Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 2
2 2. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
“Ég er spenntur fyrir því að allt
gangi vel um helgina.“
Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, hefur
fylgst með umferðinni um verslunarmannahelgina
í aldarfjórðung.
Spurningdagsins
Óli, spenntur allan sólarhringinn?
SUÐUR KÓREA, AP Stjórnvöld í Norð-
ur-Kóreu hafa samþykkt að taka
þátt í fjölþjóðlegum viðræðum
vegna þeirra grunsemda sem eru
uppi um þróun kjarnorkuvopna í
landinu.
Norður-Kórea hefur mánuðum
saman krafist þess að eiga ein-
göngu viðræður við bandarísk yf-
irvöld vegna málsins en ákvað loks
að slaka á klónni. Auk Norður-
Kóreu og Bandaríkjanna munu
Suður-Kórea, Kína, Japan og Rúss-
land taka þátt í viðræðunum. Norð-
ur-Kórea setti það sem skilyrði
fyrir fjölþjóðlegu viðræðunum að
tvíhliða viðræður við Bandaríkin
gætu átt sér stað á sama tíma.
John Bolton, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að
ákvörðun Norður-Kóreu væri
hvetjandi. Hún breytti þó ekki
þeim kröfum Bandaríkjanna um
að þjóðin hætti við kjarnorku-
áform sín.
Junichiro Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans, sagði að stigið
hafi verið jákvætt skref fram á
við. „Kannski er Norður-Kórea far-
in að mýkjast örlítið í afstöðu
sinni,“ sagði Koizumi. „Við eigum
að fjölga fjölþjóðlegum viðræðum
og láta Norður Kóreu heyra raddir
alþjóðasamfélagsins.“
Í október í fyrra viðurkenndi
Norður-Kórea þróun sína á kjarn-
orkuvopnum sem eru búin til úr
úraníum. Eftir það dró þjóðin sig
úr fjölþjóðlegum sáttmála gegn
þróun kjarnorkuvopna og endur-
ræsti kjarnorkuver sitt sem býr til
plútóníum. Auk þess hefur þjóðin
sagt bandarískum yfirvöldum að
hún hafi endursmíðað 8.000
kjarnaodda. Það magn gæti verið
nóg til að búa til þó nokkrar kjarn-
orkusprengjur á nokkrum mánuð-
um.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær fjölþjóðlegu viðræðurnar
fara fram. ■
Samráð tryggingarfélaganna:
Brutu á læknum og lögfræðingum
SAMKEPPNISMÁL Samráð trygging-
arfélaganna náði til samskipta fé-
laganna við lækna og lögfræðinga
samkvæmt frumathugun Sam-
keppnisstofnunar á samráði trygg-
ingarfélaga. Gilti þetta um
greiðslu áverkavottorða og upp-
gjöri líkamstjóna tjónþola.
Mat Samkeppnisstofnunar er að
með slíku samráði hafi verið brot-
ið gegn 10. og 12. grein samkeppn-
islaganna frá 1993.
Samband íslenskra tryggingar-
félaga sendi frá sér minnisblað
með tilmælum til félaganna um
hvernig þau skuli haga sér í
tengslum við bótauppgjör fyrir
líkamstjón. Samkeppnisstofnun
telur tilmælunum ætlað að hafa
áhrif á innkaupsverð fyrirtækja á
þjónustu lögmanna.
Í apríl árið 1999 sendi Samband
íslenskra tryggingarfélaga til-
kynningu um áverkavottorð
lækna. Þar er tiltekið að viðmið
vegna greiðslu áverkavottorða sé
28,8 sérfræðieiningar eða 4.752
krónur.
Samkeppnisstofnun telur til-
mælin brot á 10. og 12. grein. Einu
gildi þótt læknar eða félag þeirra
hafi komið að samráðinu. ■
Formenn flokka:
Davíð hæstur
TEKJUR Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra hafði hæst laun for-
manna stjórnmálaflokkanna á síð-
asta ári. Námu laun hans 943 þús-
undum króna á mánuði, sam-
kvæmt úttekt Frjálsrar verslunar
á tekjum 2400 Íslendinga. Davíð
var með um 200 þúsund krónum
hærri laun en Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra, sem sam-
kvæmt úttektinni var með 738
þúsund í laun á mánuði.
Laun formanna stjórnarand-
stöðuflokkanna voru nokkru
lægri. Af þeim hafði Guðjón Arn-
ar Kristjánsson hæstu launin, 415
þúsund á mánuði. Laun Össurar
Skarphéðinssonar námu 409 þús-
undum og laun Steingríms J. Sig-
fússonar 347 þúsundum. ■
David Kelly:
Blair
ber vitni
LONDON, AP Dómarinn sem stjórn-
ar rannsókn á þeim kringum-
stæðum sem leiddu til dauða
breska vopnasérfræðingsins,
David Kelly, hefur óskað eftir því
að Tony Blair, forsætisráðherra,
beri vitni í málinu.
Blair verður spurður út í það
hvers vegna Kelly hafi verið
nefndur sem hugsanlegur heim-
ildarmaður fyrir frétt breska rík-
isútvarpsins, BBC, um að stjórn-
völd hafi ýkt vopnaeign Íraka til
að réttlæta stríðið. Eftir að
fregnirnar voru gerðar opinber-
ar framdi Kelly sjálfsvíg.
Charles Kennedy, leiðtogi
frjálslynda demókrataflokksins,
sagði í gær að rannsaka eigi
hvort breska varnarmálaráðu-
neytið hafi hótað að taka ellilíf-
eyrinn af Kelly, eftir að hann gaf
BBC viðtalið án þess að hafa til
þess leyfi.
Kennedy sagði einnig að rann-
saka eigi hvort Kelly hefði verið
óánægður með það hvernig
stjórnvöld notuðu sérfræðiráð-
gjöf hans til að réttlæta stríðið. ■
Landssímamálið:
Stórfelld og
alvarleg brot
RANNSÓKN „Rannsókn í Landssíma-
málinu er í gangi ennþá. Búið er
að ná utan um málið í stærstu
dráttum,“ segir Jón H. Snorrason.
Hann segir þá þurfa að ljúka
býsna mörgu áður en þeir verði
tilbúnir með málið fyrir þá með-
ferð, sem rétt þykir og eðlileg,
þegar rannsókninni verði að fullu
lokið. „Það liggur fyrir að upplýst
verði um stórfelld og alvarleg
brot sem enda með einum hætti að
hálfu lögreglu og ákæruvalds,“
sagði Jón H., þegar hann var
spurður um hvort ákært yrði í
málinu. ■
Bílasala:
Um 43%
aukning
NEYSLA Sala nýrra bíla hefur aukist
um 43% fyrstu sjö mánuði þessa
árs, sé miðað við sama tíma og í
fyrra. Fjöldi bíla sem seldir hafa
verið eru 7095 bílar en til saman-
burðar voru þeir 4950 í fyrra. Sú
bílategund sem bersýnilega hefur
vinninginn er Toyota, en 1823 bif-
reiðar þeirrar tegundar hafa selst,
eða um 25% af heildarsölunni.
Velta Brimborgar, sem er eitt
af fimm stærstu bílaumboðum
landsins, eykst um 74% eða tæpa
1.3 milljarða króna á þessum
fyrstu sjö mánuðum ársins. ■
Opið í dag 10 - 18 ...
... um 50 verslanir og veitingastaðir
með opið í dag, laugardag.
Sunnudag er opið kl. 13 - 17 hjá:
Islandia, Kebab, Kiss, Maraþon, Mótor, Noa-Noa, Next og Park.
Hard Rock, Kringlubíó og Kringlukráin hafa opið lengur
fram á kvöld.
Mánudag er lokað í verslunum.
Opið hjá Hard Rock, Kebab og Kringlubíói.
Sjá nánar www.kringlan.is
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
21
87
0
08
/2
00
3
VERSLUNARMANNAHELGIN „Það er al-
veg makalaust að yfirvöld skuli
banna 18 ára og yngri að gista á
tjaldsvæðum bæjarins,“ sagði
Davíð Hreiðarsson, íbúi á Akur-
eyri, en talsvert hefur verið um að
unglingar setji upp tjöld sín hér
og þar um bæinn þar sem fólki
yngra en 18 ára er ekki heimilt að
gista á tjaldstæðinu án fylgdar
forráðamanna.
„Ég hef tekið eftir krökkum
sem eru að tjalda og skemmta sér
hjá yfirgefnum skemmum og
vöruhúsum í bænum. Er þá ekki
gáfulegra að hleypa þeim inn á
tjaldstæðið og hafa eftirlit með
þeim þar?“
Þórarinn Jóhannesson varð-
stjóri í Lögreglunni á Akureyri
sagði að öll slík mál væru tekin
hörðum höndum. „Það er okkar
reynsla að lítill hópur af ungling-
um getur stækkað mikið yfir eina
helgi og því tökum við á því ef að
við sjáum tjöld þar sem þau eiga
ekki að vera. Ef um er ræða ungl-
inga undir lögaldri hringjum við
strax í foreldrana. Það er aðeins
einn staður hér á Akureyri þar
sem leyfilegt er að tjalda og það
er á tjaldstæðinu. ■
Daninn er enn í
gæsluvarðhaldi:
Íslendingur-
inn í farbanni
FARBANN Gæsluvarðhald yfir Ís-
lendingnum, sem sóttur var af
lögreglunni í Reykjavík til Dan-
merkur vegna aðildar að tíu kíló-
um af hassi sem flutt voru til
landsins, rann út í gær en hann
hefur verið úrskurðaður í farbann
til 1. september. Gæsluvarðhald-
inu yfir Dana, sem var handtekinn
í tengslum við málið, var fram-
lengt til 19. ágúst. „Nú sér fyrir
endann á rannsókninni og næst er
að koma málinu fyrir dóm,“ segir
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík. ■
FRÁ AKUREYRI
Fólk yngra en 18 ára dvelur nú víða um bæinn.
Yngri en 18 ára fá ekki gistingu á tjaldsvæðinu á Akureyri:
Ungmenni tjalda hvar sem er
LANDSSÍMINN
Rannsókn Ríkislögreglustjóra í
Landsímamálinu stendur enn yfir.
GRIMMDARAUGU
Norður Kóreskur hermaður horfir grimmdaraugum á bandarískan hermann sem er stadd-
ur hinum megin við hlutlaust hersvæði sem skilur að Norður- og Suður Kóreu.
N-Kórea lætur
undan þrýstingi
Stjórnvöld í Norður Kóreu samþykkja að fara í viðræður um þróun
kjarnorkuvopna. Málið hefur verið í biðstöðu í níu mánuði. Bandaríkin,
Kína, Japan, Rússland og Suður-Kórea taka þátt í viðræðunum.
AP
/M
YN
D
TRYGGINGARSAMRÁÐ
Samband íslenskra tryggingarfélaga
beindi tilmælum til tryggingarfélaganna
um viðskipti við lækna og lögfræðinga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI