Fréttablaðið - 01.08.2003, Side 22
FÓLK Réttarhöldunum yfir upptöku-
stjóranum Phil Spector hefur ver-
ið frestað. Ástæðan mun vera sú
að rannsóknarlögreglan í Los Ang-
eles verður ekki tilbúin með gögn
sín fyrir 5. ágúst, þegar réttar-
höldin áttu að byrja.
Spector er ákærður fyrir morð-
ið á b-myndaleikkonunni Lönu
Clarkson sem var skotin í höfuðið
á heimili hans í febrúar. Spector,
sem er 62 ára, er þekktastur fyrir
að hafa skapað það sem kallað hef-
ur verið „hljóðveggur“ (“Wall of
Sound“) á sjöunda áratugi síðustu
aldar.
Hann hefur verið frjáls ferða
sinna frá því að hann borgaði eina
milljón dollara í tryggingargjald.
Honum er þó skylt að halda sig í
Kaliforníufylki. Í viðtali við
Esquire, gaf Spector það til kynna
að Larson hafi framið sjálfsmorð,
en sagði það þó aldrei beint út þar
sem honum er meinað að tala um
málið í fjölmiðlum. Rannsóknar-
lögreglan hefur þó útilokað sjálfs-
morð.
Talið er að réttarhöldunum
verði frestað um einn mánuð. ■
PHIL SPECTOR
Nú eru allar líkur fyrir það
að réttarhöldunum yfir
Phil Spector verði frestað
fram í september.
Phil Spector:
Réttarhöldum frestað
FÖSTUDAGUR 1. ágúst 2003 23
skemmtileg birta
fyrir alla
93.000 eintök
frítt me› Fréttabla›inu á föstudögum
sjónvarpsdagskráin
vi›töl
greinar
ver›launagátur
pistlar
sta›reyndir og sta›leysur
frítt á föstudögum
AC/DC KVEÐJA BRÁÐALUNGNABÓLGU
Ástralska þungarokksveitin AC/DC’s kom fram á tónleikum sem haldnir voru í Toronto í
Kanada til þess að fagna niðurlögum HABL, eða bráðalungnabólgu, á miðvikudag. Tón-
leikarnir voru haldnir fyrir í Downsview Park fyrir framan rúmlega 450 þúsund manns.
Eins og sjá má er Angus Young ennþá í skólabúningnum.
MÓRI
Stendur fyrir hiphopveislu á Kaffi Akureyri
í kvöld ásamt félögum sínum í Grænum
fingrum.
er kannski of mikið.“
Samtökin Grænir fingur
standa svo fyrir hiphopveislu á
Kaffi Akureyri í kvöld:
„Við ætlum að reyna að fylla
staðinn svo að við fáum einhvern
pening inn til þess að geta gert
þetta að góðri helgi fyrir okkur
líka,“ segir Magnús Ólafsson, bet-
ur þekktur sem Móri. „Það er ekk-
ert annað að gerast í hiphoppi
þessa helgi þannig að öll senan,
nánast eins og hún leggur sig,
ákvað að fara til Akureyrar. Ég og
Steinbítur ætlum að koma fram,
Mezzías, Vivid Brain, MC Hugsun,
MC illa leikin, Twisted Mind
Screw. Maggsie úr Subterranian,
Skytturnar, Kritikal Mass, For-
gotten Lores og svo er ég örugg-
lega að gleyma einhverjum.“
Eftir fjörið í kvöld ætlar allur
hópurinn að koma sér fyrir á
tjaldsvæði í bænum og tekur Móri
ekki fyrir það að háð verði rímna-
stríð í mesta bróðurlyndi á tjald-
svæðinu.
Nokkrar útgáfur eru væntan-
legar frá Grænum fingrum með
haustinu. Þar á meðal er fyrsta
breiðskífa Mezzías, Forgotten
Lores, safnplata frá ýmsum röpp-
urum og margt fleira.
biggi@frettabladid.is
Angelina Jolie varðæf þegar hún sá
auglýsingaplakatið fyr-
ir væntanlega Tomb
Raider mynd. Ástæðan
var sú að búið var að
fjarlægja geirvörtufar-
ið á búning hennar. Kvikmyndafyr-
irtækið tók þá ákvörðun að má geir-
vörtuna út stafrænt af ótta við að
veggspjaldið yrði bannað í löndum
þar sem strangar reglur eru gegn
slíku. Angelina er greinilega ánægð
með kropp sinn og fannst illa vegið
að sér.
ÓskarsverðlaunaleikkonanNicole Kidman vann mál sitt
gegn Daily Mail sem hélt því fram
að hún ætti í ástarsambandi við
leikarann Jude Law. Blaðið birti
formlega afsökunarbeiðni á
fimmtudag. Talið er að greinin
hafi spilað stóran þátt í því að Law
skildi við eiginkonu sína Sadie
Frost skömmu eftir að þau eignuð-
ust annað barn sitt.
Fréttiraf fólki