Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 17
LAUGARDAGUR 2. ágúst 2003 17
Skrýtnafréttin■ ■ SIGLUFJÖRÐUR
14.00 Skemmtidagskrá með trú-
badorunum Ómari, Evu Karlottu og
Þórarni á Torginu á Siglufirði.
15.00 Hlöðver Sigurðsson tenor
býður okkur uppá tónlistarveislu ásamt
Sturlaugi Kristjánssyni á Torginu á
Siglufirði.
22.00 Hljómsveitin The Hefners
verður með tónleika á Torginu á Siglu-
firði.
23.00 Miðaldarmenn leika fyrir
dansi á Torginu, Siglufirði
24.00 Hljómar frá Keflavík leika
fyrir dansi í Bíósalnum á Siglufirði.
24.00 Hljómsveitin The Hefners
leikur fyrir dansi í Alþýðuhúsinu á Siglu-
firði.
■ ■ ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM
15.00 Tónleikar á Brekkusviðinu
með Brutal, Whole orange og Heimsk-
um sonum.
20.30 Kvöldvaka með Skítamóral,
Afródít, Bítlunum og Tríkoti.
23.00 Brekkusöngur, varðeldur og
brekkublys.
00.15 Sálin hans Jóns míns og
Skítamórall spila á Brekkusviðinu, Dans
á Rósum og Hippabandið á Tjarnar-
sviðinu.
■ ■ ÍSAFJÖRÐUR
20.00 Kvöldvaka á hátíðarsvæði
Unglingalandsmóts UMFÍ á Ísafirði.
22.00 Dansleikur á hátíðarsvæði
með hljómsveitinni Á móti sól á hátíð-
arsvæði Unglingalandsmóts UMFÍ á
Ísafirði. Flugeldasýning á miðnætti.
■ ■ GALTALÆKUR
Í svörtum fötum spilar á Galtalækj-
arhátíðinni.
■ ■ ÚTHLÍÐ
20.00 Fjölskyldufjör í Úthlíð, Bisk-
upstungum. Hljómsveitin Vírus leikur
vel valin lög á Fjölskyldufjöri í Úthlíð,
Biskupstungum. Dansleikur með sömu
hljómsveit síðar um kvöldið.
■ ■ KÁNTRÝBÆR
Gleðisveitin Gilitrutt leikur í Kántrí-
bæ á Skagaströnd og sérstakur gestur er
sjálfur Hallbjörn J. Hjartarson.
■ ■ NESKAUPSSTAÐUR
Stuðmenn spila á Neistaflugi í Eg-
ilsbúð, Neskaupsstað.
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Ferðafélag Íslands efnir til
dagsferðar þar sem gengið verður á
milli Selja sunnan Hafnarfjarðar. Farar-
stjóri er Gunnar Sæmundsson. Farið
verður frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni
6. Verð kr.1.800/ 2.100.
■ ■ ÚTIMARKAÐUR
13.00 Útimarkaður fyrir listmuni
og lífrænt grænmeti á aðaltorgi Sól-
heima í Grímsnesi.
■ ■ TÓNLIST
15.00 Rúnar Óskarsson endurflyt-
ur í Skálholtskirkju ný verk fyrir
bassaklarínettu eftir Elínu Gunnlaugs-
dóttur, Isang Yun, Claudio Ambrosini,
Óliver Kentish og Tryggva M. Baldvins-
son.
■ ■ SAMKOMA
16.00 Sumarkabarett Sólheima í
kaffihúsinu Grænu könnunni. Gesta-
listamenn verða Kristinn Guðmunds-
son úr Halaleikhópnum og sönghópur-
inn Blikandi stjörnur. Leynigestur helg-
arinnar verður hinn viðfrægi söngdúett
Geiri og Villa.
hvað?hvar?hvenær?
1 2 3 4 5 6 7
JÚLÍ
Mánudagur
WOODY ALLEN
Nýjasta kvikmynd Woody Allen mun opna
hina árlegu kvikmyndahátíð í Feneyjum í ár.
Myndin heitir „Anything Else“ og er róman-
tísk gamanmynd sem gerist í New York.
Allen leikur sjálfur aðalhlutverkið en mót-
leikarar hans í myndinni eru m.a. Jason
Biggs, Danny DeVito og Christina Ricci. Há-
tíðin byrjar þann 27. ágúst næstkomandi.
Rússi heldur því statt og stöðugtfram að hann hafi undir höndun-
um getnaðarlim Adolfs Hitlers, fyrr-
um einræðisherra Þýskalands. Ekki
er nóg með það, því nú hefur hann
sett liminn á sölu. Maðurinn segist
reiðubúinn til þess að hleypa lækn-
um að limnum í því skyni að gerð
verði á honum DNA prufa þar sem
hann sé fullviss um að niðurstaðan
staðfesti sögu sína.
Herra Zudropov heldur því fram
að faðir sinn hafi verið í Rauða hern-
um og að hann hafi verið í hópi rúss-
neskra hermanna sem fundu lík
Hitlers í leynilegri herstöð Nasista í
Berlín við lok seinni heimstyrjaldar-
innar. Þar eiga hermennirnir að hafa
berstrípað lík einræðisherrans, bar-
ið það til óbóta og skorið í búta. Hann
segir svo að faðir sinn hafi tekið
þennan umrædda líkamshluta af ein-
ræðisherranum sem minjagrip.
„Pabba langaði til að eiga hluta af
Hitler,“ sagði herra Zudropov í við-
tali við rússneska blaðið Express
Gazeta. „Fyrst velti hann því fyrir
sér að taka höfuðið en ákvað síðan að
taka getnaðarliminn í staðinn.“
Herra Zudropov vill fá 1,5 milljón
króna fyrir gripinn. Að lokum tók
maðurinn það fram að limur Hitlers
sé aðeins rétt rúmlega 6 sentímetra
langur. ■
Rússneskur maður
vill selja lim Hitlers
ADOLF HITLER
Er hin raunverulega ástæða fyrir
stórmennskubrjálæðinu fundin?