Fréttablaðið - 01.07.2003, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 1. júlí 2003
SIGURJÓN KJARTANSSON
Ætli það sé ekki kassagítarinn.Hann er eina hljóðfærið sem
ég á núna. Ég átti einu sinni for-
láta rafmagnsgítar en hann er
ónýtur. Þetta er forláta Yamaha
kassagítar. Ég hef alltaf haldið
mig við það merki en rafmagns-
gítarinn var líka Yamaha.
Kassagítarinn hefur nýst mér af-
skaplega vel og er eiginlega uppá-
haldshljóðfærið mitt. Ég notaði
hann síðast við gerð Dómínós-
auglýsinga og þar áður þegar ég
var í Fóstbræðrum og lék per-
sónulega trúbadorinn þannig að
þetta er sannarlega legendary
græja. Ég fékk þennan kassagítar
í þrjátíu ára afmælisgjöf frá kon-
unni minni og það er nú kannski
það merkilegasta við þetta.“
Hljóðfæriðmitt
13
Útsalan
hefst á morgun
Jakkaföt
stakir jakkar
yfirhafnir
skyrtur
o.fl. o.fl.
bolir
Laugavegi 74 • Sími 551 3033
Rósa Matt sýnir á Kaffi Sólon. Rósa
er þekkt fyrir sína sérstöku mósaík-
spegla. Sýningin stendur til 25. júlí og er
Sesselja Thorberg sýningarstjóri.
Sýning í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin hefur þann tilgang að sýna sögu-
lega þróun barnabóka og draga fram
samspil texta og myndskreytinga í
barnabókum.
Sýning í húsgögnum sem vöktu at-
hygli á húsgagnasýningu í Kaupmanna-
höfn í maí síðastliðnum. Sýningin er í
Kringlunni.
María Svandís er með sýningu á
Energia Bar í Smáralind. Sýningin
stendur til 1. ágúst.
Silla (Sigríður S. Pálsdóttir) heldur
sýningu í Þrastarlundi dagana 23. júní
til 7. júlí. Á sýningunni eru olíumálverk.
Samsýning listamanna úr Gallery
VERU í Veitingahúsinu Ránni í Kefla-
vík. Sýningin stendur til 14. júlí. Sýndar
eru landslags- og blómamyndir.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlist-
armaður sýnir í Rauða húsinu á Eyrar-
bakka 11 myndverk unnin í olíu og
blandaðri tækni á striga. Sýningin stend-
ur fram í ágúst.
Sýningin „Í nótt sefur dagurinn“ hef-
ur verið opnuð í versluninni 12 tónum.
Þetta er þriðja einkasýning Marý. Flest
eru verkin á sýningunni olíumálverk frá
þessu ári, þar sem leikið er með hin
ýmsu form.
Bóka- og byggðasafn N-Þingeyinga
hefur opnað leikfangasýning. Leikföngin
hafa verið fengin að láni frá mörgum
íbúum í nágrenni safnsins. Sýningin
verður opin til 31. ágúst.
Sýning á verkum Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar í Listasafni
Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.
Sýningin stendur til 31. júlí.
■ ÚTIVIST
Viðeyjargangan er að þessusinni gengin um listaverk
myndhöggvarans Richard Serra
sem eru á Vesturhluta Viðeyjar.
Kristinn E. Hrafnsson listamaður
stýrir göngunni,“ segir Ragnar
Sigurjónsson ráðsmaður í Viðey.
Verk Richard Serra nefnist
Áfangar og stendur það saman af
níu stuðlabergs súlnapörum sem
hugsaðar eru sem rammar um út-
sýnið frá eynni. Serra er að mörg-
um talinn áhrifamesti myndöggv-
ari heims eftir stríð en verk hans í
Viðey nefnist Áfangar.
Að sögn Ragnars er gangan
fastur liður í sumardagskránni.
„Við efnum til göngu hvern einasta
þriðjudag í sumar en það hefur
verið gert mörg undanfarin ár. Sú
nýbreytni er hins vegar nú að við
veljum þema fyrir hverja göngu.
Nú lítum við til listarinnar en á
næsta þriðjudag munum við til
dæmis líta til dýralífs á eyjunni. Í
göngunni í kvöld verður þó einnig
stiklað á stóru í sögu Viðeyjar.“
Ragnar segir göngurnar ávalt
vera vel sóttar og segir þá nýjung
að tileinka göngurnar ákveðnu
þema mælast vel fyrir. „Viðey er
perla sem við eigum rétt utan við
höfuðborgarsvæðið og ættu Reyk-
víkingar að vera mun duglegri að
nýta það sem eyjan hefur upp á að
bjóða.“
Ferðin hefst með siglingu klukk-
an 19.30 frá Sundahöfn og endar á
kaffisölu í Viðeyjarstofu. ■
Innrammað
útsýni
RICHARD SERRA
Verk Serra eru á Vesturhluta Viðeyjar. Geng-
ið verður í fylgt Kristins E. Hrafnssonar.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand
eru sýndar á Austurvelli. Sýningin ber
nafnið Jörðin séð frá Himni og hefur
verið sýnd víðs vegar um heiminn. Á
sama tíma verður upplýsingamiðstöð
að Kirkjustræti 12 (Skjaldbreið) þar
sem sjá má kvikmynd um tilurð verk-
efnisins.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu