Fréttablaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 11
11ÞRIÐJUDAGUR 8. júlí 2003 Rétta útimálningin getur sparað þér tugi þúsunda króna Steinakrýl - mjög góð viðloðun, gott rakagegnstreymi og mikið veðrunarþol Kópal Steintex - frábært á múr og steinsteypta fleti þar sem krafist er mikils veðrunarþols Steinvari 2000 - besta mögulega vörn fyrir húsið - yfirburðamálning fyrir íslenskar aðstæður - verndar steypuna fyrir slagregni - flagnar ekki og hefur frábært veðrunarþol Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á steinsteypu og áhrifaþáttum yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði hér innanlands. Á rannsóknarstofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit með framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa skapað málningu frá okkur sérstöðu. Við erum sérfræðingar í útimálningu fyrir íslenskar aðstæður. Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl. Vík, Neskaupstað • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Bláfell Grindavík.  15.00 Stöð 2 Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  19.00 Sýn Fastrax 2002 (Vélasport). Hraðskreiður þáttur þar sem ökutæki af öllum stærð- um og gerðum koma við sögu.  19.15 KR-völlur KR og FH mætast í 9. umferð Lands- bankadeildar karla.  20.00 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim  23.00 Sýn Toppleikir. Sýnt frá leik Manchester United og Chelsea. hvað?hvar?hvenær? 5 6 7 8 9 10 11 JÚLÍ þriðjudagur FÓTBOLTI „Við erum sallarólegir í Vesturbænum,“ sagði Jónas Kristinsson formaður KR-Sport um gengi liðsins það sem af er Landsbankadeildinni. Félagið er með ellefu stig eftir átta leiki og hefur skorað fæst mörk allra fé- laga í deildinni. „Fótboltinn er bara svona, það er aldrei hægt að slá neinu föstu. En við erum á sama stað og allir hinir og þessi byrjun er ekkert einsdæmi. Við erum með gott lið, góðan þjálfara, góða stjórn á hlutunum og við hljótum að fara að smella í gang. KR hefur áður verið í þessum sporum og endað sem meistari þannig að við hlaupum ekkert upp til handa og fóta vegna stöðu liðsins í dag. Það eina sem vantar núna er örlítill neisti til að kveikja undir liðinu og þá er þetta komið. Ef það gengur ekki þá er það bara þetta sem liggur fyrir þetta sumarið. Þá komum við aftur næsta sum- ar.“ Jónas neitar því að félagið sé að verja Íslandsmeistaratitilinn. „Við vorum Íslandsmeistarar í fyrra og þetta er nýtt mót núna þannig að við höfum engan titil að verja. Það er nýr titill í boði en auðvitað höfum við áhuga á hon- um eins og öll önnur lið. Á það ber einnig að líta að þrátt fyrir að félagið taki stöku dýfur þá höfum við ávallt komið grimmir til baka. Tölurnar tala sínu máli; þrisvar Íslandsmeistarar og einu sinni bikarmeistarar á fjórum árum. Það heldur okkur alveg ró- legum.“ Varðandi lánleysi KR fyrir framan mark andstæðinga segir Jónas það vissulega vonbrigði. „Við eigum fullt af góðum fram- herjum og þeir hljóta að vera með mestar áhyggjur sjálfir, en auðvitað er árangurinn fyrir framan markið slakur. Það er náttúrulega ekki ásættanlegt að vera um miðja deild og við ætlum okkur mun meira en það. Tíminn verður að leiða í ljós hvort það gengur eftir.“ ■ KNATTSPYRNUFÉLAG REYKJAVÍKUR Íslandsmeistararnir hafa skorað fæst mörk allra liða í Landsbankadeildinni. Formaður KR-Sport segir enga taugaveiklun vera í Vesturbænum: Höfum engan titil að verja SKYLMINGAR Evrópumótið fór fram í Frakklandi í vik- unni. Þýska Búndeslígan: Fjórar vikur í mót FÓTBOLTI Keppni í þýsku Búndeslíg- unni hefst föstudaginn 1. ágúst með leik meistara Bayern München og nýliðanna Eintracht Frankfurt. Aðrir leikir 1. umferðar fara fram degi síðar. Bochum, félag b r æ ð r a n n a Þórðar og Bjarna Guð- jónssona, á úti- leik gegn Wolfsburg í 1. u m f e r ð . Kaiserslautern lenti í alls kyns hremmingum á síðustu leiktíð og er ekki al- veg laust við e f t i r m á l a þeirra. Félagið byrjar þessa leiktíð með þrjú stig í mínus vegna óreiðu í fjármálum og fékk að auki 125 þúsund evra sekt. Kaiserslautern mætir 1860 München á heimavelli í 1. umferð. ■ Þýska knattspyrnan: 14:1 í afmæl- isgjöf FÓTBOLTI VfL Bochum, félag bræðranna Þórðar og Bjarna Guð- jónssona, vann Grün-Weiß Selm 14:1 í æfingaleik á laugardag. Leikurinn var háður í tilefni af 75 ára afmæli Grün-Weiß Selm sem jafnaði 1:1 á 17. mínútu. Þórður skoraði tvisvar og Bjarni einu sinni. Á mánudag lék Bochum við SV Nienstädt 09 og vann 6:1. Bjarni skoraði eitt marka Boch- um. Sigur Bochum var fjarri því sá stærsti í æfingaleikjum helgar- innar því Freiburg vann Langeoog 28:1 og Hamburger vann Schafflund 17:0. ■ BAYERN MÜNCHEN Markverðirnir Oliver Kahn og Jan Schlösser á fyrstu æfingu Bayern München eftir sumarfrí.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.