Fréttablaðið - 08.07.2003, Page 20
James Bond hefur sveiflað sérþar um líkt og Tarzan í trján-
um. Og nú geta Íslendingar leikið
þann leik eftir. Nema hvað að þeir
fá ekki að sveifla sér jafn frjálst
um og Bond gerði í síðustu kvik-
mynd sinni sem reyndar var að
hluta til tekin upp hér á landi. Um
er að ræða stærsta gróðurhús í
heimi sem stendur nýbyggt á
Cornwall-skaga á Bretlandi, lík-
astar risavöxnum golfkúlum,
hálfar upp úr jörðu.
Stærsta gróðurhús í heimi er
eitt af þúsaldarverkefnum Breta
og af mörgum talið það best
heppnaða. Innan í risvöxnum kúl-
unum er að finna gróður úr öllum
heimshornum, allt frá ban-
anatrjám að kyrkingslegum
runnagróði af Fjarðarheiði. Gróð-
urhúsið er að verða eitt mesta að-
dráttarafl ferðamanna í Suður-
Englandi og binda ferðamálayfir-
völd í Cornwall miklar vonir við
það. Bygging þess kostaði á við
meðalvirkjun á Íslandi:
„Þetta er eitt það glæsilegasta
sem við höfum séð hér um slóðir
og um margt athyglisvert,“ segir
Teresa Timms hjá ferðamálaráði
Cornwall. „Ekki ætti síst að vera
gaman fyrir Íslendinga að koma
hingað og sjá allar þær plöntur
sem í raun þrífast í veröldinni.“
Hugmyndasmiðurinn að stærs-
ta gróðurhúsi í heimi heitir Tim
Smith og var á árum áður hljóð-
upptökumaður frægra hljóm-
sveita í London. Græddist honum
fé sem hann flutti með sér suður á
Cornwall-skaga líkt og margir
aðrir auðugir Lundúnabúar. Bygg-
ing þessa risavaxna gróðurhúss
hefur verið styrkt af breska rík-
inu jafnt sem Evrópusambandinu
Ég er einmitt að baka fyrir af-mælið,“ segir Védís, sem
segir daginn verða rólegan í
faðmi fjölskyldunnar. „Það er
hálfómögulegt að eiga afmæli á
þriðjudegi, svo ég ætla að halda
ærlega upp á daginn hér í
Reykjanesbæ á föstudaginn og
fá bara alla í partý.“
Védís býr ekki hjá foreldrum
sínum í Reykjanesbæ, en segist
vera þar með heimasætuher-
bergi sem hún getur dvalið í
hvenær sem henni hentar.
„Annars hef ég aðallega verið
í London upp á síðkastið,“ segir
Védís. „Hef verið að semja og
taka upp tónlist, og það hefur
gengið mjög vel. Ég er eiginlega
í miðjum samningaviðræðum
eins og stendur, en ég er búin að
standa í þessu öllu ein og er afar
stolt af.“ Hún viðurkennir að
tónlistin sé harður bransi, en
segist hlæjandi ætla að svara
með dæmigerðu svari, nefnilega
því að allt snúist þetta um að
gera sitt besta. Diskur frá Védísi
er væntanlegur í haust.
Védís er í krabbamerkinu og
hún segist vera dæmigerður
krabbi og ofboðslega heimakær.
„Það er samt svolítið fyndið, því
ég virðist alltaf vera á ferð og
flugi. Best finnst mér hins vegar
að vera með fjölskyldu og vin-
um, er rosalega rómantísk og
finnst æðislegt að „hygge mig“
með mínum nánustu.“
Védís var ekki alveg ein í
London þar sem hún bjó hjá
systur sinni Aldísi, sem er að
læra þar lögfræði. „Við höfðum
stuðning hvor af annarri,“ segir
afmælisbarnið. „En í dag bíð ég
spennt eftir að vita hvað Sæmi
gerir skemmtilegt fyrir mig.“ ■
Siglingadagar 2003
Ísafirði 18. til 27. júlí
Nánar á: www.isafjordur.is/siglingadagar
N
e
th
e
im
a
r
e
h
f.
20 8. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Hvað er grænt og flýgur yfirPólland?
Pétur Panski
Með súrmjólkinni
Heimakær krabbi á ferð og flugi
Afmæli
■ Védís Hervör Árnadóttir er 21 árs í
dag. Hún vonar að kærastinn komi henni
eftirminnilega á óvart í tilefni dagsins, en
aðalpartýið verður á föstudaginn.
VÉDÍS HERVÖR ÁRNADÓTTIR
Ætlar að verja afmælisdeginum með fjöl-
skyldunni. „Þriðjudagur er ekki vænlegur til
partýhalds,“ segir Védís.
■ Jarðarfarir
13.30 Jóhannes Geir Jónsson, listmál-
ari, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
13.30 Halldóra Jónsdóttor (Lóló) verð-
ur jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
■ Andlát
Guðrún Dagbjört Sveinbjörnsdóttir ,
áður Fálkagötu 9, lést 4. júlí.
ÚT JÚLÍ-MÁNUÐ
AF FÖRÐUNARLÍNU NO NAME
SJÁ ÚTSÖLUSTAÐI Á WWW.NONAME.IS
15%
AFSLÁTTUR
Upplýsingar um sölustaði
í síma Gulu línunnar 1444
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
5.
0
17
og er þegar orðin með dýrari
byggingum síðari tíma. Verkfæði-
legt undur og minnisvarði um
ótrúlega bjartsýni.
„Cornwall er mjög gróðursæll
landshluti því hér er mikil úr-
koma og hlýtt í veðri. Hefð fyrir
garðrækt er því mikil sem krist-
allast hér í þessu mikla mann-
virki,“ segir Teresa Timms.
Lágjaldafélagið Iceland Ex-
press skipuleggur nú ferðir Ís-
lendinga suður á Cornwall-skaga
þar sem grasið grær og fólkið
hlær. Ákjósanlegur staður fyrir
fjölskyldufólk, golfleikara og ekki
síst eldri borgara sem hafa áhuga
á gróðri. Svo eru strendurnar ná-
kvæmlega eins og við þekkjum
þær úr breskum bíómyndum og
hótelin eins og þau sem Agatha
Christie notaði sem sögusvið í
glæpasögum sínum. Til Cornwall
er hægt að komast fyrir rúmar 20
þúsund krónur.
eir@frettabladid.is
Gróður
■ Eitt af þúsaldarverkefnum Breta er
stærsta gróðurhús í heimi sem reist hef-
ur verið í Cornwall á Suður-Englandi. Þar
var hluti af síðustu James Bond mynd
tekin og þangað eru nú skipulagðar
ferðir Íslendinga. Allt öðru vísi en
allt á Spáni.
GRÓÐURHÚS TIM SMITH
Allur heimsins gróður á einum
stað. Eitt af verkfræðiundrum
síðari tíma.Stærsta gróð-
urhús í heimi