Fréttablaðið - 01.07.2003, Side 10
FÓTBOLTI „Við höfum staðið okkur
ágætlega, það er ekki hægt að
neita því,“ sagði FH-ingurinn
Ólafur Jóhannesson, sem var
valinn þjálfari fyrsta þriðjungs
Landsbankadeildar karla.
„Við erum tveimur stigum
frá efsta sæti og tveimur stigum
frá fallsæti. Það eru öll lið í
toppbaráttu og öll í botnbaráttu
þannig að það er ómögulegt að
segja til um framhaldið. Ég er
hóflega bjartsýnn.“
FH-ingum gekk illa í vorleikj-
unum og var ekki spáð góðu
gengi í Landsbankadeildinni.
„Við vorum í fyrsta lagi ekki
með okkar lið í vor og í vetur og
í vorleikjum er ekki eins mikið
undir. Ég held að það sé meg-
inmunurinn.“
FH leikur gegn Þrótti í 16 liða
úrslitum VISA-bikarkeppninnar
í kvöld.
„Leikurinn gegn Þrótti í bik-
arnum leggst mjög vel í mig.
Það er bara einn möguleiki í bik-
ar. Ég held að þetta séu svipuð
lið og leikurinn gæti orðið
skemmtilegur og góður.“ ■
1. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
ÚTSALA
Smáralind | 522 8383
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/
S
IA
.I
S
T
O
P
2
1
5
9
1
0
6
/
2
0
0
3
Útsalan er hafin
FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir,
leikmaður KR og landsliðsins,
segir það ekki rétt sem fram hef-
ur komið að hún sé búin að gera
upp hug sinn um nám í Svíþjóð.
„Nei, það er ekkert ákveðið
ennþá. Ég er tiltölulega róleg yfir
mínum næstu skrefum. Upphaf-
lega stóð til að fara til Svíþjóðar
um síðustu jól en það reyndist
erfitt svo ég ákvað að spila áfram
hér í sumar.“
Ásthildi hefur þegar verið boð-
in skólavist en hún er á báðum átt-
um um hvenær sé best að fara.
„Undir venjulegum kringumstæð-
um spila ég áfram út tímabilið hér
en fer út í lok ágúst, sem þýðir að
ég missi líklega af Evrópukeppni
félagsliða en ég ítreka aftur að ég
hef ekki tekið lokaákvörðun. Það
er hins vegar gamall draumur að
mennta mig í Svíþjóð þar sem ég
bjó eitt sinn og þar sem ég er
óbundin ennþá er ágætt að láta sig
hafa þetta núna.“ ■
JUSTIN HARDENNE FRÁ BELGÍU
Svipur hennar gefur ekki til kynna að hún
hafi gaman af Wimbledon-tenniskeppninni.
Ásthildur Helgadóttir:
Ekki gert
upp hug sinn
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
Vill gjarna spreyta sig með
sænsku stelpunum.
LIÐ 1. TIL 6. UMF. (4-4-2)
Markvörður
Þórður Þórðarson (ÍA)
Varnarmenn
Eysteinn Lárusson (Þrótti)
Tommy Nielsen (FH)
Kristján Sigurðsson (KR)
Helgi Valur Daníelsson (Fylki)
Tengiliðir
Veigar Páll Gunnarsson (KR)
Jón Þ. Stefánsson (FH)
Ólafur Ingi Skúlason (Fylki)
Guðjón Sveinsson (ÍA)
Framherjar
Allan Borgvardt (FH)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (ÍBV)
Leikmaður 1. til 6. umferðar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (ÍBV)
Þjálfari 1. til 6. umferðar
Ólafur Jóhannesson (FH)
Dómari 1. til 6. umferðar
Kristinn Jakobsson
LIÐ 1. TIL 7. UMFERÐAR
KVENNA (4-4-2)
Markvörður
Þóra B. Helgadóttir (KR)
Varnarmenn
Málfríður Erna Sigurðardóttir (Val)
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir (KR)
Íris Andrésdóttir (Val)
Embla Grétarsdóttir (KR)
Tengiliðir
Karen Burke (ÍBV)
Ásthildur Helgadóttir (KR)
Ólína G. Viðarsdóttir (Breiðabliki)
Margrét Ólafsdóttir (Breiðabliki)
Framherjar
Elín Anna Steinarsdóttir (Breiðabliki)
Hrefna Jóhannesdóttir (KR)
Leikmaður 1. til 7. umferðar
Ásthildur Helgadóttir (KR)
Þjálfari 1. til 7. umferðar
Vanda Sigurgeirsdóttir (KR)
ÓLAFUR JÓHANNESSON
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var valinn besti þjálfari fyrsta þriðjungs
Landsbankadeildar karla.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH:
Öll lið í
toppbaráttu