Fréttablaðið - 02.08.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Íþróttir 14
Sjónvarp 18
LAUGARDAGUR
2. ágúst 2003 – 177. tölublað – 3. árgangur
LÁTA UNDAN
ÞRÝSTINGI Stjórnvöld
í Norður-Kóreu hafa sam-
þykkt að fara í viðræður
um þróun kjarnorku-
vopna. Málið hefur verið í
biðstöðu í níu mánuði.
Bandaríkin, Kína, Japan,
Rússland og Suður-Kórea taka þátt í við-
ræðunum. Sjá bls. 2
BROTIÐ Á LÆKNUM OG LÖG-
FRÆÐINGUM Samráð tryggingarfélag-
anna náði til samskipta félaganna við
lækna og lögfræðinga samkvæmt frumat-
hugun Samkeppnisstofnunar á samráði
tryggingarfélaga. Sjá bls. 2
MEIRIHLUTINN MEÐ AÐILD
Fylgjendum aðildar Íslands að Evrópusam-
bandinu (ESB) hefur fjölgað á liðnum mán-
uðum og eru þeir nú fleiri en andstæðingar
aðildar. Þetta er niðurstaða nýrrar könnun-
ar Gallups. Sjá bls. 4
ÁSÖKUNUM UM SAMRÁÐ MÓT-
MÆLT Tryggingarmiðstöðin segir mistök
ástæðu þess að tilboð félagsins í slysa-
tryggingar lögreglumanna var dregið til
baka. Þeir segja ályktanir Samkeppnisstofn-
unar um samráð í þessu útboði ekki eiga
við rök að styðjast. Sjá bls. 6
VEÐRIÐ Í DAG
bræðurnir berjast saman
Bjarni Guðjónsson:
▲
SÍÐA 14
Leikur með
Bochum í dag
lærir portúgölsku smátt og smátt
Björn Jörundur:
▲
SÍÐA 12
Útgerðarmað-
ur í Brasilíu
á leið til Bandaríkjanna
Skúli Helgasson:
▲
SÍÐA 11
Gefur 3000
vínilplötur
BESTA VEÐRIÐ Í REYKJAVÍK OG Í
EYJUM Bjartviðri verður á suðvestur-
fjórðungi landsins og hlýtt. Aðeins svalara
verður á Vestfjörðum, en þar ætti hann þó
að hanga þurr. Síst verður veðrið á Egils-
stöðum, úrkoma og sólarlítið. Sjá bls. 6
HM ÍSLENSKA HESTSINS Heims-
meistaramót íslenskra hesta, sem hófst
Herning í Danmörku á fimmtudaginn,
heldur áfram í dag. Keppni á unglinga-
landsmóti UMFÍ sem sett var í gær, heldur
áfram í dag. Sjá nánar:
DAGURINN Í DAG
Samráð olíufélaganna:
Óvissa um
framhaldið
SAMRÁÐ „Mér og Ásgeiri Einars-
syni, lögfræðingi Samkeppnis-
stofnunar, var falið að fara í gegn-
um málið og höfum við verið að
vinna í því, bæði á fimmtudag og í
gær,“ segir Jón H. Snorrason, yf-
irmaður efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra, um farveg
málsins um samráð olíufélaganna.
„Við erum að leita leiða til þess að
þetta mál geti farið í þann farveg
sem réttur er, hvort sem hann er
hjá Samkeppnisstofnun eða hjá
okkur,“ segir Jón. ■
FERÐALÖG Þjóðhátíðarnefnd er í
viðræðum við Landssímann og Öl-
gerð Egils Skallagrímssonar um
beina útsendingu frá gítarleik og
söng Árna Johnsens frá Kvía-
bryggju til Herjólfsdals klukkan
ellefu á sunnudagskvöldið.
Í gærkvöld hafði Árni enn ekki
fengið svör frá dómsmálaráðu-
neytinu við umleitunum sínum um
frí frá vistinni í fangelsinu á Kvía-
bryggju, þar sem hann dvelur
meðal annars vegna fjárdrátts og
mútuþægni. Árni hefur leitt
brekkusönginn í Herjólfsdal í 25
ár.
„Við erum að skoða hvort þetta
sé tæknilega mögulegt. Fimm
menn eru hérna frá Landssíman-
um og við höfum rætt við Ölgerð-
ina um afnot af skjá sem hægt er
að nota til að sýna Árna spila frá
Kvíabryggju. Árni tók vel í þetta,“
segir Páll Scheving, einn umsjón-
armanna Þjóðhátíðar.
Allar skipulagðar samgöngu-
leiðir til Vestmannaeyja voru full-
nýttar í gær og var reiknað með
að hátt í 4000 manns hafi náð til
Eyja á sjó og í lofti. Veðurstofan
spáir prýðilegu veðri um land allt,
með örfáum undantekningum.
Gert er ráð fyrir að veður verði
hvað best á landinu suðvestan-
verðu um helgina. Hins vegar
gætu komið þokubakkar að Suður-
landinu á mánudag. „Þá setjum
við aukaferð á Herjólf, svo fólk
festist ekki hér,“ segir Páll.
Örlítið rigndi í Eyjum seinni
partinn í gær, en horfur eru á sól í
dag og á morgun. „Þetta var síð-
asta súldin. Ef ég horfi til austurs
sé ég sólarglennuna koma,“ sagði
Páll í gærkvöld. Búist er við þús-
und manns til viðbótar til Eyja í
dag.
Helga Ívarsdóttir, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir
gæfuna hliðholla Íslendingum um
helgina hvað veðrið varðar. „Þetta
er rosalega fínt veður og hvergi
rok og rigning, þó það gætu komi
einhverjir dropar.“
Reiknað er með að veðrið verði
hvað síst á annesjum norðan og
norðaustanlands, með þokubökk-
um, en víðast hvar á landinu nær
sólin að glenna sig um helgina.
jtr@frettabladid.is
EFTIRLÝSTUR
Veggspjald þar sem heitið er verðlaunafé fyr-
ir Saddam, fyrrum Íraksforseta og syni hans.
Saddam Hussein:
Hvetur til
uppreisnar
BAGDAD, AP „Ósigur og biturleiki
gætu orðið til þess að einhverjir
fremdu landráð, í stað þess að
vera byssan sem miðað er á óvin-
inn,“ segir rödd á segulbandsupp-
töku sem Arabíska sjónvarps-
stöðin Al-Jazeera spilaði í gær-
morgun.
Röddin er eignuð Saddam
Hussein, fyrrum Íraksforseta,
sem hefur verið hundeltur undan-
farna þrjá og hálfan mánuð og er
upptakan að sögn frá því á sunnu-
dag. Röddin hvetur Íraka til
áframhaldandi uppreisnar gegn
Bandaríkjamönnum og jafnframt
tryggja að ríkiseignir falli ekki í
hendur Bandaríkjamönnum svo
hægt sé að nýta þær í uppreisn-
inni. ■
VERSLUN Ferðamanni einum var um
daginn neitað um að kaupa handa
fimm ára dóttur sinni litla Dreitil
mjólk í Kaupfélagi Steingríms-
fjarðar. Ástæðan var sú að hann átti
enga Lató peningaseðla til að greiða
með.
Jóna Rakel Jónsdóttir, verslun-
arstjóri hjá kaupfélaginu á Hólma-
vík, segir Dreitil aðeins vera selda í
versluninni í umboðssölu fyrir
Lató. „Við eigum ekki Dreitilinn
sjálf. Búnaðarbankinn sendir okkur
vörur fyrir Lató og þær fá bara að
liggja hér í búðinni,“ segir Jóna
Rakel.
Dreitill var eina mjólkurtegund-
in sem til var í kaupfélaginu í
minnstu umbúðunum. Jóna Rakel
segir slíka vöru ekki pantaða þar
sem hún seljist nær ekkert á
Hólmavík.
Þó alltaf sé hægt að kaupa vissar
vörutegundir gegn greiðslu í Lató,
eru einnig mismunandi vörur á
boðstólum á hverjum tíma. Jóna
Rakel segir sumar þeirra ekki hluta
venjulegs vöruúrvals Kaupfélags
Steingrímsfjarðar. Auk Dreitils, sé
dæmi um slíkt skyr.is, sem aðeins
sé selt í kaupfélaginu á vegum Lató.
„Það hefur reyndar komið fyrir
ef venjulega skyrið er búið í hillun-
um að við höfum selt fólki skyr.is
fyrir hefðbundna peninga,“ segir
verslunarstjórinn. ■
Fimm ára stúlka fékk ekki mjólk í kaupfélagi:
Neitað um Dreitil nema gegn Lató
Fréttablaðið:
Næst á
þriðjudag
BLAÐAÚTGÁFA Fréttablaðið kemur
ekki út á morgun og mánudag, frí-
dag verslunarmanna, en næsta
blað kemur út á þriðjudag.
Eftir það mun Fréttablaðið
koma út alla daga vikunnar fram
að jólum. Þetta er í samræmi við
þá stefnu að blaðið komi út flesta
daga ársins og aðeins verði gert
hlé á útgáfu þegar nokkrir frídag-
ar liggja saman. ■
LATÓ HAGKERFIÐ
Fimm ára stúlka valdi sér Dreitil að drekka
í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar en faðirinn
fékk mjólkina ekki keypta.
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Um 4000 aðkomumenn voru komnir til Vestmannaeyja í gærkvöld til að fagna þjóðhátíð. Búist er við þúsund í viðbót í dag.
M
YN
D
–
Ó
G
F
RÉ
TT
IR
Árni í beinni frá
Kvíabryggju
Þjóðhátíðarnefnd er í viðræðum við Landssímann um beina útsendingu
frá gítarleik og söng Árna Johnsens frá Kvíabryggju. Veðurstofa Íslands
spáir því að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir um helgina.