Fréttablaðið - 22.08.2003, Qupperneq 17
Ég ætla ekki að gera nokkurnskapaðan hlut í tilefni dags-
ins,“ segir Árni Bergmann rithöf-
undur, en hann er sextíu og átta
ára í dag. Árni segir tilhögun af-
mælisdagana algjörlega fara eft-
ir aðstæðum hverju sinni og nú
muni hann fara í tínslu á berjum
í Biskupstungum. „Við verðum í
fylgd heimafólks og það má vel
vera að við finnum líka eitthvað
af sveppum.“
Aðspurður um eftirminnileg-
asta afmælisdaginn er Árni fljót-
ur að nefna sjö ára afmælisdag-
inn. „Þá fékk ég í afmælisgjöf frá
frænku minni Davíð Coperfield.
Ég hóf strax lesturinn og þegar
krakkarnir komu í afmælið var
ég hágrátandi þar sem Davíð var
búinn að missa móður sína. Það
má segja að þetta hafi verið í
fyrsta sinn sem ég steig inn í bók-
menntirnar af alvöru og hef ekki
losnað þaðan síðan.“
Það sem er á döfinni hjá Árna
er bókmenntahátíð sem haldin
verður í Reykjavík í haust.
„Hingað mun koma rússneskur
bókmenntahöfundur, Akúnin,
sem ég hef verið að þýða og ég
hlakka mikið til að ræða við
hann. Hann er mjög sérstæður
maður og er einn af þeim sem
kunna að hræra saman reyfur-
um og bókmenntum.“ Árni seg-
ist alltaf hafa bók við höndina
„Ég er mikill bókaormur og er
sífellt skríðandi milli blaðsíðna.
Þó er það svo með bókaorma að
það eru ýmsar tegundir bóka
sem eldast af þeim. Undanfarið
hefur fjölgað skáldsögum sem
mér líkar ekki við og í því efni er
ég alls ekki að ásaka höfundana,
þetta er frekar breyting á lífs-
klukkunni.“ ■
18 22. ágúst 2003 FÖSTUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
■ Afmæli
Afmæli
ÁRNI BERGMANN
■ er 68 ára í dag. Hann mun nýta dag-
inn í berjatínslu í Biskupstungum og von-
ast jafn vel eftir að finna nokkra sveppi.
Skógræktarfélag Skagafjarðar ersjötugt um þessar mundir. Nú um
helgina verður aðalfundur Skóg-
ræktarfélags Íslands því haldinn í
Miðgarði í Skagafirði.
Á morgun verður svo haldið út í
Hrútey sem er eyja í ánni Blöndu,
rétt við kaupstaðinn Blönduós. Til-
efnið er að í Hrútey er nú svokallað-
ur „Opinn skógur“.
„Þarna var byrjað á skógrækt
rétt um 1950. Þarna er verið að bæta
alla aðstöðu svo þetta verði aðgengi-
legra fyrir fólk,“ segir Brynjólfur
Jónsson, framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Íslands. „Þarna er búið
að leggja göngustíga og merkja trjá-
tegundir. Þarna er rjóður til að setj-
ast niður í og mjög góð göngubrú
yfir ána svo allir komast yfir.“
Brynjólfur segir eyjuna algera
paradís með miklu fuglalífi.
Aðalfundurinn verður settur í
dag og öllum áhugamönnum er
heimilt að mæta. „Sérstaklega bjóð-
um við Skagfirðinga, sem vilja
kynna sér skógrækt, velkomna“ seg-
ir Brynjólfur.
Meðal ræðumanna verður Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra. ■
CLAUDE DEBUSSY
Þetta fræga franska tónskáld fæddist á
þessum degi árið 1862. Debussy samdi
m.a. verkin La Mer og Clair de lune. Hann
lést þann 25. mars árið 1918.
Eva S. Bjarnadóttir, Neðstaleiti 4,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 20. ágúst.
Sigurþór Sigurðsson, Grettisgötu 46,
lést mánudaginn 18. ágúst.
