Fréttablaðið - 01.07.2003, Side 11

Fréttablaðið - 01.07.2003, Side 11
                 !  "#$  % & "'$  %    ! (#$  )     ('  * + !                !  "#$  %  & "'$  %      ('$  !  )     ($         & ,- ,   . /    0- "1  %  &2   -   3'4   ,   * + !            Guðjón til Barnsley: Annað tækifæri FÓTBOLTI Ný stjórn knattspyrnufé- lagsins Barnsley á Englandi hefur tilkynnt ráðningu Guðjóns Þórðar- sonar sem nýs knattspyrnustjóra félagsins. Ronnie Glavin, leikmað- ur Barnsley til margra ára, var ráðinn aðstoðarþjálfari Guðjóns. „Þetta eru að sjálfsögðu gleði- tíðindi fyrir okkur,“ sagði Hrönn Jónsdóttir, eiginkona Guðjóns. „Ég sá þetta í sjónvarpinu en það á eft- ir að ræða svo margt að það er ómögulegt að segja mikið meira en það. Það eru langir fundir fram undan við að klára málið en það er óhætt að segja að þetta sé góður dagur. ■ Eyjólfur Sverrisson segist ekkihafa leitt hugann að því hvort og þá með hvaða félagi hann spil- ar þegar leikmannagluggi Knatt- spyrnusambands Íslands opnast þann 15. júlí. „Ég er nýkominn heim úr fríi og hef sannast sagna ekki spáð mikið í þessi mál. Mér liggur ekkert á.“ Talið er víst að Roy Makaay,markakóngur Evrópu á liðinni leiktíð, yfirgefi Deportivo de la Coruña fljótlega. Hann og Diego Tristán eiga ekki skap saman og hefur Tristán sagt að ekki sé pláss fyrir báða í sama liði áfram. Vitað er af áhuga Mall- orca og Valencia á Makaay. Beckham verður formlegakynntur sem leikmaður Real Madrid í vikunni. Ekkert hefur verið ákveðið með hvaða númer hann fær á treyju sína hjá félag- inu en forseti félagsins sagði að númer 7 yrði áfram í eigu Raúl. Kamerún tapaði úrslitaleikÁlfukeppninnar í Frakklandi gegn gestgjöfunum 1-0 á gull- marki. Markið skoraði Thierry Henry þegar þrjár mínútur voru liðnar af framlengingu leiksins. Mark Hughes, landsliðsein-valdur Wales, er efstur á lista Alex Ferguson yfir kandi- data í stöðu aðstoðarþjálfara Manchester United. Hughes hef- ur náð einstökum árangri með lið Wales og er liðið í efsta sæti í sínum riðli þvert á ýmsar spár. ■ Fótbolti hvað?hvar?hvenær? 28 29 30 1 2 3 4 JÚLÍ Þriðjudagur  19.15 Akureyrarvöllur Þór og Víkingur, félögin í 2. og 3. sæti 1. deildar, mætast í 16 liða úrslitum í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 Kaplakrikavöllur FH og Þróttur, félögin í 2. og 3. sæti Landsbankadeildarinnar, mætast í 16 liða úrslitum í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 Akranesvöllur ÍA fær Keflavík, efsta lið 1. deildar, í heimsókn í 16 liða úrslitum í VISA-bikar- keppni karla.  19.15 Laugardalsvöllur Fram leikur gegn 1. deildarliði Hauka í 16 liða úrslitum í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 Hásteinsvöllur ÍBV og Grindavík mætast í 16 liða úr- slitum í VISA-bikarkeppni karla.  23.00 Sýn Toppleikir. Sýnt frá leik West Ham og Leeds.  23.15 RÚV Bikarkvöld. Sýnt úr leikjum í 16 liða úr- slitum í VISA-bikarkeppni karla. 11ÞRIÐJUDAGUR 1. júlí 2003 FÓTBOLTI Áhorfendur á leikjum 1. til 7. umferðar Landsbankadeild- ar karla voru 1.073 að meðaltali. Að þessu leyti kemur fótbolta- sumarið 2003 vel út í samanburði við næstu fimm ár á undan en að- eins árið 2001 voru leikir þessa hluta mótsins betur sóttir. Meðalaðsókn á leiki mótanna í heild er jafnan lægri en á leiki fyrstu sjö umferðanna. Undan- tekningin er árið 1999 þegar hún hækkaði úr 851 í 897. Aðra reglu má lesa út úr tölunum en áhorf- endur eru ævinlega flestir í 1. um- ferð. Árið 2000 er undantekning en þá voru áhorfendur flestir í 2. umferð. Í fyrra sóttu 7.019 manns leiki 1. umferðar og er það mesta aðsókn að leikjum einnar umferð- ar síðastliðin fimm ár en fæstir voru þeir 3.118 manns í 4. umferð mótsins árið 1997. Aðsókn hefur þrisvar farið yfir tvö þúsund manns í sumar. Flestir sáu leik Fyliks og KR í 6. umferð, 2.744, næstflestir leik Þróttar og KR í 1. umferð, 2.502 og 2.369 sáu leik KR og ÍA í 3. umferð. ■ 2.744 ÁHORFENDUR Flestir sáu leik Fylkis og KR í 6. umferðinni.1998 760 1999 851 2000 898 2001 1.108 2002 1.020 2003 1.073 Landsbankadeild karla: Næstmesta aðsóknin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.