Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.08.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 02.08.2003, Qupperneq 8
Um helgina 26. - 27. júlí sagði Ög-mundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna (sem láta sig sjaldan vanta þegar tækifæri býðst til að kasta grjóti í nafni réttlætisins), að Ingibjörgu Sólrúnu hefði skort dóm- greind þegar hún ákvað að þegja yfir olíublettunum á Þórólfi Árna- syni, sem Reykvíkingar héldu að væri splunkunýr úr kassanum. En landið er fagurt og frítt. Bún- aðarsamband Suðurlands hefur hvatt bændur til að henda heyi seinni sláttar strax, í stað þess að kosta til við að koma því í rúllur og henda því næsta sumar. Af þessu má læra að betra er að fleygja mataraf- göngum strax í stað þess að setja þá í ísskápinn og henda þeim síðar. Sunnudaginn 27.júlí komu aldrað- ir hermenn saman á landamærum Suður- og Norður-Kóreu til að minn- ast þess að hálf öld er liðin frá lokum Kóreustríðsins. Og enn standa and- stæðingarnir vörð sinn hvoru megin við landamærin og horfast í augu, gráir fyrir járnum. Á mánudag kom Robertsson framkvæmdastjóri NATO til að kveðja vini sína, Davíð og Halldór. Bob Hope kvaddi líka þennan dag, fyrir fullt og allt, 100 ára að aldri. Á þriðjudag var Páll Scheving að reyna að fá Árna Johnsen lánaðan til að kyrja brekkusöng, en yfirvöld eru nísk á að veita föngum leyfi til að sletta úr klaufunum, eins og þegar Lalla Johns var bannað að fara í bíó. Skyldu sömu reglur gilda fyrir Johns og Johnsen? Svo kemur miðvikudagur 30. og Ingibjörg Sólrún segir að pólitík sé grimm. Þrátt fyrir að hundahald sé bannað (en samt leyft) er borgar- stjórinn lentur í þessari grimmu tík. Ógnarlangt viðtal við Þórólf í Mogga og báðum sjónvarpsstöðvum. Skítt ef maður þarf að fleygja óslitnum flík- um út af blettum sem ekki nást úr. Á fimmtudag varð Hörður Sigur- gestsson varaformaður Skeljungs fyrir því að lenda í fjaðrafoki, en þá var hann spurður út í eldfim við- skipti sín við Hörð Sigurgestsson, stjórnarformann Flugleiða. Hörður og Hörður vilja ekki tjá sig um for- tíðina. Galdrabrennur, segja sumir, og vilja meina að fréttir fjölmiðla af rannsókn málsins séu í rauninni refsing án glæps, sem hlýtur að vera sjokkerandi reynsla - einkum fyrir þá sem hafa vanist því að stunda glæpi án refsingar. Föstudaginn 1. ágúst eykst enn grínið í framhaldssápunni „Vinir - í viðskiptum“. Í aðalhlutverkum birt- ast Sjóvá, Tryggingamiðstöðin og fleiri og fleiri og fleiri. Þokkalegt veður mestalla vikuna, hlýtt en skýjað og skúraleiðingar. Þurrt að kalla, eins og þeir segja hjá Veðurstofunni þegar rignir ofan í þurrkaspárnar ... ■ Hvað kemur það fólki við hvaðég er með í laun?“ spyr net- verji með notandanafnið ert á málefni.is. Heitar umræður eru víða á spjallrásum og á meðal pistlahöfunda netsins um það hvort skattskýrslur eigi að vera opinberar eða ekki. Netverjinn heldur áfram og spyr: „Af hverju að draga mörkin við skattskrárnar? Af hverju er ekki bara gengið alla leið og þetta allt gert opin- bert? Þannig gæti ég séð hvort ná- grannahjónin séu í raun skilin og hann með lögheimili úti í bæ til að fá auknar bætur hjá TR?“ „Málið snýst um friðhelgi einkalífsins og til að brjóta hana þarf að vera góður rökstuðning- ur,“ skrifar landr á sömu netsíðu og tekur undir málstað erts. „Það þarf í raun ekki að rökstyðja af hverju á ekki að birta tölur yfir hagi einstaklinga (ef menn skilja ekki hvað friðhelgi einkalífs er) heldur þurfa þeir sem vilja birt- ingu að koma með rök fyrir henni, og þau þurfa að varða almanna- hagsmuni.“ „Ég hef satt að segja aldrei skilið þessa viðkvæmni í fólki gagnvart skattskrám landsins,“ skrifar xstrax. „Og ekki er þetta eins og það sé alveg einstakt með- al þjóða. Ég fór nýlega inn á ein- hvern bæjarlink í Noregi og þar gat ég séð hvað fólk var með í gjaldstofna, bara með því að setja inn nafn; þurfti ekki einu sinni kennitölu til!