Fréttablaðið - 01.07.2003, Side 6
ÁKÆRA Tveir lögregluþjónar í
Reykjavík hafa verið ákærðir af
ríkissaksóknara fyrir ólöglegar
handtökur, ranga skýrslugerð og
brot í opinberu
starfi.
Annar lögreglu-
þjónninn kom einn
að fyrri handtök-
unni. Hann er sak-
aður um að hafa
handtekið rúmlega
tvítugan mann á
veitingastað í Hafnarstræti og
fært hann á lögreglustöð án nægi-
legra ástæðna eða tilefnis.
Báðir lögregluþjónarnir eru
sakaðir um að hafa handtekið
mann um þrítugt fyrir framan
veitingastað í Tryggvagötu og
fært hann á lögreglustöð án þess
að ástæður eða tilefni væru til.
Lögregluþjóninum sem stóð að
fyrri handtökunni er einnig gefið
að sök að hafa beitt úðavopni
gegn þrítugum manni án ástæðna
eða tilefnis. Þá eru þeir báðir
ákærðir fyrir ranga skýrslugerð,
til skýringar notkun á úðavopni.
Var skráð að múgæsingur um og
yfir tíu manna hafi brotist út eft-
ir handtökuna í Tryggvagötu. Þar
hafi þeir haldið að maður hafi
ætlað að ráðast að lögreglubíln-
um. Því hafi verið nauðsynlegt að
nota úðavopn til að lögregla
kæmist af vettvangi án frekari
átaka.
„Þegar málið fór til ríkissak-
sóknara óskaði embættið eftir því
að öðrum þeirra yrði strax vikið
úr starfi. En ríkislögreglustjóri
ákvað að víkja þeim báðum úr
starfi á meðan rannsókn málsins á
sér stað. Þegar málinu öllu er lok-
ið ákveður ríkislögreglustjóri
hvort mennirnir komi aftur til
starfa eða ekki,“ segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni í Reykjavík.
hrs@frettabladid.is
6 1. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Sjávarútvegur
■ Sjávarútvegur
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.56 0.17%
Sterlingspund 126.37 -0.09%
Dönsk króna 11.77 0.16%
Evra 87.47 0.22%
Gengisvístala krónu 123,73 0,23%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 329
Velta 15.491 m
ICEX-15 1.501 0,41%
Mestu viðskiptin
Skeljungur hf. 6.136.262.600
Sjóvá-Almennar hf. 1.993.394.124
Eimskipafélag Íslands hf. 1.328.239.650
Síldarvinnslan hf. 755.995.000
Kaupþing Búnaðarb. hf. 483.904.498
Mesta hækkun
Flugleiðir hf. 3,41%
Eskja hf. 2,63%
Síldarvinnslan hf. 2,17%
Eimskipafélag Íslands hf. 1,54%
Pharmaco hf. 1,52%
Mesta lækkun
Þormóður rammi-Sæberg hf. -5,00%
Skeljungur hf. -4,46%
Skýrr hf. -2,94%
Landssími Íslands hf. -2,73%
Vinnslustöðin hf. -2,56%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8975,1 -0,2%
Nasdaq: 1622,6 -0,2%
FTSE: 4031,2 -0,9%
Nikkei: 9083,1 -0,2%
S&P: 974,8 -0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir þjóðaröryggisráðgjafiBandaríkjanna sem heimsótti Ísrael
síðustu helgi?
2Hver er formaður utanríkismála-nefndar?
3Hvaða góðkunnu tónlistarmennstanda á bak við „rútúbílaplötuna“
Ferðalög sem kom út í gær?
Svörin eru á bls. xx
JAPAN Japanskir vísindamenn
telja víst að mýs geti sagt fyrir
um jarðskálfta. Þeir veittu at-
hygli breyttri hegðun músanna
þegar þær komust í snertingu
við rafsvið og segulsvið, líkt og
stundum fylgja jarðskjálftum.
Styrkurinn er sýnu minni en
mannskepnan getur skynjað en
mun rugla innri klukku mús-
anna.
Takeshi Yagi, prófessor við
Osaka-háskóla, segist fyrst hafa
veitt athygli undarlegri hegðun
músa á rannsóknastofu sinni
fyrir átta árum, degi áður en öfl-
ugur jarðskjálfti skók japönsku
hafnarborgina Kobe. Uppnám
músanna þá hafi verið greini-
legt. Líffrræðingar benda á að
erfitt geti verið að skilgreina
óvenjulega hegðun músa. Tak-
markað gagn kunni því að vera
af þessari uppgötvun.
Fjöldi frásagna er til af und-
arlegri hegðun dýra í aðdrag-
anda náttúruhamfara líkt og
jarðskjálfta.
Í Kína er geddan sögð
stökkva upp úr kerjum, snákar í
Mexíkó ku yfirgefa holur sínar
og í Bandaríkjunum fullyrðir
vísindamaður að fjöldi auglýs-
inga í dagblöðum um týnd gælu-
dýr gefi til kynna jarðskjálfta.
Japanskir vísindamenn
hyggjast rannsaka frekar hæfi-
leika músa til að spá fyrir um
jarðskjálfta. ■
Sænska ríkisstjórnin:
Vill her-
skyldu fyrir
konur
SVÍÞJÓÐ, AP Sænska ríkisstjórnin vill
að herinn hugi að herskyldu fyrir
konur. Sænska varnarmálaráðu-
neytið segir þetta lið í því að auka
skilvirkni herja Norðurlanda, auk
þess sem þetta sé liður í átt til auk-
ins jafnréttis.
„Það er mikilvægt að jafnréttis-
baráttan nái einnig til hersins,“
sagði Magnus Edin, talsmaður
sænska varnarmálaráðuneytisins.
Árlega eru 17.000 manns kvadd-
ir í herinn, en þar af eru aðeins 300
konur. Af 12.000 manna herliði Svía
eru aðeins 430 konur. ■
LÖGREGLUMÁL Bræðurnir Ágúst og
Lýður Guðmundssynir í Bakkavör
er óhressir með að hafa engin
svör fengið frá sænsku lögregl-
unni um framgang rannsóknar á
meintum innherjasvikum þeirra
bræðra.
„Svo virðist sem lögreglan sé
farin í sumarfrí og komi ekki aft-
ur fyrr en júlí er á enda. Maður er
orðinn hálf dapur yfir þessu,“ seg-
ir Ágúst.
Sænska lögreglan hefur grun-
semdir um að Ágúst og Lýður og
fjórir aðrir einstaklingar hafi á
ólöglegan hátt nýtt sér trúnaðar-
upplýsingar til að hagnast á hluta-
bréfakaupum í sænska bankanum
JP Nordiska. Kaupþing yfirtók
bankann í fyrrahaust og hækkuð
hlutabréf JP Nordiska þá nokkuð í
verði.
Ágúst hefur áður sagt þá bræð-
ur alsaklausa af öllum innherja-
svikum. Þeir hafi einfaldlega
keypt bréf í JP Nordiska í fyrra-
sumar eftir upplýsingum sem öll-
um voru aðgengilegar í fjölmiðl-
um og opinberum verðbréfavefj-
um.
Að sögn Ágústs hefur rannsókn
sænsku lögreglunnar komið illa
við þá bræður: „Ég get ekki nefnt
nein sérstök dæmi þar sem þetta
hefur skemmt fyrir en þetta
hjálpar svo sannarlega ekki.“
Sænska lögreglan hefur ekki
svarað fyrirspurn Fréttablaðsins
um stöðu rannsóknarinnar. ■
JACK STRAW OG
MOHAMMAD KHATAMI
„Enginn skyldi bera saman Íran og Írak
hvað varðar stjórnkerfi eða þá hættu sem
af þeim stafar,“ segir Straw.
Jack Straw:
Útilokar
árás á Íran
LUNDÚNIR Bresk yfirvöld munu
ekki undir nokkrum kringum-
stæðum gefa samþykki sitt fyrir
því að gerð verði árás á Íran, að
sögn Jack Straw, utanríkisráð-
herra Breta. Straw hefur nýlokið
tveggja daga heimsókn til Íran.
Í viðtali hjá BBC sagði Straw
að ekki væri hægt að bera saman
Íran og Írak hvað varðaði stjórn-
kerfi landanna eða þá hættu sem
af þeim stafaði. Hann ítrekaði að
enginn vissi hvort Íranar væru að
þróa kjarnorkuvopn en sagðist
myndu hvetja Mohammad
Khatami, forseta landsins, til að
heimila frekara eftirlit með
kjarnorkuframleiðslu landsins. ■
Mýsnar magnaðar samkvæmt nýrri japanskri rannsókn:
Geta sagt fyrir um jarðskjálfta
NÆMARI EN MENN
Dýr ku skynja yfirvofandi hættu mun betur
en mannskepnan. Segulbylgjur sem fylgja
hamförum eins og jaðskjálftum rugla innri
klukku þeirra og hyggjast vísindamenn
rannsaka fyrirbærið betur.
Bakkabræður óhressir með tímafreka rannsókn:
Sumarfrí tefja
rannsókn Svía
KAUPÞING
Bræðurnir í Bakkavör eignuðust stóran hlut
í Kaupþingi í lok síðasta árs. Þeir eru sakað-
ir um að hafa misnotað trúnaðarupplýsing-
ar úr Kaupþingi hálfu ári áður til að hagnast
á hlutabréfakaupum í Svíþjóð.
AP
/M
YN
D
SÍLD Nær eingöngu vinnsluskip
eru nú við veiðar á síld. Skipin
eru við veiðar norður í Sval-
barðalögsögu og því langt utan
við íslensku lögsöguna. Veiðarnar
ganga þó nokkuð vel, að sögn
Freysteins Bjarnasonar, útgerð-
arstjóra Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað.
LOÐNA Fjöldi skipa er nú við
veiðar á loðnu á Halamiðum
norður af Vestfjörðum. Veiðarnar
ganga að sögn ágætlega.
■
Gefið að sök að
hafa beitt úða-
vopni gegn þrí-
tugum manni
án nægilegra
ástæðna eða
tilefnis.
LÖGREGLUÞJÓNAR ÁKÆRÐIR
Lögregluþjónunum eru sakaðir um röng skýrslugerð, í skýrslu þar sem úðavopni var beitt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Tilefnislausar
handtökur
Ríkissaksóknari hefur ákært tvo lögregluþjóna fyrir ólöglegar handtökur og
ranga skýrslugerð. Mönnunum var vikið úr starfi tímabundið. Ríkislög-
reglustjóri tekur ákvörðun að máli loknu um hvort þeir komi aftur til starfa.