Fréttablaðið - 01.07.2003, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 1. júlí 2003 19
■ ■ Hestamennska
Æskulýðsmót verður haldið á Skógar-
hólum helgina 12.- 13. júlí nk.
Dagskverður með léttu sniði m.a. leikir,
reiðtúr um Þjóðgarðinn, þrautak á hest-
um, grillveisla og kvöldvaka. Dagskrá
hefst að morgni laugard. Næg tjald-
stæði og hólf fyrir hesta. Allar nánari
uppl. fást hjá æskulýðsfulltrúum hesta-
mannafélaganna eða á skrifstofu L.H. í
síma 514-4030.
■ ■ Húsnæði í boði
Mjög góð 3 herbj. íbúð til leigu á
bræðraborgarstíg, ásamt geymslu-
herb. í kj. leiga 75þ. á mán. hiti innifal-
in, reglusemi áskilin. Tilboð sendist til
k–bjarnason@hotmail.com
Mjög góð 3 herbj. íbúð til leigu á
Bræðraborgarstíg, ásamt geymsluherb.
í kj. leiga 75þ. á mán. hiti innifalinn,
reglusemi áskilin. Tilboð sendist til
k–bjarnason@hotmail.com
14 fm herb. til leigu í Mávahlíð, póst-
nr. 105. Aðg. að eldh, og baði. 25 þús.
kr. á mán. Uppl. í síma 699 5552.
3ja herb. íbúð til leigu á Akureyri í júlí
og ágúst, fullbúin húsg. og búsáh.
hentar vel f. t.d. fyrirtæki og félagasam-
tök. uppl. hjá Ingu í s: 847-1810
Mjög góð 3-4herb íbúð (100fm)í vest-
urbænum (nýlendugötu) til leigu. Frá
15. ágúst. leigutími 12-16mán. Uppl s:
561 4522
5 herb. íbúð í vesturbæ Rvík til leigu
frá 1. ágúst mæstk. Uppl. i s. 820 3405.
Til leigu við Þingholtstræti í Rvík góð
lítil 2ja herb. íbúð , langtíma leiga. s.
554 3168, 865 9611.
Íbúð til leigu á svæði 201, 115 fm.
Stæði í bílskýli fylgir. Leiga 90 þ. á mán.
Uppl. í síma 892 2330. Birna.
Stórt og bjart herb. í 101 Rvk. Aðg. að
baði og eldhúsi. Reyklaust. 35 þ. á mán.
Uppl. í 694 5987.
Falleg 3 herbergja 82m≤ íbúð til leigu í
Vesturbænum. Sameiginleg þvotta-
vél/þurrkari í sameign. Laus með litlum
fyrirvara. Leigist á 75þús án húsgagna
eða 85þús með húsg . Hússjóður og
hiti innif. í leigu. Sólveig sími 6994096
Einstaklingsíbúð á svæði 109 til leigu ca
27 fm.Upplýsingar í síma 693-6529
Mjög góð 2herb (46fm) kjallaríbúð í
einbýli á rólegum við HÍ(107). 55þús
með hita og rafm. S:8632386
Ca. 30 fm. stúdíóíbúð til leigu í Fífu-
seli. 30 þ. á mán.-allt innifalið. Uppl. í
síma 557 1803.
■ ■ Húsnæði óskast
Vantar rúmgóða 4-6 herb. íbúð mið-
svæðis í Reykjavík. Uppl. í síma. 561
1520 og 861 1520 Jón Helgi
Mosfellsbær, Grafarholt eða Grafar-
vogur. Ungt, reyklaust par m. rólegan
smáhund óskar eftir 2-3 herb. íbúð.
Reglus. og skilvísum gr. heitið. S. 551
4122/690 0222.
■ ■ Geymsluhúsnæði
Samsetjanlegir galvaniseraðir gámar
2, 3, 4, 5 og 6 m langir, tökum einnig
byggingarefni, tæki og bíla í umboðs-
sölu. Bílasalan Hraun, geymslusvæðinu
gegnt álverinu í Straumsvík. S. 565
2727.
■ ■ Sumarbústaðir
Húsafell. Sumarb. á besta stað í Húsa-
felli, til leigu í sumar. Uppl. í s. 895
6156. Geymið auglýsinguna.
■ ■ Gisting
Akureyri-heimagisting. Herb. til leigu á
góðum stað í bænum. Uppbúin rúm og
dýnur fyrir börn. Uppl. 849 1837
■ ■ Atvinna í boði
Kvöldvinna - Traust markaðsfyrirtæki
leitar eftir fólki í kvöldvinnu. Hentar
vel fyrir 25 ára og eldri, jafnvel mikið
eldri. Næg vinna og góð verkefni í boði.
Upplýsingar í síma 699 0005.
Almenn sveitastörf!! Óska eftir konu til
almennra sveitastarfa í góða sveit. Upp-
lýsingar í síma 4713061-8951610
G. T. verktakar ehf, óskum eftir vön-
um vélamönnum strax á vörubíla,
hjólaskóflur, og beltavélar í Kárahnjúka.
