Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 4

Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 4
4 2. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Ertu að vinna um Verslunar- mannahelgina? Spurning dagsins í dag: Áttu eftir að taka eitthvað sumarfrí? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 74% 26% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is STJÓRNMÁL Tveir þriðju hlutar Ís- lendinga vilja að Bandaríkin ann- ist varnir landsins samkvæmt könnun Gallups. Auk þess sem 65% lands- manna styðja veru bandarísks herliðs í landinu er 71% hlynnt veru landsins í NATO. Séu þau 17% úrtaksins í könnuninni sem ekki tók afstöðu til herliðsins undanskilin, nemur stuðningur við herinn 77%. Til spurningar- innar um NATO-aðildina tóku 15% ekki afstöðu. Að þeim frá- töldum nemur stuðningurinn 84%. Þetta mun vera í samræmi við mælingar Gallups frá október 2001 þó stuðningurinn lækki ei- lítið við bæði herinn og NATO að- ildina. Niðurstöður Gallups benda til að karlar séu meðmæltari veru hersins en konur. Þá er fólk á aldrinum 25 til 44 ára hlynntari hersetunni en fólk sem er yngra og eldra en þessi aldurshópur. Ennfremur eru stuðningsmenn stjórnarflokkanna hlynntari veru hersins og aðildinni að NATO en þeir sem aðhyllast stjórnarand- stöðuflokkana. ■ Meirihlutinn vill í Evrópusambandið Af þeim sem tóku afstöðu í könnun Gallup eru nú 51% fylgjandi inn- göngu í Evrópusambandið í stað 43% fyrir fjórum mánuðum. Viðskipta- hagsmunir eru taldir helsti kostur aðildar. STJÓRNMÁL Fylgjendum aðildar Ís- lands að Evrópusambandinu (ESB) hefur fjölgað á liðnum mán- uðum og eru þeir nú fleiri en and- stæðingar aðildar. Þetta er niður- staða nýrrar Gallup-könnunar. Samkvæmt nýju könnuninni segjast nú 42% aðspurðra vera fylgjandi aðild að ESB en 40% vera á móti. Þeir sem ekki taka af- stöðu mælast vera 19%. Að fráreikn- uðum þeim sem ekki taka afstöðu er ríflega 51% með aðild en tæplega 49% á móti Í sambærilegri könnun fyrir fjórum mánuðum, í febrúar, voru 48% á móti aðild að ESB en 36% voru henni fylgjandi. Um 16% tóku þá ekki afstöðu til málsins. Að þeim frátöldum mældust rúm 57% vera á móti inngöngu í ESB en tæp 43% vera hlynnt inngöngu. Þátttakendur í könnun Gallups voru sérstaklega spurðir um kosti og galla á ESB-aðildinni. Af þeim sem nefndu ókosti töldu langflestir, eða 47%, að helsti ókosturinn tengdist sjávar- útvegsmálum. Þá nefndu 24% sjálfstæði sem Íslendingar myndu tapa og 11% nefndu áhrifaleysi okkar innan sambandsins. Helsta kost aðildar að ESB sögðu 30% svarenda vera fólginn í viðskiptahagsmunum. Tæpur fimmtungur taldi það kost að verða með inngöngu hluti af Evr- ópu. Að evran kæmi í stað íslensku krónunnar sögðu 16% vera helsta kostinn og 15% nefndu lægra vöruverð sem myndi fylgja aðild að Evrópusambandinu. Afstaða manna til inngöngu í ESB markast verulega af almenn- um stjórnmálaviðhorfum þeirra. Þannig eru þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna langflestir, eða 63%, fylgjandi aðildinni. Á móti voru 20%. Af stuðningsfólki Vinstri græn- na og stuðningsfólki Frjálslynda flokksins sögðust hins vegar í báð- um tilfellum 56% vera andvíg að- ild en 33% vera með aðildinni. Þá eru andstæðingar ESB-aðild- ar innan stjórnarflokkanna tals- vert fleiri en fylgjendurnir. Í Framsóknarflokknum er 36% fylgjandi aðild en 43% á móti. Í röðum Sjálfstæðismanna mældust 34% vera meðmæltir inngöngu í ESB en 48% vera á móti. Gallup segir ennfremur að langskólagengið fólk sé fremur fylgjandi ESB aðild en þeir sem styttri skólagöngu eigi að baki. Þá séu 45% þeirra sem búa í þéttbýli en í dreifbýli. gar@frettabladid.is Tekjur: Formaður VR hæstur TEKJUR Magnús L. Sveinsson, fv. formaður VR, er launahæstur starfsmanna hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins. Námu tekjur hans 1.360 milljónum króna á mánuði síðasta árið, samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Formað- ur og framkvæmdastjóri LÍÚ, Kristján Ragnarsson og Friðrik Arngrímsson, fylgja honum eftir með 1.097 og 959 milljónir króna í mánaðarlaun. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, fékk mánaðarlaun upp á 866 þúsund og Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins fékk 860 þúsund á mánuði. ■ EVEREST FJALL Ferðamálayfirvöld í Nepal hafa nú höggvið á hnútinn í deilunni um hver var fljótastur að klífa tindinn Hraðamet á Everest: Sherpinn Gyelu held- ur metinu KATMANDÚ, AP Samkomulag hefur tekist í deilunni um hver var fljót- astur að klífa hæsta fjall veraldar, Everest-fjall. Yfirvöld í Nepal skýrðu frá því að hraðamet Sherpans, Lapka Geylu, hefði verið staðfest en það tók hann 10 klukkustundir og 56 mínútur að fara úr neðstu búðum, sem eru í 5.300 metra hæð, á tind Everest í 8.850 metra hæð. Annar Sherpi, Pamba Dorje, hafði gert tilkall til hraðametsins en hann kleif tind Everest á 12 klukkustundum og 45 mínútum. Dorje sagði Sherpann Geylu ljúga til um tíma sinn, en yfirvöld stað- festu tíma Geylus eftir samtöl við vitni, skoðun ljósmynda og ann- arra gagna. Hálf öld er síðan Nýsjálending- urinn Edmund Hillary komst á tind Everest, ásamt Sherpanum Tenzing Norgay. Síðan hafa 1.300 manns klifið tind þessa hæsta fjalls heims. ■ SPRENGING Sprengjusérfræðingarnir voru óviðbúnir þegar sprengjan sprakk. Sprenging í Tyrklandi: Sextán lög- reglumenn særðust TYRKLAND,AP Sextán lögreglumenn særðust, þar af tveir alvarlega, þegar sprengja sem sprengjusér- fræðingar voru að reyna að af- tengja, sprakk í Ankara. Sprengjan var staðsett fyrir utan byggingu stjórnvalda. Einn af sprengjuséræðingunum opnaði sprengjuna með fyrrgreindum af- leiðingum. Hann hafði engan hlífð- arbúnað á sér. Fjölmargir lögreglu- menn höfðu safnast saman til að sjá sprengjuna aftengda. ■ FÁÐU‘ÐA UM HELGINA! FEELFINE -drykkur morgundagsins - engin þynnka - aukin orka - betri líðan www.feelfine.is Fæst í: Hagkaupum, 10-11, afgreiðslu Herjólfs Þorláksh. og öðrum betri verslunum og apótekum um allt land. Fylgi flokkanna: Óbreytt staða STJÓRNMÁL Fylgi við stjórnmála- flokka breyttist nær ekkert milli júní og júlí samkvæmt skoðana- könnun Þjóðarpúls Gallups. Könnun sýnir að 60% að- spurðra styðja ríkisstjórnina. Samtals hafa stjórnarflokkarnir hins vegar 53% fylgi; Sjálfstæðis- flokkurinn 35% fylgi og Fram- sóknarflokkur 18%. Helsta breytingin á fylgi stjórnarandstöðuflokkanna er sú að Frjálslyndi flokkurinn lækkar úr 8% í 6%. Vinstri grænir hækka úr 10% í 11% og Samfylkingin stendur í stað með 29%. ■ UPPGJÖR Afkoma Eimskipafélags- ins á öðrum ársfjórðungi var und- ir væntingum greiningardeildar Íslandsbanka. Lýsir bankinn von- brigðum með uppgjörið. Velta Eimskipafélagsins fyrstu sex mánuði ársins var um milljarði lægri en spár Íslandsbanka gerðu ráð fyrir. Velta félagsins var rúm- ur fimmtán og hálfur milljarður. Hagnaður félagsins var 134 millj- ónir króna en spá Íslandsbanka gerði ráð fyrir 353 milljón króna hagnaði. Afkoma Eimskipafélags- ins er einnig nokkuð undir spá Kaupþings Búnaðarbanka. Af- komuspá Landsbankans var næst niðurstöðu uppgjörsins og var hagnaður Eimskipa 90 milljón krónum meiri en spá bankans gerði ráð fyrir. Framlegð Brims, sjávarút- vegsstoðar Eimskipafélagsins, er tæp 15 prósent. Að sögn greining- ardeildar Íslandsbanka hefur gengi krónunnar þróast í óhag- stæða átt frá því að Eimskip keypti sjávarútvegsfélögin sem nú mynda Brim. Búast má við lak- ari afkomu sjávarútvegsstoðar Eimskips á síðari hluta ársins. Litlar sem engar breytingar urðu á gengi félagsins við birt- ingu uppgjörsins. ■ Lítil breyting í skoðanakönnun Gallups: Bandaríkin veiti Íslandi hervernd HERSTÖÐ BANDARÍKJANNA Nær fjórir af fimm Íslendingum vilja bandaríska hervernd. Afkoma Eimskipafélagsins: Vonbrigði og lítill hagnaður LÉLEG AFKOMA Eimskipafélagið velti rúmum fimmtán milljörðum fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður af þessum rekstrartekjum var einungis 134 milljónir. ■ Afstaða manna til inngöngu í ESB markast verulega af almennum stjórnmálavið- horfum þeirra. HÖFUÐSTÖÐVAR EVRÓPUSAMBANDSINS Naumur meirihluti er nú fyrir því meðal íslenskra kjósenda gerast aðili að Evrópusambandinu samkvæmt niðurstöðu nýs Þjóðarpúls Gallups.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.