Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 24

Fréttablaðið - 02.08.2003, Side 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Konurugl Bakþankar EIRÍKS JÓNSSONAR www.IKEA.is Opið frá kl. 10 til 18 laugardaginn 2.ágúst | www.ikea.is Settu strik í reikninginn með IKEA ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I KE 21 85 7 0 8/ 20 03 Ósvikin fjölskyldustemning í IKEA - fjöldi spennandi verðtilboða. DAGANA 24.JÚL Í T I L 10.ÁGÚST Var svo sem til í það. Hún hafðihringt úr bókabúð Máls og menningar og beðið mig að hitta sig. Vildi eiga við mig orð eftir langa fjarveru að beggja mati. Nokkrir tímar. Sagðist bíða á kaffistofunni í bókabúðinni, ég gæti ekki villst. Þekkti Súfistann ágætlega. Þar sötra gestir ítalskt kaffi og pressaðar app- elsínur niðursokknir í tímarit. Flest- ir með gleraugu; alla vega sólgler- augu. Fer sjaldan því þarna er bann- að að reykja. SKAUST upp tröppurnar í bókabúð- inni og vatt mér inn á Súfistann. Allt kom heim og saman; engin reykur, bara gleraugu og pressaðar appelsín- ur. Leit yfir salinn en sá ekki ástina mína. Snerist í hálfhring eins og mennskur radar og sá þá þetta dökka hár. Eins og hrafntinna, tekið í hnút að aftan en nokkrir lokkar léku þó um grannan háls. Bakið beint og mittið grannt. Þarna var ástin mín. Eða svo hélt ég. LYFTIST upp eins og karldýr í ham. Gekk mjúkum skrefum í átt að kon- unni. Þóttist sjá á baksvipnum að hún var að bíða mín. Strauk henni ljúflega um hárið og hálsinn; niður eftir bakinu, inn undir blússuna. Beygði mig svo fram og kyssti á kinn. Og þá dundu ósköpin yfir. VARIR mínar höfðu ekki fyrr snert vanga hennar en konan rak upp skaðræðisöskur. Maður á næsta borði svaraði kallinu, rauk upp og bjóst til varnar. Afgreiðslustúlka missti bakka með veitingum. Börn brustu í grát. Á Laugaveginum vældi í sírenu. Sjálfum fannst mér heimur- inn hrynja. Horfði í skelfingu lostin augu sem ég hafði aldrei séð áður. Konan var frá El Salvador, Argent- ínu eða Perú. Hvað veit ég. Alla vega var þetta ekki konan mín. REYNDI að biðjast afsökunar á öll- um tungumálum heims. En konan hnipraði sig saman í sjokki á Súfist- anum þar sem kyrrðin ríkir ein að öllu jöfnu. Snerist aftur eins og radar en nú í öfuga átt. Nam augu konu minnar við bókahillu í hinum enda salarins. Stóð þar með bók í hendi og bros á vör sem bræðir smjör á pönnu þó slökkt sé á hellu. Forðaði mér af kaffistofunni og yfir til hennar. Strauk henni um hár og háls og kyssti. Réttur maður á réttum stað. ■ *** 250 KR. *** Allar spóur á 250 kr. um Verslunarmanna helgina Vídeó Miðjan Hlíðasmára 8, Kópavogi, s:564 3930

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.