Fréttablaðið - 02.08.2003, Síða 23

Fréttablaðið - 02.08.2003, Síða 23
23LAUGARDAGUR 2. ágúst 2003 Ég hef í gegnum árin haft nóg aðgera þessa helgi og alla jafna hef ég verið í vinnu til miðnættis,“ segir Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs. Nú er rólegra hjá Óla þar sem hann er ekki í framlínunni lengur. „Það var al- veg kominn tími á að ég léti öðrum það eftir og er mjög sáttur við mitt verk- svið nú,“ segir hann. Óli verður að öllum líkindum heima um helgina en hann segir það þó geta breyst með litlum fyrirvara. „Það er aldrei að vita nema við skreppum eitt- hvað en það eru minni líkur á því en meiri, því við erum nýlega komin úr fríi norðan úr landi. Þar áttum við mjög skemmtilega daga í sumarbústað í Kjarnaskógi með góðum vinum.“ Á laugardagskvöldum þar fyrir utan er Óli vanur að vera heima, nema eitthvað sérstakt beri við. „Við hjónin erum mjög heimakær og lítið fyrir að fara út um helgar. Það er helst að við förum út að borða um helgar en oftast erum við heima í notalegheitum.“ Óli segir að börnin séu öll flogin úr hreiðrinu og sjálf komin með lít- il börn. „Það er frekar að þau komi um miðjan daginn í heimsókn vegna barnanna sem þurfa að komast í rúmið. Við horfum á sjón- varp, en minna á þessum árstíma. Nú hef ég verið að endurbæta hjá mér garðinn og hef ekki velt fyrir mér hvaða dagur er heldur unnið í því jafnt laugardagskvöld sem önnur kvöld,“ segir hann. Óli segir helgina leggjast prýðilega í sig. Veðurspáin sé þannig að hreyfing verði á fólki. „Ég kom nú einu sinni með þá til- lögu að flýta verslunarmanna- helginni um einn mánuð. Sú til- laga féll í grýttan jarðveg, en ástæða þess að ég lagði það til er að það virðist sem haustlægðirnar hefji göngu sína þessa fyrstu helgi í ágúst. Það vill verða meira slark á fólki í slæmu veðri, auk þess sem betra er að hafa þessa ferðahelgi á bjartari tíma. Nú er fyrsta helgin í júlí orðin svo að segja jafnmikil ferðahelgi. Og reyndar allur júlímánuður.“ Haft er eftir Óla í VÍS-auglýs- ingu fyrir helgina að allt sé betra, vegir, bílar og ökumenn. „Ég segi það með vissum fyrirvara því ég er ekki alveg viss um ökumennina en þegar á heildina er litið held ég að skilyrðin séu betri. Um helgina fylgist Óli með og er ósköp feginn að vera ekki leng- ur í því hlutverki sem hann lengi hefur verið í. Ég vona bara í lengstu lög að allir komist heilir heim,“ segir hann. bergljót@frettabladid.is HEIMA UM VERSLUNARMANNAHELGI Eins og sagt var frá í Fréttablaðinu í gær verða 40% landsmanna heima við um Verslunar- mannahelgina samkvæmt könnun sem Plúsinn gerði. Austurvöllur ætti því að vera líflegur á sóldögunum sem spáð er að komi. Heima í notalegheitum LAUGARDAGKVÖLD ÓLI H ÞÓRÐARSON ■ hefur lengi verið við vinnu þessa helgi en hefur skipt um starfsvettvang og á nú fríi. Hann ætlar að hlífa vegfarend- um við að vera á ferðinni um helgina og hafa það notalegt heima. ÓLI H ÞÓRÐARSON Formaður Umferðarráðs á frí um helgina en lengst af hefur hann verið önnum kaf- inn þessa helgi. Þau hjón eru lítið fyrir út- stáelsi á laugardagskvöldum og eins og aðrar helgar ætlar hann að hafa það nota- legt heima.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.