Uppl. í s. 896 1653 , 896 3840 Gísli eða
gtverk@simnet.is
Lafleur bókaútgáfuna vantar sölu-
mann í sumar og í haust. Góð sölu-
laun. Uppl. 659 3313 Benidikt.
Vanan háseta vantar á línubát með
beitningarvél. Uppl. í s. 824 0799.
Málari óskast. Vanur málari óskast til
vinnu. Fagmennska og reynsla skilyrði.
Getur byrjað strax. Uppl. í síma 693
0660.
Framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði.
Tvö störf í boði fyrir öfluga einstaklinga.
Annað heilsdags+ og hitt frá 13-19.
Uppl. í síma 892 0986 frá kl. 15-19.
Pítan Skipholti 50c óskar eftir starfs-
fólki í aukavinnu á grill. Umsóknareyðu-
blöð á staðnum. Góð laun, og góður
starfsandi.
Óskum eftir að ráða steipubílstjóra
og verka menn mikil vinna framundan.
Uppl. í s. 696 6980.
Stýrimenn, hásrta og vélavörð vantar
á 250 to. neta bát frá Grindavík. Uppl. í
s. 426 8286, 894 2013.
Starfskraftur óskast í söluturn. Kvöld-
og helgarvinna. Yngri en 20 ára koma
ekki til greina. Uppl. í síma 554 2399.
Starfsfólk óskast í samlokugerð.Vakta-
vinna ekki yngra en 22 ára,framtíðar
starf.Upplýsingar gefur verkstjóri á
staðnum milli kl 11 og 14 Sómi Gilsbúð
9 Garðabæ
Papinos Pizza óskar eftir fólki í hluta-
störf í Kópavogi og Hafnarfirði. Um-
sóknareyðublöð á staðnum e.kl. 16.
■ ■ Atvinna óskast
Óska eftir að gerast ráðskona á góðu
heimili. S. 696 7731 e. kl. 5 á daginn.
■ ■ Einkamál
/Tilkynningar
Múrarar/Smiðir/Píparar.
Óskast til starfa strax. Framtíðar-
starf hjá góðu fyrirtæki. Áhuga-
samir og áreiðanlegir vinsaml.
sendið uppl.á hl2@visir.is eða
leggið inn umsókn til Frétta-
blaðsins merkt “HL2”
Spennandi atvinnutækifæri
/Atvinna
/Húsnæði
Kálið sopið
GRÆNMETI Nú er kínakálið komið í
verslanir, nýjasta afurðin úr görð-
um íslenskra garðyrkjubænda og
fyrsta útiræktaða grænmetið á
þessu sumri. Íslenskt kínakál mun
verða á boðstólum fram yfir ára-
mót. Kínakálið kemur brakandi
ferskt í verslanir eins og annað ís-
lenskt grænmeti, en neytendur
geta reiknað með að það íslenska
grænmeti sem er í versluninni í dag
hafi verið í garðinum í gær.
Kínakálið má nota í flest hrá-
salöt. Efri hluti blaðanna er bestur í
fersk salöt. Hægt er að nota stilk-
inn og grófari hluta blaðanna í
salöt, sérstaklega ef blandað er
saman við salatið dressingu eða
jógúrt. Þó má einnig sjóða eða
léttsteikja þessa hluta. Í Kína eru
matreiðsluaðferðirnar mun fjöl-
breyttari en við þekkjum. t.d. súrsa
þeir gjarnan kálstilkana og krydda
með hvítlauk og chili. Einnig má
súrsa kálið á annan máta og nota í
súpur. Þar sem blöðin eru nokkuð
hrufótt er mjög miklvægt að skola
þau vel undir köldu vatni. ■
ARNALDUR INDRIÐASON
Hefur lagt undir sig sölulista skáldverka í
verslunum Pennans-Eymundssonar en
bækur hans hafa raðað sér í sex efstu sæti
listans.
Glæpir tröll-
ríða bókalista
BÆKUR Arnaldur Indriðason hefur
verið lífseigur á bóksölulistum síð-
ustu misserin en hefur þó aldrei
verið jafn aðsópsmikill og núna.
Hann raðar sér í sex efstu sætin á
listanum yfir mest seldu skáldverk-
in í verslunum Pennans-Eymunds-
sonar. Bækurnar eru í öllum tilfell-
um kiljur en sumarið er einmitt
besti tími sakamálasagna í kilju-
broti.
Nýjasta bók Arnalds, Röddin, er
í efsta sætinu en á eftir henni kem-
ur Synir duftsins, þá Mýrin, Graf-
arþögn, Napóleonsskjölin og
Dauðarósir.
Glæpir eru allsráðandi á listan-
um þar sem Patricia Cornwell er
komin á blað með þrjár glæpakilj-
ur. Allt sem eftir er í sjöunda sæt-
inu, Bak við dauðans dimma djúp í
því áttunda og Að moldu skaltu aft-
ur verða í tíunda sæti. Steinunn Jó-
hannesdóttir stendur ein uppi í hár-
inu á glæpagenginu en hún er með
nýútkomna Reisubók Guðríðar
Símonardóttur í níunda sætinu. ■