Fréttablaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 22
22 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að sprengi-
efnið sem lögreglan leitar nú finnst örugglega
þegar það springur.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Barry White.
Sigríður Rut Júlíusdóttir.
Jóhann Hjartarson.
Vinnufata dagar
gallanum
Vertu í rétta
Póstsendum hvert á land sem er
allan júlí
12-20% afsláttur
Björgólfur Takefusa er 23 áraHann vinnur í Landsbankan-
um á sumrin en er í fjármála-
námi í Boston á veturna og geng-
ur vel. Hann er líka barnabarn
Björgólfs Guðmundssonar, þess
slynga fjármálamanns, en vill
ekki að meina að afi hafi haft
neitt með námsvalið að gera.
„Þetta er einfaldlega skemmti-
legt og það sem ég hef mestan
áhuga á, en það skemmir ekki að
hafa klára karla við hliðina á
sér,“ segir Björgólfur, sem fyrir
utan fjármálin hefur brennandi
áhuga á fótbolta. „Það hefur ekk-
ert komist að annað en fótbolti í
gegnum tíðina og annað situr á
hakanum. Ég hef reyndar mjög
gaman af golfi, en er ekki jafn
góður í því og ég þykist vera,“
segir hann sposkur. „Lífið hér
heima er aðallega „vinna, æfing
og svefn“.“
Björgólfur er ókvæntur og á
enga kærustu í augnablikinu.
„Stelpurnar hér heima eru þúsund
sinnum flottari en þær í Banda-
ríkjunum, það hefur að minnsta
kosti engin þar höfðað til mín.“
Í haust er Björgólfur aftur á
leið til Boston, en það er eins þar
og hér heima, lífið snýst um nám
og æfingar. „Þetta er það líf sem
ég valdi mér þannig að ég kvarta
ekki,“ segir hann. „Boston er líka
mjög skemmtileg borg, með evr-
ópsku yfirbragði og fínt að vera
þar.
Hann segir þó alltaf jafn leiðin-
legt að fara frá Íslandi. „Það er
reyndar þannig þegar líður á sum-
arið að ég man af hverju ég var
búinn að fá nóg hér heima og
finnst þá allt í lagi að komast að-
eins í burtu. Í lok nóvember og
byrjun desember er ég hinsvegar
orðinn viðþolslaus að komast
heim.
Björgólfur, sem er hálfbróðir
sjónvarpskonunnar Dóru
Takefusa, segist lítið horfa á sjón-
varp. „Friends eru þó í gríðarlegu
uppáhaldi, klikka aldrei.“ ■
Flottari
stelpur á Íslandi
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA
Björgólfur er barnabarn Björgólfs Guðmundssonar. Hann er í fjármálanámi
í Boston milli þess sem hann skorar mörkin fyrir Þrótt.
Persónan
■ Björgólfur Takefusa leikur fótbolta
með Þrótti í Landsbankadeildinni og er
nú orðinn markahæstur í deildinni. Hann
segir liðsheildina það sem máli skiptir í
boltanum. Björgólfur er líka sumarstarfs-
maður í Landsbankanum.
Foreldrar barna í leikskólanumSóli í Vestmannaeyjum urðu
margir hverjir hissa þegar þeir
þurftu að kaupa myndir sem börn
þeirra höfðu teiknað og málað í
skólanum:
„“Ég gat náttúrlega ekki annað
en keypt og verið þannig eins og
hinir. En ég hef aldrei heyrt af
svona fjáröflun áður og ekki veit
ég hvert peningarnir renna,“ seg-
ir Halla Vilborg Jónsdóttir, sjó-
mannskona í Eyjum og móðir
barns á Sóli. „Ég keypti þrjár
myndir eins og hinir og þó stykkið
hafi ekki kostað nema hundrað
krónur var ég hissa,“ segir hún.
Júlía Ólafsdóttir, aðstoðarleik-
skólastjóri á Sóli, segir hefð fyrir
myndasölunni í leikskólanum:
„Þetta er gert í nafni foreldrafé-
lagsins og hefur verið gert lengi.
Foreldrafélagið gerir svo eitthvað
fyrir leikskólann fyrir það fé sem
safnast,“ segir Júlía. „Þetta er í
fyrsta sinn sem ég heyri einhvern
undrast yfir þessari sölu á mynd-
um barnanna.“
Töluverð sala mun hafa verið í
myndum barnanna því allir keyp-
tu myndir sem í boði voru eftir
eigin afkvæmi: „Það er hins vegar
rétt að taka það fram að engin er
skyldugur til að kaupa þessar
myndir,“ segir Júlía aðstoðarleik-
skólastjóri. ■
BARNATEIKNING
Til sölu í Vestmannaeyjum.
Leikskólar
■ Leikskóli í Vestmannaeyjum hefur
tekið upp á því að selja foreldrum
myndir sem börn þeirra hafa teiknað og
litað í skólanum.
Barnamyndir
seldar í leikskóla
Mikið úrval af skóm
puma - nike - hummel
buffalo london - el naturalista - bronx
le coq sportif - björn borg - converse
face - roots - intenz - dna
VERSLUNIN
HÆTTIR
Enn meiri verðlækkun
30-60%
afsláttur
K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 1 5 0
Nike
50%
afsláttur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T