“ Marbendill tekur undir orð xtrax. „Skil ekki þessa við- kvæmni,“ skrifar hann. „Hægri ofstækismenn gera sig að fíflum með því að æsa sig yfir þessum tittlingaskít sem í raun er þjóð- þrifaverk, það er að birta skatta- listana.“ Hann segir Noreg til fyr- irmyndar, þar sem hægt er að sjá allar tekjuupplýsingar manna á netinu með því að stimpla inn nafn á síðunni http://bt.no/skatt/. Marbendill bendir á að þetta skapi vörn gegn skattsvikum. „Svo er þetta líka í anda hins upplýsta þjóðfélags.“ Landr er ekki lengi að svara fyrir sig: „Og þá er bara að stíga skrefið til fulls: 1. Birta lista yfir örorkugreiðslur - Jói í næsta húsi getur gert við húsið sitt því hann er sko enginn 45% öryrki! 2. Lán frá LÍN - sonur henna Gunnu er örugglega að vinna svart með náminu! Svo getum við öll fylgst með hvort öðru í vel upplýstu þjóðfélagi ...“ Pistlahöfundur á andriki.is, eða vefþjóðviljanum, veltir mál- inu fyrir sér út frá öðrum sjónar- hóli. Hann beinir sjónum sínum að því að vinnuveitendur fái að vita álagningu skattsins viku áður en launþeginn, og sé falið að innheimta skattskuldina. Hann segir það „einkennilegt að vinnu- veitendur, af öllum mönnum, fái reglulega um það tilkynningar frá skattinum hvað starfsmenn þeirra skulda í skatta.“ Og hann heldur áfram: „Oftast eru þetta skattskuldir sem starfsmaður hefur stofnað til annars staðar en með vinnu sinni fyrir fyrirtækið sem fær tilkynninguna um að starfsmaðurinn sé með allt niður um sig gagnvart skattinum og þurfi að vinna allan sólarhring- inn næstu mánuðina til að eiga fyrir skuldinni.“ ■ 8 2. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Þar eð ég var einn þeirra semhvöttu Þórólf Árnason til að gera hreint fyrir sínum dyrum í olíumálinu nýja þykir mér ekki nema sanngjarnt og rétt að fram komi að það þykir mér Þórólfur nú hafa gert á býsna skörulegan hátt með viðtölum við fjölmiðla í vikunni. „Þórólfsmálið“ var auðvitað frá upphafi með nokkrum ólíkindum. Það var stórskrýtið að sá maður sem einn virtist eiga að verða hengdur eftir að upplýsingar tóku að berast úr frum- skýrslu Samkeppn- isstofnunar skyldi vera Þórólfur - mað- ur, sem með störf- um sínum hjá Tali, var eins konar hold- gervingur baráttu gegn gömlu einok- unarfyrirtækjunum sem hér hafa öllu ráðið í viðskiptalíf- inu í áratugi, maður sem greinilega þekkti sitt markaðskerfi fram í fingurgóma og virtist eiginlega manna ólíklegastur til að verða táknmynd hinna „gömlu gilda“ þar sem klíkubræður ráða ráðum sín- um í bakherbergjum. Og ekki síð- ur kaldhæðnislegt ef borgarstjóri Reykjavíkurlistans var orðinn helsti sökudólgur í máli þar sem betur virtust liggja við höggi ýms- ir framámenn tengdir Sjálfstæðis- flokknum (og Framsóknarflokkur- inn ekki alveg ósnortinn heldur, það er ástæðulaust að gleyma því). Gæti Þórólfur verið frændi Sópranós? Meðal annars þess vegna, en þó fyrst og fremst vegna þess að hann verður sem borgarstjóri að njóta trúnaðar borgarbúa, þá var svo mikilvægt fyrir Þórólf að gera uppskátt um aðild sína að olíuhneykslinu. Málið snerist auð- vitað ekki um að Þórólfur sannaði - allra síst í fjölmiðlum - að hann væri ekki frændi Tónýs Sópranós, eða að hann hefði einn manna á Ís- landi aldrei á ævinni heyrt orðin „samráð olíufélaganna“. Ég hefði satt að segja alveg þolað Þórólfi töluvert meiri vitneskju um það samráð en hann kveðst nú hafa haft. Bara ef hann hefði skýrt heiðarlega og skilmerkilega frá því. Því Þórólfur hefði jafnvel þá átt sér allverulegar málsbætur, sem hvorki er tóm til né þörf á að rekja hér. Málið snerist fyrst og fremst um það hvort hann sem nýorðinn stjórnmálamaður - því það hlýtur hann að kallast sem borgarstjóri í Reykjavík - hvort hann hefði til að bera hreinskilni, einlægni og þor til að gera grein fyrir sínum þætti þannig að full- nægjandi væri. Og það þótti mér Þórólfur reyndar gera í vikunni. Trúverðugur maður Auðvitað ætti ég að setja hér þann fyrirvara að Þórólfur gæti hugsanlega verið að ljúga eins og hann er langur til. Hann gæti hugsanlega hafa setið glottandi við borðið þar sem Kristinn