10.30 Inga Anna Gunnarsdóttir, Arnar-
hrauni 18, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
13.30 Guttormur Sigurbjörnsson, fyrr-
verandi forstjóri, verður jarðsung-
inn frá Digraneskirkju.
13.30 Jón Magnússon frá Geirastöðum,
Kleppsvegi 132, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Grensáskirkju.
13.30 Kristján B. Þorvaldsson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
13.30 Ólöf Óskarsdóttir, Klettahrauni
15, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju.
14.00 Vigdís Gísladóttir, áður til heimil-
is á Hlílðargötu 26, Sandgerði,
verður jarðsungin frá safnaðar-
heimilinu í Sandgerði.
14.30 Guðmundur Guðbrandsson frá
Felli, Árneshreppi, Strandasýslu,
verður jarðsunginn frá Árnes-
kirkju, Strandasýslu.
15.00 Ástríður Ólafsdóttir, Klapparstíg
1, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Grétar Nökkvi Eiríksson kaup-
maður, Miðleiti 2, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
15.00 Kristján Magnús Þór Jóhannes-
son, Hjallabraut 33, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði.
Jón Kristján Ólafsson söngvari og
plötusafnari á Bíldudal, 63 ára.
Bjarni Hafþór Helgason tónlistarmaður
og fyrrverandi fréttamaður, 56 ára.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson heimspek-
ingur og fyrrverandi blaðamaður, 42 ára.
Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 54 ára.
Ólafur Þórðarson knattspyrnuþjálfari,
38 ára.
Heiðar Helguson knattspyrnumaður,
26 ára.
22.ágúst
ÁHUGAFÓLK UM SKÓGRÆKT
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands verð-
ur haldinn í Skagafirði. Á morgun er skipu-
lögð athöfn í Hrútey við Blönduós.
Afmæli
SKÓGRÆKTARFÉLAG
SKAGAFJARÐAR
■ er sjötugt um þessar mundir og það
verður haldið upp á afmælið nú um helg-
ina. Meðal ræðumanna er enginn annar
en Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Eyjan er alger paradís
Í berjamó á
afmælisdaginn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Árið 1922 var írski byltingar-maðurinn Michael Collins
myrtur úr launsátri í Cork á Ír-
landi. Collins gekk ungur til liðs við
stjórnmálaflokkinn Sinn Féin sem
frá upphafi hafði á stefnuskrá sinni
að stofna sjálfstætt ríki á Írlandi.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin
hófst frestuðu Bretar öllum við-
ræðum um sjálfstæði Írlands. Írar
svöruðu með páskauppreisninni
árið 1916, þar sem Collins gegndi
stóru hlutverki.
Að stríðinu loknu náði Sinn
Féin yfirgnæfandi fylgi í kosning-
um og árið 1919 var stofnað ein-
hliða sjálfstætt ríki á Írlandi.
Sjálfboðaliðar, undir forystu Coll-
ins, börðust
gegn breska
hernum næstu
tvö árin. Árið
1921 var svo
samið um
vopnahlé og
Bretar féllust
á sjálfstætt
ríki á Írlandi,
að undan-
skildu norð-
a u s t u r h o r n i
landsins.
Collins var
fjármálaráð-
herra í fyrstu
ríkisstjórn landsins þangað til
hann var myrtur.
Árið 1996 var frumsýnd mynd
um Michael Collins með Liam
Neeson í hlutverki byltingar-
mannsins. Leikstjóri var hinn
írski Neil Jordan, sá hinn sami og
gerði meðal annars myndina The
Crying Game. ■
ÍRSKA BYLTINGAR-
HETJAN
Michael Collins var
myrtur 22. ágúst árið
1922.
Byltingarhetja myrt
22. ágúst 1922
MICHAEL COLLINS
■ var myrtur á þessum degi fyrir 81 ári.
Flestir þekkja sögu hans úr samnefndri
kvikmynd Neil Jordan.