Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 11
Þetta er safn sem ég byggði uppfyrst og fremst þegar ég var
útvarpsmaður á Rás 2, en þar
byrjaði ég átján ára gamall, fyrir
tuttugu árum, með heimildaþætti
um hljómsveitir sem við Snorri
Már Skúlason gerðum saman.
Mér þykir við hæfi að safnið fari
til þjóðarinnar á einhvern hátt og
mér datt enginn staður betri í hug
en poppmynjasafnið í Keflavík,“
segir Skúli Helgason fyrrum út-
varpsmaður og fráfarandi yfir-
maður tónlistarútgáfu Eddu miðl-
unar. Hann er á leið til útlanda í
nám og hefur á þeim tímamótum
ákveðið að gefa Poppminjasafn-
inu í Keflavík vínilplötusafnið sitt
sem telur um þrjú þúsund LP-
plötur, 12 tommur og smáskífur
með popp- og rokktónlist. „Ég sé
fyrir mér að menn geti mætt í
þessa vöggu popptónlistarinnar á
Íslandi og flett í gegnum safnið og
hlustað á plötur,“ segir Skúli.
„Allra skemmtilegast væri ef ein-
hverjir geðsjúklingar eins og ég
var á sínum tíma, hvað tónlist
varðar, fari og stúderi tónlistina
og búi til þætti.“
Skúli segir safnið saman stan-
da af tónlist úr öllum áttum, en
mikið sé frá níunda áratugnum.
„Kjarninn er pönk og nýbylgja, og
nýrokkið sem kemur fram með
Smiths, U2 og R.E.M. og fleirum,“
segir Skúli. „Svo hlustaði maður
líka heilmikið á Bowie og vestur-
strandarokkið í Bandaríkjunum.“
Skúli keypti fyrstu plötuna
þegar hann var ellefu ára, árið
1976. „Það var önnur plata Bítl-
anna, Introducing The Beatles,“
segir hann. „Ég keypti hana not-
aða í Safnarabúðinni. Alla tíð síð-
an hef ég verið haldinn ólæknandi
Bítlabakteríu.“
Skúli segist ekki hafa hlustað á
allar plöturnar í safninu, en megn-
ið af þeim. Aðspurður um það
hvað standi upp úr segir hann
Smiths með Morrissey í farar-
broddi vera sér ofarlega í huga.
Hins vegar fær Poppminjasafnið
ekki allan skammtinn strax, því
Skúli hyggst halda eftir nokkrum
kössum fyrir sjálfan sig enn um
sinn. Það eru plötur sem hann ber
sérstaklega miklar taugar til.
„Það eru ekki endilega bestu plöt-
urnar,“ segir hann. „Þarna er svo-
lítið af íslensku nýbylgjunni, sem
ekki er til á diskum, Purrkur, Þeyr
og Kukl. Ég ætla aðeins að hlusta
á þessar plötur lengur, áður en
safnið fær þær.“
Skúli er á leið til Minneappolis
í nám í opinberri stjórnsýslu,
ásamt konu sinni, Önnu Lind, sem
einnig er að fara í nám, og tveim-
ur sonum. Í Minneappolis býr
Prince og Skúli hefur að sjálf-
sögðu í hyggju að heimsækja hina
konunglegu ótukt og drekka með
honum kaffibolla. Einnig er Bob
Dylan frá Minneappolis.
Hins vegar hljómar nám í opin-
berri stjórnsýslu dálítið eins og
Skúli hafi ákveðið að söðla um og
láta tónlistaráhugann víkja fyrir
öðrum hugðarefnum. Hann viður-
kennir að það sé rétt. „Auðvitað
eru þetta, í einhverjum skilningi,
kaflaskil í lífi manns,“ segir hann.
„Maður er að kveðja ákveðið
tímabil þar sem tónlistin hefur
haldið manni í heljargreipum. En
ég geri þetta í anda ummæla sem
eru höfð eftir Ragnari í Smára.
Maður á aldrei að gefa neitt nema
það sem maður sér eftir.“
Rúnar Júlíusson tónlistarmað-
ur er einn aðalhvatamanna að
stofnun Poppminjasafnsins, en
uppbygging safnsins er nú í hönd-
um bæjarstjórnar í Keflavík.
Rúnar kvaðst ákaflega ánægður
með gjöfina þegar Fréttablaðið
náði í hann í gær, þar sem hann
var á leið til Siglufjarðar að spila
með Hljómum. „Þetta er mjög
ánægjulegt,“ sagði Rúnar. „En ég
á eftir að hlusta á þetta.“
gs@frettabladid.is
11LAUGARDAGUR 2. ágúst 2003
Kiljuútgáfa á Íslandi er í mikl-um blóma og um langa helgi,
eins og verslunar-
mannahelgi, er upplagt
að leggjast í lestur,
hvort sem er í útileg-
unni eða heima hjá sér.
Af nógu er að taka.
