Fréttablaðið - 01.07.2003, Page 24

Fréttablaðið - 01.07.2003, Page 24
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Frúin í Hamborg Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is Allt að 80%veðsetningarhlutfall af verðmæti fasteignar A B X 9 0 3 0 3 7 5 Þessa dagana er svimandi sveifla íumferðinni og spennandi að fylgjast með því hverjir skila sér heilir á áfangastað. Lífið er lotterí og ég tek þátt í því, syngjum við á fleygiferð. Æðarnar út úr höfuðborg- inni eru svo þröngar og rennslið svo hægt að stöðugt myndast tappar sem framkalla ofsaflóð fram úr þegar minnst varir. Einhverjir gleyma að bílar geta ekki flogið. Hundrað kappakstursgarpar voru stöðvaðir á Holtavörðuheiði um helgina og mörg hundruð aðrir fengu frið til að stunda kappakstur um allt land. TIL DÆMIS þessi sem æddi fram úr við Sandskeið á sunnudagskvöld. Var hann að hugsa um börnin sín í aftursætinu þegar hann gaf í botn og sveiflaði sér á ofsahraða á milli bíla í langri lest til Reykjavíkur? Var hann að hugsa um saklausa fólkið sem kom á móti honum skelfingu lostið á sínum vegarhelmingi og slapp naum- lega frá örkumlum og jafnvel dauða? Var hann að hugsa um mig og mína fyrir aftan sig? Eða var hann ekki að hugsa? Það er skolli bagalegt þegar fólk pakkar heilabúinu í skottið með svefnpokanum og ekur af stað með tóman haus. Eitt augnablik sást fólki bregða fyrir í formúlubílnum – karl við stýri með konu sér við hlið og þrjú kríli í aftursæti. BRÁÐUM HLÝTUR að birtast hvít veifa, hvarflaði að mér. Þarna er áreiðanlega alvarlegt neyðartil- felli. Veifan birtist aldrei. Á fyrstu ljósum í höfuðborginni sat kappinn, útttaugaður, en sem betur fer á lífi með sinn dýrmæta farm. Hann hafði nælt sér í tuttugu og þriggja sekúndna forskot á okkur hin sem héngum í lestinni. Hann þyrfti að þekkja Frúna í Hamborg, Hver er maðurinn og Hver er fyrstur að lesa á skilti – ómetanleg skemmtun í lestinni og svo lífvænleg að auki. UM HELGINA vildi ég eiga mína eigin sírenu til að skella á þakið og elta uppi brjálæðinga, gerast liðs- maður lögreglu og svipta menn leyfi og tækjum á staðnum. Ég myndi senda menn gangandi með dótið á bakinu til síns heima og suma myndi ég líka svipta skótauinu – til þess að heimferðin yrði þeim minnisstæðari. Svo myndi ég halda uppboð við borg- armörkin og selja hraðakstursbíla á sanngjörnu verði. Afraksturinn rynni til þeirra sem eru að læra að ganga upp á nýtt eftir bílslys. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.