Fréttablaðið - 08.07.2003, Page 14

Fréttablaðið - 08.07.2003, Page 14
8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR14 JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6 THE MATRIX R.. 10 b.i 12 BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 bi 14 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓI kl. 6, 8 og 10 RESPIRO kl. 4, 6, 8 og 10 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4 ANGER MANAGEMENT 5.45, 8, 10.30 Sýnd kl. 5.45, 8, og 10.15 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 b.i. 12 kl. 3.20, 5.40, 8, 10.20 Sýnd í lúxus kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50 kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 14DARK BLUE kl. 8 og10 b.i. 16FILMUNDUR: DUMB AND DUMB 6, 8 og 10 AGENT CODY BANKS kl. 3.40 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 4 KANGAROO JACK kl. 4, 6 og 8 DARK BLUE kl. 8, og 10.20 b.i 16 TRICKY LIFE Indverski kvikmyndaiðnaðurinn,Bollywood, er sá stærsti í heim- inum ef miðað er við fjölda þátt- takenda og framleiddra mynda. Nú stendur hann frammi fyrir verstu afkomu síðan ráðist var í kvikmynda- gerð þar í landi: af 41 nýrri mynd þetta ár, hafa einungis sjö rétt náð að skila hagnaði, og engin komið út í blússandi gróða. Bollywood framleiðir að lang mestu leyti fyr- ir innanlandsmarkað, en ekki er vitað hvað veldur dræmri aðsókn í kvikmyndahús nú. Látlaus leikuppsetning á hinu sí-gilda verki Marx og Engels, Kommúnistaávarpinu hefur óvænt orðið afar vinsæl í Buenos Aires í Brasilíu. Sýningin er sýnd vikulega af leikfélaginu Lucharte í brauðverk- smiðju sem rekin er í sam- vinnu vinnufólksins. Í verkinu eru fjórar persónur, Karl Marx, Friedrich Engels, alþýðumaður og verksmiðjueigandi. Talsmaður Lucharte segir að fáir viti um hvað ávarpið sé þegar þeir koma, en að alla langi að vita meira þeg- ar þeir ganga út. Framhald stórleiksins Max Pay-ne sem kom út 2001, Max Pay- ne 2: The Fall of Max Payne er á leiðinni. Engin skjáskot hafa birst úr leiknum eða nokkuð ver- ið gefið upp um hönnun hans, en svokölluð „teaser“ vefsíða, www.rockstargames.com/maxpa- yne2, þar sem plaggat, skjáborðs- myndir og fleira er að finna er komin á netið. Alltaf er notuð sama teiknaða myndin, sem sýnir Max og enn nafnlausa konu í faðmlögum, bæði með byssu í hönd, en eins og margir muna hefst fyrsti leikurinn á dauða eig- inkonu hans og barns. Sá orðróm- ur er á kreiki að Take-Two, yfir- fyrirtæki Rockstar Games sem framleiða leikinn hafi borgað 10 milljónir dollara fyrir réttindi að leiknum og 8 milljónir í fyrir- framgreiðslur til hönnuðanna, Remedy og Apogee. Fréttiraf fólki Lúxus kl. 5,30, 8 og 10.30 VIP FÓLK Flestir skólafélagar Nönnu Hlínar Halldórsdóttur, Sunnu Kristínar Hilmarsdóttur og Vil- borgar Einarsdóttur ákváðu að fara saman í skólaferð til Krítar, í Grikklandshafi. Þeim fannst þetta prýðishugmynd og kjörið tæki- færi til þess að gera meira úr ferð- inni. Þær leggja því af stað nokkrum vikum fyrr, ferðast á milli borga í lestum með bakpoka sína og kynnast framandi þjóðum, menningu og... líklegast karlpen- ingi líka. Þær eru nægilega ungar til þess að geta keypt sér Interrail- kort sem veitir þeim sem eru á aldrinum 18 - 26 ára aðgang að flestum þeim almennings lestum sem ferðast á milli landa heimsálf- unnar. „Við förum tvær í gegnum aust- ur-Evrópu og leggjum af stað á morgun,“ útskýrir Sunna. „Svo hittum við þrjár aðrar stelpur, þar á meðal Vilborgu, á Ítalíu. Eftir það förum við allar til Grikklands og hittum vini okkar úr MR. Þetta er búið að vera draumur frá því að við vorum í níunda bekk. Maður fer kannski ekki alveg í svona sumarfrí með börnin sín þegar maður er eldri. Þessi lönd austast, eins og Pólland og Tékkland vöktu því mestan áhuga hjá okkar. Svo eru margir eldri sem maður talar við sem sjá eftir því að hafa aldrei gert þetta. Við viljum ekki verða þannig.