Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 01.07.2003, Qupperneq 12
12 1. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 28 29 30 1 2 3 4 JÚLÍ Þriðjudagur ■ ■ SÝNINGAROPNUN  Sigurrós opnar sýningu í Café Nilsen á Egilsstöðum. Myndirnar sem hún sýnir að þessu sinni skírskota til náttúrunnar og fólksins sem býr á landsbyggðinni. Sigurrós tileinkar m.a. sýningu sína þeirri uppbyggingu sem er að hefjast á Aust- fjörðum. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Drengjakór frá Minnesota í Bandaríkjunum heldur tónleika í Grafar- vogskirkju. Kórinn kemur til Íslands eftir tónleikaferðalag í Evrópu. Á efnisskrá er tónlist frá barokktímanum allt til dagsins í dag. Allir sem hafa áhuga á tónlist mega ekki láta þetta framhjá sér fara. Aðgangur er ókeypis.  12.30 Útgáfutónleikar með Magga og KK á Umferðarmiðstöð BSÍ. Platan heitir 22 ferðalög og samanstendur af 22 söngperlum úr dægurlagasafni ís- lensku þjóðarinnar. Hugmyndin er að þetta séu lögin sem söngelskir syngja á ferðalögum, á útihátíðum, í tjaldinu og sumarbústaðnum.  19.30 Þriðjudagsganga í Viðey. Í kvöld mun Kristinn E. Hrafnsson lista- maður stýra gönguferð um listaverk bandaríska myndhöggvarans Richard Serra. Ferðin hefst með siglingu frá Sundahöfn og endar með kaffisölu í Viðeyjarstofu.  20.30 Snorri Heimisson fagottleik- ari heldur debut-tónleika sína hér á landi ásamt Arne Jørgen Fæø og Berg- lindi Maríu Tómasdóttur. Þau munu leika verk fyrir fagott og píanó eftir - Pierné, Petrovics, Corea og Boutry og einnig Bachianas Brasilieras fyrir flautu og fagott eftir Villa-Lobos. Þetta eru fagotttónleikar meðléttu flautuívafi,“ segir Snorri Heimisson fagottleikari. Hann heldur debut-tónleika sína í Lista- safni Sigurjóns í kvöld. Með hon- um verða þau Arne Jørgen Fæø píanóleikari og Berglind María Tímasdóttir flautuleikari. „Verkin sem við leikum eru allt 20. aldar stykki og frekar kraftmikil. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa ekki verið mikið spiluð og tón- skáldin eru ekki í hópi þeirra stærstu, nema kannski Heitor Villa-Lobos.“ Snorri hefur búið í Danmörku undanfarin fimm ár við nám en hann lauk því núna í vor. „Á tón- leikunum í kvöld spila ég tónlist sem mér finnst gaman að spila. Ég vil líka kynna fagottið fyrir fólki því það er ekki oft sem það heyr- ist sem einleikshljóðfæri.“ Að sögn Snorra eru ekki marg- ir sem læra á fagott. „Það eru margar ástæður fyrir því, maður þarf til dæmis að vera eldri þegar maður byrjar að læra á fagott en á flest önnur hljóðfæri, eins er þetta dýrt hljóðfæri sem fáir tón- listarskólar bjóða upp á.“ Efnisskrá tónleikanna er frek- ar auðmelt að mati Snorra og verkin mjög lagræn og falleg og alls ekki löng. „Mér finnst leiðin- legt að bjóða fólki upp á langlokur og þess vegna er ég að reyna að breyta forminu á klassískum þungum tónleikum og leik því verk sem eru stutt og aðgengileg. Tónleikarnir eru því tilvaldir fyr- ir alla sem áhuga hafa á tónlist.“ Íslendingar eru mjög áhugasamir um tónlist að mati Snorra. „Það er ekki erfiðara að starfa sem tón- listarmaður hér á landi en til dæmis í Danmörku, við eigum þó nokkuð af sölum sem bjóða upp á aðstöðu fyrir tónleikahald og tón- leikar eru almennt nokkuð vel sóttir.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í Listasafni Sigurjóns í kvöld. ■ Engar langlokur ■ ■ SÝNINGAR  Sýning í Listasafni Akureyrar sem haldin er í samvinnu við Ríkislista- safnið í Berlín. Sýningin ber nafnið Meistarar formsins en á henni sýna 43 listamenn, þar af 11 Íslendingar. Gefin verður út 90 síðna bók á íslensku og ensku um listamennina og verkin á sýningunni.  Sýning á kínverskri samtímagrafík og myndböndum um kínverska menningu. Að sýningunni standa kín- verska sendiráðið á Íslandi, Kínversk- íslenska menningarfélagið og Félag Kínverja á Íslandi. Sýningin er í Ráð- húsi Reykjavíkur.  Niklas Ejve frá Svíþjóð sýnir í List- húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Hann sýnir þar skartgripi. ■ TÓNLIST SNORRI HEIMISSON Snorri heldur tónleika í Listasafni Sigurjóns. Hann segir efnisskrána vera auð- melta og aðgengilega. Dæmi um verð: Áður Nú Bómullarpeysa 6.900.- 1.900.- Jakkapeysa 4.900.- 1.100.- Bolur 2.500.- 700.- Blúndubolur 4.100.- 900.- Dömuskyrta 5.200.- 900.- Sumarkjóll 4.900.- 1.100.- Pils 5.500.- 900.- Dömubuxur 4.900.- 900.- ÚTSALA - ÚTSALA 70-90% afsláttur Ótrúlega lágt verð Síðumúla 13, 108 Reykjavík, sími 568 2870 Einnig úrval af fatnaði á kr. 500.- Opið frá kl. 10-18

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.