annarrar stúlku þar sem þau voru
stödd í sundlaug staðarins ásamt
fleiri unglingum. Árið 2001 á
fundi hjá björgunarsveitinni mun
hann hafa ýtt sömu stúlku niður í
aftursæti á bíl, lagst ofan á hana
og viðhaft samfarahreyfingar.
Veturinn 2000 til 2001 hafði hann
ítrekað klipið í geirvörtur ung-
lingsdrengja sem voru undir hans
umsjón, og snúið fast upp á þær
samkvæmt kærunni og klipið um
kynfæri í það minnsta eins
drengjanna. Auk þess viðhafði
hann niðurlægjandi og kynferðis-
legt orðbragð við unglinga sem
hann hafði umsjón með.
Félagsmálafulltrúi á staðnum
segir málið hafa uppgötvast þeg-
ar börn og foreldrar leituðu til fé-
lagsmálayfirvalda á staðnum.
Upp frá því hafi komist á sam-
starf félagsmályfirvalda og
björgunarsveitarinnar vegna
málsins og rætt hafi verið við
þolendur. Fyrstu dagana og mán-
uðina eftir að þetta kom upp hafi
verið unnið í samstarfi við for-
eldra og börn og fleiri en eitt at-
vik hafi verið skoðað sérstaklega.
„Þetta er hrein og klár hörm-
ung, mjög leiðinlegt mál í alla
staði. Það er mjög leitt til þess að
vita að leiðtogi í æskulýðsstarfi
hafi haft uppi slíkt framferði.
Fólk eins og hann er ekki góðar
fyrirmyndir fyrir börn og aðra í
æskuliðsstarfi. Sem betur fer
voru þetta það sterkir einstakling-
ar í krakkahópnum að þau sögðu
frá framferðinu og sættu sig ekki
við það. Enda eiga hvorki börn eða
nokkur maður að þurfa að þola
svona framkomu,“ segir félags-
málafulltrúinn.
„Svona mál eru ömurleg,“
sagði sóknarpresturinn á staðn-
um. Að öðru leyti sagðist hann
ekki geta tjáð sig um málið þar
sem hann gæti þurft að sinna bæði
meintum geranda og þeim sem
standa að ákærunni. Formaður
björgunarsveitarinnar á staðnum
vildi ekki tjá sig um málið að svo
stöddu.
hrs@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 12
Leikhús 12
Myndlist 12
Bíó 14
Íþróttir 10
Sjónvarp 16
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
ÞRIÐJUDAGUR
1. júlí 2003 – 146. tölublað – 3. árgangur
ANDLÁT
Hepburn
kveður
bls. 15
AFMÆLI
Ár mæld
í plötum
bls. 20
STA Ð R EY N D UM
A U K I N
F O R YS TA
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í júní 2003
29,1%
53,4%
65,9%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
Rútubílatónleikar
TÓNLIST Maggi Eiríks og KK eru
með útgáfutónleika fyrir nýju
„rútubílaplötuna“ sína „Ferðalög“
klukkan 12:30 á umferðarmiðstöð
BSÍ. Diskurinn samanstendur af 22
íslenskum sönglögum sem flestir
þekkja, settum saman á geisladisk
í fyrsta sinn. Annars hendis er til-
gangur útgáfunnar að fá fólk til að
syngja sjálft í sumar og því öllum
guðvelkomið að raula með á BSÍ.
Þýskalandsforseti í
opinberri heimsókn
HEIMSÓKN Johannes Rau, forseti
Þýskalands, og Christina kona hans
koma í þriggja daga opinbera
heimsókn í dag. Hann hittir Ólaf
Ragnar Grímsson forseta í dag og
Davíð Oddsson forsætisráðherra á
morgun.
Fimm leikir
í bikarnum
FÓTBOLTI Fimm leikir fara fram í 16
liða úrslitum bikarkeppni karla í
kvöld. FH-ingar taka á móti Þrótti,
Þór fær Víking í heimsókn, Fram
og Haukar eigast við í Laugardaln-
um, Keflvíkingar sækja Skaga-
menn heim og ÍBV og Grindavík
etja kappi í Vestmannaeyjum.
Leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Umsjónarmaður
unglinga ákærður
Maður á fertugsaldri er ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart unglingum í umsjá hans. Upp komst
um framferði hans vegna fregna frá börnum og foreldrum. Félagsmálafulltrúi í byggðarlaginu segir
þetta mál hreina og klára hörmung, hvorki börn né nokkur maður eigi að þola framkomu sem þessa.
KÖNNUN Fréttablaðið eykur enn
forskot sitt á hin dagblöðin sam-
kvæmt nýrri fjölmiðlakönnun
Gallup sem gerð var í júní. Meðal-
lestur Fréttablaðsins á landinu
mælist nú 65,9 prósent, 4,2 pró-
sentustigum meiri en í mars síð-
astliðnum. Meðallestur Frétta-
blaðsins í könnuninni er meiri en
mælst hefur áður hjá dagblaði á
Íslandi. Meðallestur Fréttablaðs-
ins er einnig meiri en meðallestur,
-áhorf eða -hlustun annarra fjöl-
miðla á Íslandi. Fréttablaðið er
því ekki aðeins mest lesna dag-
blaðið á Íslandi heldur sá íslensk-
ur fjölmiðill sem flestir nota.
Sem fyrr hefur Fréttablaðið yf-
irburði yfir hin dagblöðin á öllum
landsvæðum, meðal allra aldurs-
hópa, beggja kynja og er mest les-
ið alla útgáfudaga. Meðallestur
Morgunblaðsins mælist nú 53,4
prósent, 12,5 prósentustigum
undir meðallestri Fréttablaðsins.
Meðallestur DV er 29,1 prósent,
36,8 prósentustigum minni en
Fréttablaðsins. Bæði Morgunblað-
ið og DV auka við lestur sinn frá
mars. Eins og fram hefur komið
má rekja hluta af þeirra aukningu
til frídreifingar blaðanna. En heilt
yfir er augljóst að dagblaðalestur
hefur aukist á sama tíma og minna
er horft á sjónvarp og minna
hlustað á útvarp.
„Fréttablaðið er nú komið í
stöðu sem enginn íslenskur miðill
hefur haft. Sú staðreynd mun
hvetja okkur til að gera enn betur
í framtíðinni. Og það er margt í
deiglunni; til dæmis útgáfa sunnu-
dagsblaðs eftir tæpar tvær vikur,“
segir Gunnar Smári Egilsson, rit-
stjóri Fréttablaðsins. ■
HORFT Í ÖLDUNA Dægradvöl manna er misjafnlega ævintýraleg. Þessi kajakræðari lét öldurótið fyrir utan Djúpalónssand á Snæfells-
nesi ekki stöðva sig.
REYKJAVÍK Norðvestlæg átt,
3-5 m/s og bjartviðri.
Lítilsháttar súld síðdegis.
Hiti 10 til 15 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skúrir 12
Akureyri 3-5 Léttskýjað 14
Egilsstaðir 3-5 Skýjað 12
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 12
➜
➜
➜
➜
+
+
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Fjölmiðlakönnun Gallup:
Fréttablaðið eykur forskotið
Breskir stjórnendur:
Lygnir há-
launamenn
LONDON, AP Laun stjórnenda
breskra fyrirtækja eru allt of há
og þeim er vart treystandi, sam-
kvæmt nýlegri könnun Financi-
al Times.
Samkvæmt könnuninni telja
fjórir af hverjum fimm svar-
endum að stjórnendur breskra
fyrirtækja segi vart satt orð og
78% telja laun stjórnendanna of
há.
Niðurstöður könnunarinnar
fylgja í kjölfar bylgju andúðar
breskra hluthafa vegna rausnar-
legra starfslokasamninga til
handa stjórnendum sem yfir-
gefa fyrirtæki á fallanda fæti. ■