“ Stúlkurnar segjast spenntastar að sjá Prag, sem þær hafa heyrt marga fagra hluti um, auk þess sem þær vilja komast í snertingu við myrkrahlið mannkynsögunnar á heimsókn sinni til úrýmingar- búðir Nasista í Auswitch. Sunna og Nanna eru þegar búnar að panta sér næturgistingu í Prag í þrjár nætur en eftir það verða þær í Guðs höndum, eða sínum eigin. „Við vildum ekki hafa þetta of fast,“ útskýrir Nanna full sjálfsör- yggis. „Það er alveg ágætis séns að fá gistingu ef maður pantar með viku fyrirvara.“ Eftir ferðalagið munu allar vin- konurnar þrjár hafa það náðugt á sólarströndinni. Þegar blaðamað- ur reynir að vara stúlkurnar við þjófum í Prag segja þær að allir hafa varað þær við þeim og þær séu við öllu búnar. Að sama skapi virðast flestir hafa varað þær við öfgafullu daðri ítalskra karl- manna, en það er kannski hluti af fjörinu? „Já,“ svarar Vilborg. „Orðspor þeirra er frægt.“ Engin af stúlkunum þremur hefur ferðast mikið með lest og þær þekkja því ekki þá undra- verðu tilfinningu að sitja við stór- an glugga og horfa á ókunnugt landslagið renna fram hjá á ógnar- hraða. Góða ferð, stúlkur! biggi@frettabladid.is Í gegnum Evrópu á lestarteinum Á sumrin nýta margir íslenskir námsmenn tækifærið og ferðast um meginland Evrópu með Interrail. Nauðsynlegt er að nýta tækifærið á meðan aldur gefst, 26 ára og eldri eru of seinir. TÓNLIST Rapparinn Eminem hefur um nóg að snúast þessa dagana. Ekki er nóg með það að hann hafi yfirumsjón með útgáfum væntan- legra breiðskífna Obie Trice og D- 12 heldur er hann byrjaður að vinna að fjórðu breiðskífu sinni. Hann og tónlistarmaðurinn Jeff Bass, sem samdi með honum Ósk- arsverðlaunalagið „Lose Yourself“, eru þegar byrjaðir að vinna for- vinnu nýju skífunnar. Eins og margir vita er Eminem algjör vinnusjúklingur og er unnið alla daga, kvölds og morgna. „Yfirleitt erum við að semja fyr- ir öll verkefnin þrjú,“ sagði Bass í viðtali við Billboard. „Við leikum tónlistina af fingrum fram og ákveðum seinna hvaða lag endar hjá hvaða rappara. Sum lögin enda hjá Eminem, önnur hjá Obie eða öðrum listamönnum sem hann er að vinna með. Eftir hvern dag tek- ur Eminem diska með sér heim, hlustar á og ákveður hvað heilli hann, hvað sé rusl og hvar lögin eigi að enda.“ Breiðskífa Obie Trice, „Cheers“, kemur út í september. Önnur breið- skífa D-12 hefur ekki enn fengið út- gáfudag. Fjórða breiðskífa Eminem kemur þó ekki út fyrr en á næsta ári. ■ Eminem: Byrjaður á næstu plötu EMINEM Ekki mikið fyrir það að slappa af. Brjósta- gjafa- fatnaður Auðbrekku 2, s: 564 1451 Móðurást DRANGEY Laugavegi og Smáralind Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154 www.teflon.is LAKKVÖRN BRYNGLJÁI Á BÍLINN! Blettun-djúphreinsun-alþrif. NANNA, SUNNA OG VILBORG Interrailið er hvergi auglýst hér á landi og menntaskóla- og háskólafólk því aðeins heyrt af því af orðspori. Þær Nanna, Sunna og Vilborg eru að leggja af stað í Evrópureisu á morgun á lestarsporunum en segja þó að það mætti alveg gera ungu fólki meiri grein fyrir því að þetta sé ekki eins erfitt og margir halda. Draumurinn um Evrópureisu er nær en marga grunar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.