Björnsson, Geir Magnús- son og Einar Benediktsson komu sér saman um prísana. Og hann gæti líka hugsanlega verið fjar- skyldur Tóný Sópranó gegnum systurdóttur langafabróður ömmusystur sinnar. En í bili sé ég hins vegar enga ástæðu til að trúa því. Í fyrsta lagi væri Þórólfur þá að taka fáránlega áhættu, því væntanlega kemst þá upp um hann ekki síðar en um áramót, þegar Samkeppnisstofnun skilar sinni lokaskýrslu. En í öðru lagi var framganga Þórólfs í viðtölun- um í vikunni einfaldlega þannig að ég trúði honum. Vissulega voru sjónvarpsviðtölin ekki alveg vandræðalaus fyrir hann, en í heild þótti mér sá maður sem sat fyrir svörum trúverðugur og flytja mál sitt í senn af þunga og einlægni. Og grunaði hann um hreinskilni. Hugsaði meira að segja: Ýmislegt gætu nú þraut- reyndir stjórnmálamenn lært af þessari framgöngu. En bætti svo við í huganum: Nei, ætli það. Því framganga Þórólfs virtist ekki til- lærð heldur manninum bara eðlis- læg. Og ekki til eftiröpunar. Og sem persóna, fannst mér maður- inn vaxa af þessari raun. Nú þeg- ar Þórólfur hefur talað og við bíð- um bara róleg fram til áramóta til að vita hvort þetta sé ekki örugg- lega allt meira og minna rétt hjá honum, þá fer hins vegar að verða brýnt að snúa sér að þeim sem málið snýst í rauninni um. Vilhjálmsþáttur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borg- arstjórn, vill að vísu ólmur láta ol- íumálið nýja snúast áfram aðeins um Þórólf Árnason með afdráttar- lausum fullyrðingum um að hann sé að ljúga þessu öllu. Þær full- yrðingar komu á óvart, því mér hefur hingað til virst Vilhjálmur bæði gætinn og sanngjarn stjórn- málamaður. Ég er ekki viss um að hróður hans aukist á endanum af ákafanum. Það verður að minnsta kosti afar forvitnilegt að sjá hvaða ein- kunnir Vilhjálmur velur þá málsvörnum annarra, sem fyrr eða síðar þarf að knýja til að taka til máls - ef einhvern tíma tekst þá að toga orð upp úr fólki eins og Sólveigu Pétursdóttur, Herði Sig- urgestsson etc. ■ Óráðsía Vigfús skrifar Mér finnst það skjóta ansiskökku við, þegar verið er sí- fellt að tala um sparnað í ríkisbú- skapnum, að til stendur að senda sérstakan sendiráðsprest til London á kostnað skattgreiðenda fyrir fleiri milljónir á ári. Prestar landsins eru margir og vinna mis- jafnlega fyrir kaupinu sínu, bíla- styrkjum og fleiri fríðindum. Þeir vinna nú ekki nema á sunnudögum í hálftómum kirkjum. Að vera að senda prest til sendiráðs Íslands í London er fáránlegt, ekki síst þar sem þeir Íslendingar sem eru þar fyrir tala góða ensku, og nóg er af prestum þar fyrir. Þetta ætti að taka til endurskoðunar og spara hér frekar en að gera út á okkur fátæka skattgreiðendur. Einnig mætti leggja alveg niður Jafnréttisstofu, ekki síst eftir að sú stofnum hefur svo rækilega sannað fáránleika tilveru sinnar. Hver ætli kostnaðurinn við það bákn sé þegar orðinn? ■ Eitt eilífðarsmáblóm Málsvörn Þórólfs ■ Bréf til blaðsins Hörður og Hörður ■ Meðal annars þess vegna en þó fyrst og fremst vegna þess að hann verður sem borgarstjóri að njóta trúnaðar borgarbúa, þá var svo mikil- vægt fyrir Þórólf að gera uppskátt um aðild sína að olíuhneykslinu.■ Ég hef satt að segja aldrei skilið þessa viðkvæmni í fólki gagnvart skattskrám landsins“ ÞRÁINN BERTELSSON ■ hraðspólar fréttir vikunnar ILLUGI JÖKULSSON ■ skrifar um borgarstjóra og olíusamráð Um daginnog veginn ERILL Á SKATTSTOFU Eru tekjur og skattar einkamál eða opinberar upplýsingar? Af netinu ■ Netverjar deila um hvort skattskrár eigi að vera opinberar. Með nefið í hvers manns skatti Áskorun til Veðurstofu Arnar G. Hinriksson frá Ísafirði skrifar Endilega haldið áfram hrakviðr-isspám ykkar fyrir Vestfirði. Þið eru búnir að spá hér leiðinda- veðri alla vikuna en það hefur ver- ið hér sól og blíða alla daga og nú vaknar maður klukkan 5.00 að morgni í heiðríkju hér á Ísafirði. Það virðist vera aðalreglan hjá ykkur að spá hér leiðinlegra veðri heldur en raun verður á. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.