Þeir sem kjósa ljóð-
ræna lesningu, en um
leið mikla frásagnar-
gleði, ættu að lesa
Rokkað í Vittula eftir
Mikael Niemi. Bókin
hefur selst í rúmlega
hálfri milljón eintaka í
Svíþjóð. Hún hlaut árið
2000 virtustu bók-
menntaverðlaun Svía
og var tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norð-
urlandaráðs og það
hefði sannarlega ekki
verið nein skömm hefði
hún hlotið þau. Þetta er bráð-
skemmtileg saga um Matti og vin
hans Niila og uppvöxt þeirra og
tilveru í litlum bæ í norður Sví-
þjóð. Ljúf og falleg bók
sem einkennist af fjör-
ugu ímyndunarafli. Á
köflum frábærlega
skrifuð.
Bestu krimmar á
markaðnum eru bækur
Boris Akúnins en
Sunday Times segir
höfundinn vera svar
Rússlands við Ian Flem-
ing. Í síðustu viku var
fjallað um Krýningar-
hátíðina en önnur bók
eftir Akúnin hefur kom-
ið út á íslensku. Það er Ríkisráðið
en þar er rannsóknarlögreglu-
maðurinn Fandorin einnig í aðal-
hlutverki og berst við stórhættu-
lega hryðjuverkamenn. Ríkisráð-
ið er ekki jafn glæsileg glæpasaga
og Krýningarhátíðin, en samt
verulega góð. Þeir
sem lesa eina bók um
Fandorin eru líklegir
til að lesa fleiri, en
bækurnar munu vera
um tíu talsins, og von-
andi verða fleiri en
þessar tvær þýddar á
íslensku.
Isabel Allende kom
sér á kortið með hinni
fínu skáldsögu sinni
Húsi andanna. Síðan
hefur hún skrifað
margt og mikið en
ekki er það allt jafn
gott. Hún styrkti sig
þó mjög í sessi með
bókinni Paulu sem er
langt bréf til dauðvona
dóttur hennar. Tilfinn-
ingarík fjölskyldu- og
harmsaga sem kom út á íslensku
árið 1995 og er nú endurútgefin í
kilju.
Og ekki má gleyma börnunum,
en nýkomin er út bók-
inni Í grænni lautu
sem er söngvaleikja-
bók. Ragnheiður
Gestsdóttir valdi leik-
ina og þarna er meðal
annars að finna Þyrni-
rós, Höfuð, herðar,
hné og tær, og Bimm
bamm bimm bamm.
Vitanlega eru þarna
líka lýsingar á leikj-
unum, svo börnin eiga
ekki í neinum vand-
ræðum með að vita
hvernig á að bera sig að. Ragn-
heiður myndskreytir svo á sinn
einkar skemmtilega hátt. Bók sem
öll börn verða að eignast.
kolla@frettabladid.is
Allra skemmtilegast
væri ef einhverjir geðsjúk-
lingar eins og ég var á sín-
um tíma, hvað tónlist varð-
ar, fari og stúderi tónlistina
og búi til þætti.
,,
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EY-
MUNDSSONAR 23. - 29. JÚLÍ 2003
ALLAR BÆKUR
Jón G. Snæland
EKIÐ UM ÓBYGGÐIR
Arnaldur Indriðason
RÖDDIN
Örn Sigurðsson, ritstjóri
KORTABÓK M&M
Steindór Steindórs. frá Hlöðum
ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN
Landmælingar Íslands
FERÐAKORTABÓK
Arnaldur Indriðason
SYNIR DUFTSINS
Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
Arnaldur Indriðason
NAPÓLEONSSKJÖLIN
Orðabókaútgáfan
ENSK-ÍSL./ÍSL.-ENSK
Hörður Kristinsson
ÍSL. PLÖNTUHANDBÓKIN
SKÁLDVERK
Arnaldur Indriðason
RÖDDIN
Arnaldur Indriðason
SYNIR DUFTSINS
Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
Arnaldur Indriðason
NAPÓLEONSSKJÖLIN
Arnaldur Indriðason
DAUÐARÓSIR
Björn Th. Björnsson
FALSARINN
Jane Austen
HROKI OG HLEYPIDÓMAR
Steinunn Jóhannesdóttir
REISUBÓK GUÐRÍÐAR...
Jean M. Auel
DALUR HESTANNA
Patricia Cornwell
ALLT SEM EFTIR ER
Mest seldubækurnar
Í GRÆNNI LAUTU
Leikjabók sem óhætt er að
segja að muni stytta börn-
unum stundir.
Bækur í útileguna
Mikið líf er í kiljuútgáfu um þessar mundir.
Upplagt að grípa eina með sér í útileguna.
ROKKAÐ Í VITTULA
Ljúf og falleg bók sem ein-
kennist af fjörugu ímyndun-
arafli og er á köflum frá-
bærlega vel skrifuð.
Skúli Helgason tónlistargrúskari
til margra ára og fyrrum út-
varpsmaður er að flytja til út-
landa. Af því tilefni hefur hann
ákveðið að gefa Poppminjasafn-
inu í Keflavík vínilplötusafnið sitt
sem telur um 3000 plötur.
3000 vínilplötur til
Poppminjasafnsins